Bæjarráð

3085. fundur 07. apríl 2022 kl. 08:15 - 12:24 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Birkir Jón Jónsson formaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2204068 - Ársreikningur Kópavogsbæjar 2021

Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lögð fram drög að ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2021.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2021 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Kristín Egilsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs - mæting: 08:15
  • Inólfur Arnarson fjármála- og hagsýslustjóri - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2204025 - Sjálfbærniskýrsla Kópavogsbæjar

Frá stefnustjóra, dags. 4. apríl 2022, lögð fram sjálfbærniskýrsla Kópavogsbæjar.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Kristín Egilsdóttir - mæting: 09:27
  • Pétur Illugi Einarsson - mæting: 09:27
  • Auður Finnbogadóttir stefnustjóri - mæting: 09:27
  • Eva Magnúsdóttir ráðgjafi hjá Podium - mæting: 09:27

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.1806800 - Velferð á vinnustað

Kynning á verkefninu velferð á vinnustað.
Kynning.

Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð þakkar góða kynningu og fagnar þessu mikilvæga verkefni til hagsbóta fyrir starfsfólk og Kópavogsbæ."

Gestir

  • Ingunn Mjöll Birgisdóttir - mæting: 10:32
  • Harpa Björg Guðfinnsdóttir - mæting: 10:32
  • Arna Margrét Erlingsdóttir - mæting: 10:32
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - mæting: 10:32

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.22021256 - Smárahvammsvegur endurgerð götu og umf. ljósa

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 5. apríl 2022, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út endurgerð Smárahvammsvegar milli Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild.

Gestir

  • Stefán L. Stefánsson deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 11:14

Ýmis erindi

5.22033173 - Bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélag um innleiðingu barnaverndarlaga

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélag, dags. 30.03.2022, lögð fram bókun stjórnar um innleiðingu barnaverndarlaga.
Lagt fram.

Ýmis erindi

6.2111071 - Verkefni vegna innleiðingar hringrásakerfis

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 30.03.2022, lögð fram bókun stórnar um verkefni vegna innleiðingar hringrásakerfis.
Lagt fram.

Ýmis erindi

7.2101468 - Þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024.

Fræa SSH, dags. 29.03.2022, lagt fram stöðumat varðandi þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024.
Kynning.

Gestir

  • Samúel Torfi Pétursson - mæting: 09:51
  • Jón Kjartan Ágústsson - mæting: 09:51

Fundargerðir nefnda

8.2203027F - Menntaráð - 95. fundur frá 05.04.2022

Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

9.2203019F - Skipulagsráð - 118. fundur frá 04.04.2022

Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
  • 9.3 22032524 Kjarrhólmi 2 - 38, framkvæmdaleyfi vegna rafhleðslustöðva.
    Lagt fram á ný erindi Hlyns Bárðarsonar f.h. stjórnar húsfélags Kjarrhólma 2-38 dags. 23. mars 2022. Óskað er eftir leyfi til framkvæmda á bæjarlandi vegna rafhleðslustöðva fyrir bifreiðar á eystri hluta bílastæða.
    Meðfylgjandi: Skýringarmynd.
    Á fundi skipulagsráðs 28. mars 2022 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar umhverfissviðs.
    Þá lögð fram umsögn umhverfissviðs dags. 29. mars 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 118 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fjórum atkvæðum og hjáseta Péturs H. Sigurðssonar."

    Bókun:
    "Undirrituð telja jákvætt að fjölga rafhleðslustöðvum við fjölbýlishús og hvetja bréfritara til þess að senda inn nýtt og nákvæmara erindi að höfðu samráði við umhverfissvið bæjarins."

    Bókun:
    "Undirrituð telja að Kópavogur eigi að heimila uppsetningu hleðslustöðva á hluta bílastæða við Kjarrhólma 2-34, enda eru bílastæðin á bæjarlandi Kópavogs. Hér er kjörið tækifæri fyrir Kópavogsbæ að taka þátt í orkuskiptum í samgöngum og gefa íbúum í einu af stærsta fjölbýlishúsi bæjarins tækifæri til þess að kaupa sér rafmagnsbíla og taka þannig þátt í orkuskiptum í samgöngum."
    Pétur Hrafn Sigurðsson
    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
  • 9.4 2009744 Bakkabraut 2-4, Bryggjuvör 1, 2, 3 og Þinghólsbraut 77 og 79. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.
    Lögð fram tillaga Atelier arkitekta f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóða við Bakkabraut 2 og 4, Bryggjuvör 1-3 og Þinghólsbraut 77 og 79. Svæði 13 á þróunarsvæði á Kársnesi, ÞR-1 samkv. Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Í tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi atvinnuhúsnæði á lóðunum víki og íbúðarhús rísi í þess stað. Skipulagssvæðið afmarkast af Þinghólsbraut og lóðamörkum Þinghólsbrautar 73 og 75 í austri, fyrirhugaðri nýrri vegtengingu milli Borgarholtsbrautar og Bakkabrautar í norðri, fyrirhugaðs nýs hafnarkants til vesturs og suðurs. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi íbúða á reitnum verði að hámarki 150, á 2-4 hæðum þar sem 4. hæðin verður inndregin. Gert er ráð fyrir 0,75-1 bílastæði pr. íbúð og að u.þ.b. 90% þeirra verði í innbyggðum og niðurgröfnum bílageymslum. Fyrirhugað er að heildarbyggingarmagn á svæðinu verði 24.995 m² ofan- og neðanjarðar með nýtingarhlutfalli 1,9. A-rými ofanjarðar 18.700m². B-rými ofanjarðar 2.595m². A-rými neðanjarðar 2.180m². B-rými neðanjarðar - Bílakjallari - 3.800m². Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 30. mars 2022. Tillögunni fylgir einnig minnisblað um samgöngur frá VSÓ ráðgjöf dags. 17. febrúar 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 118 Bókun Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og Einars Arnar Þorvarðarsonar: "Í framkomnum athugasemdum eftir kynningu vinnslutillögu kölluðu íbúar eftir auknu samráði. Meðal annars var óskað eftir kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu og heildarbyggingarmagni á stærra svæði Kársness, auk stefnu um hönnun og arkitektúr á svæðinu. Samþykkt skipulagslýsing gerir ráð fyrir 18.700 fermetrum en í deiliskipulagstillögunni er tæplega 34% aukning á byggingamagni. Af þessum sökum telja undirrituð mikilvægt að staldra við og fara í meira samráð við íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu áður en lengra er haldið."

    Fundarhlé kl. 17:09
    Fundur hófst á ný kl. 17:40

    Formaður lagði til að afgreiðslu málsins væri frestað til loka fundar, samþykkt.

    Bókun Bergljótar Kristinsdóttur: "Nú er kynningarferli á vinnslutillögu á reit 13 lokið og við tekur lögformlegt auglýsingaferli á tillögu til deiliskipulags með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á vinnslutillögunni í samræmi við athugasemdir.
    Nauðsynlegt er að nota öll ráð sem tiltæk eru til að íbúar nái að kynna sér tillöguna og þær breytingar sem gerðar hafa verið. Ég legg aftur til að boðið verði upp á þrívíddarmódel svo auðvelt sé fyrir íbúa að mynda sér skoðun á hæð bygginga og legu þeirra í landinu. Íbúar eru ekki sérfræðingar í lestri skipulagstillagna og þurfa gögn við hæfi til að meta raunhæfni tillögunnar."

    Hjördís Ýr Johnson, Birkir Jón Jónssonar, Kristinn D. Gissurarsonar og Sigríður Kristjánsdóttur taka undir bókun Bergljótar.

    Skipulagsráð samþykkir með 5 atkvæðum með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir og Einar Örn Þorvarðarson greiddu atkvæði á móti.

    Fundarhlé kl. 18:53
    Fundur hófst á ný kl. 18:58

    Bókun Hjördísar Ýr Johnson, Birkis Jóns Jónssonar, Kristins D. Gissurarsonar og Sigríðar Kristjánsdóttur: "Tekið hefur verið tillit til framkominna athugasemda, íbúðum fækkað, hæðir húsa lækkaðar, byggð aðlöguð enn frekar að aðliggjandi byggð og grænum svæðum fjölgað. Rétt er að árétta að nú hefst lögbundið kynningarferli þar sem íbúum gefst enn frekari kostur á að koma að athugasemdum og ábendingum."
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 9.5 2112233 Hliðarvegur í Lækjarbotnum. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
    Lagt fram á ný erindi Vegagerðarinnar dags. í nóvember 2022 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu hliðarvegar í Lækjarbotnum.
    Um er að ræða hliðarveg frá fyrirhuguðum gatnamótum við Geirland að að núverandi vegi að Waldorfskólanum í Lækjarbotnum.
    Framkvæmdin er liður í að tryggja öruggar tengingar við Lækjarbotnaland samhliða breikkun Suðurlandsvegar.
    Fyrir liggur umsögn Kópavogsbæjar til Skipulagsstofnunar dags. 27. október 2021, þar sem fram kemur að framkvæmdin sé ekki líkleg til að valda umtalsverðum neikvæðum umhverfisáhrifum og því skuli hún ekki matsskyld.
    Á fundi skipulagsráðs 31. janúar 2022 var samþykkt með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir hagsmunaaðilum og umsagnaraðilum.
    Kynningu lauk 28. mars sl. athugasemdir bárust. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 31. mars 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 118 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 9.6 2102346 Skilti HK við Breiddina. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram á ný erindi Handknattleiksfélags Kópavogs varðandi breytingu á auglýsingaskilti félagsins við stofnbraut í Breidd í Kópavogi, þar sem rekið hefur verið auglýsingaskilti um árabil. Óskað er eftir leyfi til að breyta tveimur flettiskiltaflötum í stafræna fleti. Annar mun snúa í norð-austur frá íbúabyggð í Kópavogi og hinn í suð-austur frá íbúabyggð í Kópavogi. Skjám er stýrt af Aopen DE3450 tölvu sem stillt er á að minnka ljósmagn niður í 4% ef bilun verður á búnaði. Þá lögð fram umsókn og skýringarteikning dags. í febrúar 2021. Þá lagður fram ferill máls sem inniheldur umsögn Samgöngustofu dags. 30. september 2021, umsögn Vegagerðinnar dags. 17. ágúst 2021 og Reykjavíkurborgar 20. október 2021.
    Á fundi skipulagsráðs 1. nóvember 2021 var erindinu vísað til úrvinnslu og umsagnar skipulagsdeildar. Þá lagt fram minnisblað skipulagsdeildar dags. 31. mars 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 118 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 9.7 2202230 Lyklafellslína 1 - Hamraneslínur, núllkostur 2.
    Lagt fram á ný erindi Landsnets hf. dags. 8. febrúar 2022, þar sem kynntur er nýr valkostur í útfærslu Lyklafellslínu 1 í landi Kópavogs. Um er að ræða niðurrif mastra Hamraneslína 1 og 2 á milli tengivirkisins í Hamranesi að Urriðakotsdal og lagningu 220 KV jarðstrengja í stað loftlínunnar á þeim kafla sem er um 5 km. Jarðstrengurinn mun liggja frá tengivirki í Hamranesi og tengjast við möstur Hamraneslína 1 og 2 (HN 1&2) í Urriðakotsdal. Þessar framkvæmdir fela ekki í sér niðurrif Hamraneslína 1 og 2 alla leið, líkt og ef um byggingu nýrrar línu (Lyklafellslínu 1) væri að ræða. Þessi nýja útfærsla hefur hlotið vinnuheitið "Núllkostur 2" og verður metinn sem einn valkostur í umhverfismatinu sem nú er í vinnslu.
    Skv. erindinu uppfyllir "Núllkostur 2" ekki meginmarkmið verkefnisins, en engu að síður telur Landsnet, miðað við stöðu og gögn málsins nú, að valkosturinn hafi margvíslegan ávinning og með fyrirvara um endanlega niðurstöðu umhverfismatsins, geti hann mögulega orðið aðalvalkostur Landsnets þegar umhverfismatsskýrslan verður lögð fram. Vinnu við skýrsluna lýkur í vor og er óskað eftir afstöðu Kópavogsbæjar áður en þeirri vinnu líkur.
    Á fundi skipulagsráðs 14. febrúar sl. var afgreiðslu erindisins frestað, vísað til umsagnar umhverfissviðs. Þá lögð fram umsögn umhverfissviðs dags. 29. mars 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 118 Lagt fram og kynnt. Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við að "núllkostur 2" verði aðalvalkostur fyrirhugaðrar framkvæmdar.
    Bókun: "Skipulagsráð óskar eftir nánari skýringum á breyttum forsendum fyrir orkuþörf."
    Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 9.8 2201221 Hörðuvellir, breytt deiliskipulag.
    Lögð fram á ný tillaga skipulagsdeildar að breyttu deiliskipulagi Hörðuvalla sem samþykkt var í bæjarráði 24. júní 2003 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 12. nóvember 2003.
    Í tillögunni felst að breyta mörkum skipulagssvæðis Hörðuvalla í samræmi við deiliskipulag fyrir þriðja áfanga Arnarnesvegar sem auglýst er samhliða breyttu deiliskipulagi þessu.
    Þar sem gert er ráð fyrir brú eða undirgöngum undir Arnarnesveg rétt norðaustan hringtorgs við Rjúpnaveg geta göngu- og hjólastígar færst nær íbúðarbyggð við Desjakór.
    Uppdrættir í mælikvarða 1:2000 dags. 17. janúar 2022
    Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag Hörðuvalla með síðari breytingum.
    Á fundi skipulagsráðs 17. janúar 2022 var samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Á fundi bæjarstjórnar 25. janúar var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest.
    Kynningartíma lauk 16. mars sl. Athugasemdir bárust.
    Á fundi skipulagsráðs 28. mars sl. var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 25. mars 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 118 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með 6 atkvæðum, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 9.9 2201223 Vatnsendahvarf - athafnasvæði. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram á ný tillaga skipulagsdeildar að breyttu deiliskipulagi athafnasvæðis Vatnsendahvarfs sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. september 2001 og birt í B- deild
    Stjórnartíðinda 15. janúar 2002.
    Í tillögunni felst að skipulagsmörk breytast þar sem ný lega Arnarnesvegar hefur færst til austurs. Stærð skipulagssvæðisins eftir breytingu er 22 ha. Við gatnamót Vatnsendavegar og Tónahvarfs er gert ráð fyrir nýju hringtorgi í stað krossgatnamóta.
    Umrætt deiliskipulag Arnarnesvegar og breytt deiliskiplaga Tónahvarfs 2 er auglýst samhliða breyttu deiliskipulagi þessu.
    Uppdrættir í mælikvarða 1:2000 dags. 17. janúar 2022
    Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag Vatnsendahvarfs - Athafnasvæðis með síðari breytingum.
    Á fundi skipulagsráð 17. janúar 2022 var samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Á fundi bæjarstjórnar 25. janúar 2022 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest.
    Kynningartíma lauk 16. mars sl. Athugasemdir bárust.
    Á fundi skipulagsráðs 28. mars sl. var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 25. mars 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 118 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með 6 atkvæðum, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 9.10 2109065 Breytt lega jarðstrengjar frá Vesturvör að Fossvogsbrú.
    Lagt fram að nýju erindi Veitna. Áður hefur verið samþykkt í skipulagsráði að leyfa breyta legu jarðstrengs frá Vesturvör að fyrirhugaðri brú yfir Fossvog og að sveitarfélagamörkum Kópavogs og Reykjavíkur. Það kemur nú í ljós að betra væri að komast hjá að leggja stenginn undir götu/stíga þar sem hágæða almennings samgöngur ásamt stofnstíg hjólreiða munu liggja í framtíðinni. Núverandi jarðstrengur liggur meðfram vesturlóðamörkum fjölbýlishússins að Hafnarbraut nr. 14. og að dælustöð við Hafnarbraut nr. 20 og í sjó fram. Ný lega jarðstrengjar mun því liggja frá lóðarmörkum Hafnarbrautar 27, eftir hjólastíg til vesturs og eftir Bakkabraut til norðurs. Þar sem strengur þverar Bakkabraut við Vesturvör 34 og liggur meðfram austurlóðamörkum Vesturvarar nr. 34 og 38 þar sem strengur beygir til norðvesturs að sjó og áfram að sveitarfélagsmörkum. Gert verður ráð fyrir 3m helgunarsvæði fyrir umræddan streng þar sem sett verður fram krafa um graftarrétt á bæjarlandi og innan lóðanna við Vesturvör 34 og 38 þó svo að strengur liggi ekki innan umræddra lóða. Þá lögð fram skýringarmynd af staðsetningu. Niðurstaða Skipulagsráð - 118 Skipulagsráð samþykkir framlagt erindi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

10.2204021 - Ósk um fundaraðstöðu

Frá stjórn félags kvenna í Kópavogi, dags. 31. mars 2022, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir aðstöðu til fundarhalda félagsins.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarritara.

Bókun:
"Undirritaður bendir á að verið er að skoða betri nýtingu á skólahúsnæði í eigu Kópavogsbæjar og er það tilvalið að gefa félagi kvenna í Kópavogi kost á að halda sína fundi í einhverjum af skólum Kópavogsbæjar."

Pétur Hrafn Sigurðsson
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Fundargerðir nefnda

11.2204135 - Fundargerð 538. fundar stjórnar SSH frá 04.04.2022

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.22033177 - Fundargerð 106. fundar svæðisskipulagsnefndar frá 31.03.2022

Fundagerð í einum lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.2204139 - Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðarsvæðunum frá 28.02.2022

Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.2204140 - Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðarsvæðunum frá 21.03.2022

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15.2204141 - Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðarsvæðunum frá 30.03.2022

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16.2204142 - Bókun 538. fundar stjórnar SSH. Framkvæmdir á skíðasvæðum

Frá SSH, dags. 4. apríl 2022, lögð fram bókun um stefnuráð áfangastaðarins höfuðborgarsvæðið.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

17.2204087 - Bæjarfulltrúi Theódóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir upplýsingum um hvernig staðið hefur verið að móttöku flóttamanna frá Úkraínu.

Bæjarfulltrúi Theódóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir upplýsingum um hvernig staðið hefur verið að móttöku flóttamanna frá Úkraínu.
Frestað til næsta fundar.

Erindi frá bæjarfulltrúum

18.2204149 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Péturs H. Sigurðssonar

Frá bæjarfulltrúa, Pétri Hrafni Sigurðssyni, dags. 5. apríl 2022, lögð fram fyrirspurn varðandi stöðu mála í tengslum við flóðljós á Kópavogisvelli.
Frestað til næsta fundar.
Bæjarráð samþykkir að haldinn verði aukafundur miðvikudaginn 20. apríl n.k. kl. 8:15.

Fundi slitið - kl. 12:24.