Bæjarráð

3115. fundur 19. janúar 2023 kl. 08:15 - 11:23 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Kolbeinn Reginsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Bergljót Kristinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir varafulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2012319 - Framfaravogin og mælikvarðar ISO37120 og ISO37122

Frá bæjarritara, dags. 17.01.2023, lögð fram tillaga um að Kópavogbær dragi sig úr áframhaldandi vinnu við Framfarvogina og hætti vottun á ISO37120 og ISO37122. Áfram verður þó unnið með þá mælikvarða sem nýtast í þjónustu við íbúa og þeir uppfærðir. Tillögunni fylgir minnisblað.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu með fjórum atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar.

Gestir

  • Jakob Sindri Þórsson sérfræðingur - mæting: 09:16

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2301093 - Skipulag velferðarsviðs

Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 16.01.2023, lagðar fram tillögur að breytingum á skipulagi velferðarsviðs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa framlagðri tillögu sviðsstjóra velferðarsviðs til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:30
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir, verkefnastjóri - mæting: 08:30

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2212113 - Digranesvegur 5 - Viðræður um kaup á fasteign

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram umsögn um möguleg kaup á fasteigninni Digranesvegi 5.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum, með vísan til minnisblaðs sviðsstjóra, að gera ekki tilboð að svo stöddu.

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.23011435 - Útboð - Grassláttur 2023-2026

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 16.01.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði grasslátt á opnum svæðum bæjarráðs, gatnaumhverfi og skólalóðum. Útboðið verður auglýst á EES svæðinu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til útboðs.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.2301129 - Sumarstörf 2023

Frá verkefnastjóra umhverfissviðs og mannauðsstjóra, dags. 06.01.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs að auglýsa laus til umsóknar sumarstörf hjá Kópavogsbæ fyrir 18 ára og eldri.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum heimild til auglýsingar sumarstarfa í samræmi við framlagðar reglur.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.22021024 - Geirland Sumarbústaðarlóð

Frá bæjarlögmanni, dag. 16.01.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að gera lóðarleigusamning í landi Geirlands við Suðurlandsveg.
Bæjarráð frestar erindinu.

Gestir

  • Ása A. Kristjánsdóttir bæjarlögmaður - mæting: 09:57

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.2207051 - Mánaðarskýrslur 2022

Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir nóvember 2022.
Lagt fram.

Gestir

  • Kristín Egilsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs - mæting: 10:14

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

8.2301215 - Vallakór 12-14, Handknattleiksfélag Kópavogs. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi

Frá lögfræðideild, dags 16.01.2023, lögð fram umsögn um umsókn

Frá lögfræðideild, dags. 16.01.2023, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 06.01.2023, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Handknattleikfélags Kópavogs, kt. 630981-0269, kt. 630981-0269, Vallarkór 12-14, um tímabundið áfengisleyfi og tækifærisleyfi til að mega halda þorrablót/dansleik þann 20. janúar 2023 frá kl. 18:30-02:00, í íþróttahúsinu Kórnum, að Vallakór 12-14, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um og veitir jákvæða umsögn.

Ýmis erindi

9.2301319 - Gjaldskrá Úrvinnslusjóðs fyrir greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar

Frá Úrvinnslusjóði, dags. 11.01.2023, lögð fram gjaldskrá fyrir greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar á umbúðum úr pappír, pappa, gleri, málm og plasti, sbr. 10. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.Fyrirhugað er að halda kynningarfund um greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar 24. janúar n.k.
Lagt fram.

Ýmis erindi

10.2212563 - Marbakkabraut 17A. Tilkynning um tjón á fasteign vegna vatnsleka

Frá Sylvíu Ingibergsdóttur, dags. 14.01.2023, lagt fram erindi þar sem lögð er fram krafa um viðurkenningu á tjóni vegna rofs á kaldavatnslögn á Kársnesi.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar bæjarlögmanns.

Gestir

  • Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar - mæting: 10:35
  • Ása A. Kirstjánsdóttir bæjrlögmaður - mæting: 10:35

Ýmis erindi

11.23011598 - Bókun 549. fundar stjórnar SSH. 6 mánaða skýrsla Betri samgangna

Frá SSH, dags. 17.01.2023, lögð fram 6 mánaða skýrsla Betri samgangna.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.2301006F - Íþróttaráð - 127. fundur frá 11.01.2023

Fundargerð í sex liðum
Lagt fram
  • 12.6 2210817 SÍK - Erindi frá SÍK varðandi málefni Samstarfsvettvangsins
    Lagður fram til kynningar viðaukasamningur við Samstarfssamning milli Kópavogsbæjar og SÍK. Niðurstaða Íþróttaráð - 127 Íþróttaráð samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leiti og vísar honum til bæjarráðs. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

13.2301007F - Jafnréttis- og mannréttindaráð - 92. fundur frá 11.01.2023

Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.2212019F - Skipulagsráð - 135. fundur frá 16.01.2023

Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
  • 14.7 2208095 Boðaþing 5-13. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi Boðaþings 5-13
    Í breytingunni felst að innri byggingarreitur fyrir Boðaþing nr. 11 og nr. 13 breytist og færist fjær Boðaþingi 1-3. Gert er ráð fyri aðkomu þjónustubíla á norðurhluta lóðarinnar (sjúkra- sorp og matarbíla) með nýjum einbreiðum akvegi 3,5 til 4 m. á breidd sem liggur frá núverandi bílastæðum að nýjum þjónustuinngangi austan núverandi þjónustukjarna.
    Rökin fyrir umræddri breytingu liggja í ósk lóðarhafa um betra innra fyrirkomulag fyrirhugaðra bygginga til hagsbóta fyrir íbúa Boðaþings og til að auka vinnuhagræðingu hjá starfsfólki þar sem minni fjarlægð verður milli heimiliseininga.
    Aðkoma og lega bílastæða breytist.
    Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag samþykkt í bæjarstjórn 24. ágúst 2006 m.s.br. samþykkt 12. apríl 2016 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 26. apríl 2016.
    Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var afgreiðslu frestað.
    Á fundi skipulagsráðs 5. september 2022 var samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Á fundi bæjarstjórnar 13. septmber 2022 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest.
    Kynningartíma lauk 4. nóvember 2022.
    Á fundi skipulagsráðs 14. nóvember 2022 voru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma. Afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
    Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. janúar 2023 ásamt breyttri tillögu dags. 12. janúar 2023 þar sem komið er til móts við sjónarmið í framkomnum athugasemdum. Lega aðkomuvegar og núverandi bílastæða færist til suðurs fjær Boðaþingi 1-3, umferð um þjónustuveg verður aðgangsstýrð og merkt er inn á uppdrátt staðsetning smáhýsis/geymsluskúrs á lóð.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 135 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 12. janúar 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 14.8 2212629 Gilsbakki. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram umsókn lóðarhafa dags. 22. desember 2022 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vatnsendablettur Gilsbakki. Í breytingunni felst að komið verði fyrir nýjum byggingarreit að stærð 16.5 x 8.35m á norðvesturhluta lóðarinnar fyrir stakstætt aukahús, alls 107 m². Á lóðinni er fyrir einbýlishús 175,7 m² að flatarmáli og vinnuskúr. Vinnuskúrinn verður fjarlægður.
    Byggingarmagn á lóðinni er 175,5 m², verður 282,4 m². Nýtingarhlutfall er 0,06, verður 0,09.
    Uppdráttur í mkv. 1:2000, 1:1000 og 1:200 dags. 29. desember 2022 og aðaluppdrættir í mkv. 1:100 dags. 14. desember 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 135 Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 14.9 2211265 Baugakór 10. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju umsókn Magnúsar Aðalmundssonar arkitekts f.h. lóðarhafa dags. 7. nóvember 2022 um breytingu á deiliskipulagi. Stækkun byggingarreits sem nemur stærð svala efri hæðar 34,3 m². Ekki gert ráð fyrir að breyta samþykktu útliti lokunar. Breytingin snýr að nýtingu svalalokunar, að svalalokun verði upphitað rými, sólskáli (A-rými). Sólskálinn verði full glerjaður með möguleika til opnunar til suðurs. Samþykki meðeigenda liggur fyrir.
    Meðfylgjandi: Kynningaruppdráttur dags. 19. september 2022.
    Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Baugakórs 8, 10 og 12.
    Kynningartíma lauk 6. janúar 2023, engar athugasemdir bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 135 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 14.13 22115501 Grenigrund 8. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
    Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 25. nóvember 2022, vegna umsóknar K.R. arkitekta f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi.
    Á lóðinni er fjölbýlishús á þremur hæðum byggt árið 1958. Ekki er í gildi deiliskipulag á lóðinni. Í breytingunni felst viðbygging á einni hæð við vesturhlið hússins, 8,3 m² að flatarmáli. Byggingarmagn eyskt úr 386 m² í 394,3 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,38 í 0,39. Samþykki meðeigenda liggur fyrir.
    Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100 dags. 14. september 2022.
    Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2023 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Grenigrundar 2A, 2B, 4, 6 og 10.
    Kynningartíma lauk 13. janúar 2023, engar athugasemdir bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 135 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

15.2301003F - Velferðarráð - 112. fundur frá 09.01.2023

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16.23011416 - Fundargerð 475. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 09.12.2022

Fundargerð 475. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 09.12.2022.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17.23011592 - Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 20.12.2023

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 20.12.2023.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18.23011591 - Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 13.12.2022

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 13.12.2022.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19.23011589 - Fundargerð 549. fundar stjórnar SSH frá 09.01.2023

Fundargerð 549. fundar stjórnar SSH frá 09.01.2023.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

20.2301009F - Menntaráð - 107. fundur frá 17.01.2023

Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

21.2301012F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 360. fundur frá 13.01.2023

Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 11:23.