Bæjarráð

3213. fundur 23. apríl 2025 kl. 12:30 - 15:55 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Indriði Ingi Stefánsson vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.25041992 - Ráðning áhættu- og fjárstýringarstjóra

Frá hæfnisnefnd, lögð fram tillaga að ráðningu ásamt rökstuðningi.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 12:45 vegna vanhæfis undir þessum lið.

Gestir véku af fundi kl. 13:01

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Sigríður Þorgeirsdóttir sérfræðingur hjá Attentus - mæting: 12:45
  • Sigríður Þrúður Stefánsdóttir mannauðsstjóri - mæting: 12:45

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.25041993 - Ráðning umbóta- og þróunarstjóra

Frá hæfnisnefnd, lögð fram tillaga að ráðningu ásamt rökstuðningi.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir tók sæti að nýju kl.13:28 undir þessum lið.

Gestir véku af fundi kl. 13:44

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Sigríður Þorgeirsdóttir sérfræðingur hjá Attentus - mæting: 13:28
  • Sigríður Þrúður Stefánsdóttir mannauðsstjóri - mæting: 13:28

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.24121552 - Ársreikningur Kópavogsbæjar 2024

Lögð fram drög að endurskoðunarskýrslu ársreiknings fyrir árið 2024, ásamt uppfærðum drögum að ársreikningi Kópavogsbæjar og tengdum félögum.
Lagt fram og kynnt.

Gestir véku af fundi kl. 14:40.

Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 14:40.

Bókun:
"Undirritaður telur framlögð gögn gefa góða mynd af stöðu mála og þakkar kynninguna, það engu að síður óhjákvæmilegt að gera athugasemd við að hafa ekki fengið tímanlega aðgang að gögnum málsins til að geta undirbúið sig fyrir umræður um það. "

Indriði I. Stefánsson

Gestir

  • Davíð Arnar Einarsson endurskoðandi Grant Thornton - mæting: 13:50
  • Ingólfur Arnarson skrifstofa áhættu- og fjárstýringar - mæting: 13:50
  • Sif Jónsdóttir, endurskoðandi Grant Thornton - mæting: 13:50

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2206319 - Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2022-2026

Lagður fram viðauki við ráðningarsamning um starf bæjarstjóra.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.2504208 - Beiðni formanns bæjarráðs varðandi þóknanir bæjarfulltrúa Kópavogsbæjar árið 2024

Frá skrifstofu áhættu og fjárstýringar, lögð fram umsögn dags. 21.04.2025 ásamt yfirliti yfir þóknanir bæjarfulltrúa, ráðs- og nefndarfulltrúa Kópavogsbæjar fyrir árið 2024.
Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.25031723 - Gjaldskrár 2025

Frá menntasviði, lögð fram til samþykktar bæjarráðs uppfærð gjaldskrá varðandi tekjutengda afslætti á dvalargjöldum leikskóla ásamt reglum. Bæjarráð tók málið fyrir á fundi sínum þann 10.04.2025 og frestaði því.
Bæjarráð vísar framlagðri tillögu að breytingu á tekjuviðmiðum vegna tekjutengdra afslátta, dags. 7. apríl 2025 og reglum um tekjutengda afslætti á dvalargjöldum leikskóla, dags. 7. apríl 2025 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.25041402 - Sumarnámskeið 2025 - gjaldskrár

Frá menntasviði, lögð fram til samþyktar bæjarráðs tillögur að breytingum á gjaldskrá sumarstarfa.
Bæjarráð vísar framlögðum breytingum á gjaldskrá sumarnámskeiða til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

8.25042097 - Afmælis og tónlistarhátíð í Kópavogi

Frá Kópbois ehf., Paxal ehf. og Vinum hallarinnar ehf., lagt fram erindi þar lýst er yfir áhuga á að halda afmælis- og tónlistarhátíð í Kópavogi í júlí 2025. Samhliða lögð fram umsögn menntasviðs.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Ýmis erindi

9.25041297 - Ósk um upplýsingar um fjárhagsleg áhrif nýgerðra kjarasamninga við kennara

Frá Innviðaráðuneyti, dags. 08.04.2025, lögð fram fyrirspurn varðandi fjárhagslega áhrif kjarasamninga.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Ýmis erindi

10.2504532 - Fyrirspurn Landssamtaka Þroskahjálpar og ÖBÍ varðandi endurskoðun gjaldskrár fyrir fatlað fólk

Frá Þroskjahjálp, dags. 03.04.2024, lagt fram erindi þar sem óskað er upplýsinga um hverjar fyrirætlanir sveitarfélagsins eru varðandi endurskoðun á gjaldskrá vegna akstursþjónustu sveitarfélagsins fyrir fatlað fólk og hvenær ætla megi að endurskoðuð gjaldskrá taki gildi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Ýmis erindi

11.25041454 - Til umsagnar 271. mál - Stefnur og aðgerðaráætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðarmála

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.dags. 10.04.2025, lagt fram til umsagnar 271. mál. Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun).
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar yfirlögfræðings.

Ýmis erindi

12.25041764 - Til umsagnar 272. mál - Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 14.04.2025 sendir fram til umsagnar 272. mál. Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum).



Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar yfirlögfræðings.

Ýmis erindi

13.25042082 - Aðalfundur betri samgangna ohf 2025

Frá Betri samgöngum ohf., dags. 16.04.2025, lögð fram dagskrá aðalfundar sem haldinn verður 30.04.2025.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.2504011F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 416. fundur frá 11.04.2025

Fundargerð í tíu liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

15.2504006F - Menningar- og mannlífsnefnd - 4. fundur frá 09.04.2025

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16.2504004F - Innkaupanefnd - 1. fundur frá 14.04.2025

Fundargerð í sex liðum.
Bæjarráð frestar fundargerðinni til næsta fundar.

Fundargerðir nefnda

17.25041304 - Fundargerð 973. fundar stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga frá 14.03.2025

Fundargerð frá 14.03.2025.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18.25041306 - Fundargerð 974. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 19.03.2025

Fundargerð frá 19.03.2025.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19.25041307 - Fundargerð 975. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.03.2025

Fundargerð frá 20.03.2025.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

20.25041680 - Fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 04.04.2025

Fundargerð frá 04.04.2025
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

21.25041321 - Fundargerð 270. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 21.03.2025

Fundargerð frá 21.03.2025.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 15:55.