Dagskrá
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
1.25043179 - Jarðskjálftavá á höfuðborgarsvæðinu - kynning frá almannavörnum
Kynning almannavarna á jarðskjálftavá á höfuðborgarsvæðinu.
Gestir
- Ívar Schram, sérfræðingur hjá almannavarnarnefnd - mæting: 08:15
- Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisin - mæting: 08:15
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
2.25043652 - Þjónustuaukning 2025. Kynning frá Strætó
Kynning á fyrirhugaðri þjónustuaukningu Strætó bs.
Gestir
- Jónas Bjarnason sérfræðingur leiðarkerfa - mæting: 09:10
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
3.25051385 - Mælaborð mannauðs
Kynning á mælaborði mannauðs.
Gestir
- Sigríður Þrúður Stefánsdóttir mannauðsstjóri - mæting: 09:31
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
4.25032173 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
Frá bæjarritara, lögfræðiþjónustu, dags. 20.05.2025, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa frá 20.03.2025.
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
5.2505588 - Erindi frá fyrrverandi persónuverndarfulltrúa Kópavogsbæjar
Á fundi bæjarráðs þann 08.05.2025 var lagt fram erindi frá fyrrverandi persónuverndarfulltrúa Kópavogsbæjar. Bæjarráð fól bæjarritara að taka saman upplýsingar er lúta að fyrirkomulagi starfs persónuverndarfulltrúa, ásamt svari við athugasemdum fyrrverandi persónuverndarfulltrúa. Nú lagt fram frá bæjarritara minnisblað þar fram koma umbeðnar upplýsingar.
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
6.2505395 - Viðhorfskönnun til foreldra varðandi íþróttaiðkun barna
Lagt fram minnisblað frá deildarstjóra íþróttadeildar varðandi samráð við fulltrúa í lýðheilsu- og íþróttanefnd í tengslum við viðhorfskönnun til foreldra varðandi íþróttaiðkun barna. Bæjarráð óskaði eftir minnisblaði á fundi sínum 08.0.2025.
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
7.25041424 - Úthlutun lóða Hlíðarhvarf 6-8 - Veðsetning
Frá yfirlögfræðingi. Beiðni lóðarhafa um heimild til að veðsetja lóðirnar Hlíðarhvarf 6-8 og Hallahvarf 6-8.
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
8.25042580 - Úthlutun lóða Hlíðarhvarf 13 - Veðsetning
Frá yfirlögfræðingi. Beiðni lóðarhafa um heimild til veðsetningar lóðarinnar Hlíðarhvarfs 13.
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
9.25052263 - Úthlutun lóða Heiðarhvarf 1-3.
Frá yfirlögfræðingi, tillaga að úthlutun lóðanna Heiðarhvarfs 1-3 til Fagmóts ehf.
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
10.25052264 - Úthlutun lóða Heiðarhvarf 9-11
Frá yfirlögfræðingi, tillaga um úthlutun lóðanna Heiðarhvarfs 9-11 til Fagmóts ehf.
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
11.25041007 - Útboð lóðar undir atvinnuhúsnæði. Urðarhvarf 12
Frá yfirlögfræðingi. Lagðir fram endurbættir skilmálar að úthlutun lóðarinnar Urðarhvarfs 12 til samþykktar bæjarráðs.
Ýmis erindi
12.25051813 - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja)
Frá innviðaráðuneytinu, dags. 14.05.2025. lagt fram erindi þar sem vakin er athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
Ýmis erindi
13.25051814 - Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
Frá innviðaráðuneytinu, lagt fram til erindi þar sem vakin er athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
Ýmis erindi
14.25051810 - Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál
Frá atvinnuveganefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál.
Ýmis erindi
15.25051840 - Frá aðalfundi Kvenfélagasambands Kópavogs 14.05.2025
Frá Kvenfélagasambandi Kópavogs, dags. 14.05.2025, lögð fram skýrsla orlofsnefndar Kópavogs og ársreikningur vegna starfsársins 2024.
Ýmis erindi
16.25013006 - Beiðni um afgreiðslu vegna endurfjármögnunar láns
Frá Sorpu bs. dags. 28.04.2025 (barst Kópavogsbæ 20.05.2025), lögð fram beiðni um samþykki vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna endurfjármögnunar, auk samþykki fyrir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna uppbyggingar endurvinnslustöðvar að Lambhagavegi 14.
Fundargerðir nefnda
17.2505015F - Menntaráð - 144. fundur frá 20.05.2025
Fundargerðir nefnda
18.2504014F - Menningar- og mannlífsnefnd - 5. fundur frá 14.05.2025
Fundargerðir nefnda
19.2505013F - Innkaupanefnd - 4. fundur frá 19.05.2025
Fundargerðir nefnda
20.2505001F - Skipulags- og umhverfisráð - 8. fundur frá 19.05.2025
Fundargerð í átta liðum.
20.3
2410796
Fannborgarreitur. Byggingaráform.
Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 8
Fundarhlé kl. 17:58, fundi framhaldið kl. 19:05.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð drög að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025. Afgreitt með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Andra Steins Hilmarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Leós Snæs Péturssonar.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Fyrirhuguð afgreiðsla málsins fer ekki saman við bókanir minni- og meirihluta ráðsins við mál 2410796 frá 17. mars 2025 sem gerðu ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila þegar byggingaráform lægju fyrir. Nú liggja áformin fyrir og til stendur að vísa til bæjarstjórnar til samþykktar en kynningarfundir hafa ekki enn verið haldnir. Standa ætti við bókanir frá 17. mars 2025 og halda fundina áður en málinu er vísað til bæjarstjórnar.“
Indriði Ingi Stefánsson, Leó Snær Pétursson, Helga Jónsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir.
Bókun:
„Lögð verður áhersla á góða kynningu gagnvart íbúum á svæðinu í kring og öðrum hagaðilum eins og segir í bókun meirihlutans frá 17. mars. Þar ávarpaði meirihlutinn að ekki væri tilefni til að halda upplýsingafund fyrr en byggingaráform lægju fyrir, en reikna má með því að þau verði samþykkt og liggi fyrir eftir næsta fund bæjarstjórnar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Bókun:
„Byggingaráform sem nú eru kynnt fyrir Fannborgarreit og Traðarreit vestur eru staðfesting á því hversu krefjandi deiliskipulag reitanna er í uppbyggingu. Byggingaráformin eru ekki tæk til afgreiðslu því enn hefur ekki tekist að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra á byggingartíma. Ekkert samráð hefur verið við íbúa í nágrenni uppbyggingarinnar sem verða fyrir dæmafáu raski á uppbyggingartíma. Ekkert samráð hefur heldur verið við hagsmunaaðila, eins og kirkjuna og menningarstofnanirnar, sem munu búa við að bílastæðum í grenndinni fækkar um marga tugi á uppbyggingartímanum. Verst er þó að ekkert hefur verið rætt við íbúa í Fannborg 1-9 en einu lausnirnar sem lagðar eru til fyrir aðgengi hreyfihamlaðra íbúa í húsunum og til að tryggja brunavarnir byggjast á samkomulagi við þá.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.
Bókun:
„Mjög hefur verið vandað til undirbúnings þessa verkefnis enda er gengið lengra en skipulagslög kveða á um með því að taka byggingaráformin til umfjöllunar hjá ráðinu. Umrædd byggingaráform sem við höfum fengið til umfjöllunar samræmast deiliskipulagi. Ekki er hægt að ráðast í jafn umfangsmikla uppbyggingu og er framundan á Fannborgarreit og Traðarreit vestur öðruvísi en að eitthvað rask verði á framkvæmdatíma. Kópavogsbær hefur lagt ríka áherslu á að slíkt rask verði lágmarkað eins og kostur er og að tryggð verði vönduð upplýsingagjöf til íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Í ljósi upptalningar minnihlutans á meintum ágöllum byggingaráformanna er meirihlutanum skylt að koma því á framfæri að framkvæmdaaðila er gert að uppfylla ströng skilyrði fyrir aðkomu- og merkingaráætlun og sýna fram á að þeim sé mætt. Öðruvísi fæst ekki útgefið byggingarleyfi á framkvæmdina.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Bókun:
„Í þeim gögnum sem liggja fyrir þessum fundi eru skilyrði fyrir aðgengi hreyfihamlaða ekki uppfyllt.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.
Bókun:
„Byggingarfulltrúi mun ekki samþykkja byggingaráform nema lögum og skilyrðum sé fullnægt.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Niðurstaða
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
20.4
2502435
Traðareitur vestari. Byggingaráform.

20.7
25041263
Auðbrekka 7. Breytt deiliskipulag.
Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 8
Samþykkt með tilvísun í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Niðurstaða
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
20.8
2112910
Vatnsendablettur 241A. Breytt deiliskipulag.
Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 8
Samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Niðurstaða
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fundargerðir nefnda
21.2504019F - Ungmennaráð - 52. fundur frá 28.04.2025
Fundargerð í tveimur liðum.
Fundargerðir nefnda
22.25052223 - Fundargerð 606. fundar stjórnar SSH frá 05.05.2025
Fundargerð 606. fundar stjórnar SSH frá 05.05.2025.
Fundargerðir nefnda
23.25052341 - Fundargerð 52. eigendafundar stjórnar Strætó frá 14.05.2025
Fundargerð 52. eigendafundar stjórnar Strætó frá 14.05.2025.
Fundargerðir nefnda
24.25052395 - Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16.05.2025
Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16.05.2025
Erindi frá bæjarfulltrúum
25.25052244 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur varðandi aðstöðu fyrir hunda í Kópavogi
Frá bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur, lögð fram fyrirspurn varðandi aðstöðu fyrir hunda í Kópavogi. Samhliða lögð fram umsögn frá umhverfissviði.
Erindi frá bæjarfulltrúum
26.25052394 - Beiðni bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, um umsögn á skýrslu sem lögð var fram á 3. fundi innkaupanefndar
Frá bæjarfulltrúum Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, dags. 20.05.2025, lögð fram beiðni um umsögn fyrrverandi sviðsstjóra fjármálsviðs á skýrslu Strategíu.
Erindi frá bæjarfulltrúum
27.25052398 - Beiðni bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, um upplýsingar varðandi starfslokasaminga sem Kópavogsbær hefur gert frá upphafi kjörtímabils
Frá bæjarfulltrúum Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, dags.20.05.2025, lögð fram beiðni um upplýsingar varðandi starfslokasaminga sem Kópavogsbær hefur gert frá upphafi kjörtímabils.
Erindi frá bæjarfulltrúum
28.25052413 - Tillaga frá bæjarfulltrúum Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, um að stöðva samning um kaup á Kjarna, launa- og mannauðskerfi
Frá bæjarfulltrúum Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, dags. 20.05.2025, lögð fram tillaga um að stöðva samning um kaup á Kjarna, launa- og mannauðskerfi.
Fundi slitið - kl. 12:19.
Gestir véku af fundi kl. 9:08