Bæjarráð

3244. fundur 29. janúar 2026 kl. 08:15 - 11:16 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.25112715 - Ósk bæjarfulltrúa Theódóru Þorsteinsdóttur eftir upplýsingum er varða byggingu Barnaskóla Kársness

Frá umhverfissviði, dags. 27.01.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi byggingu Barnaskóla Kársness.
Erindi frá bæjarfulltrúum undir máli nr. 11 og 12 eru rædd og afgreidd undir þessum dagskrárlið.

Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl.9.48.

Framhald umræðu vísað til næsta fundar bæjarráðs.

Gestir

  • Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður - mæting: 08:15
  • Ármann Halldórasson deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 08:15
  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfisviðs - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.26011425 - Viðbrögð við niðurstöðu ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs.

Frá SSH. dags. 16.01.2026, lagðar fram niðurstöður ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs. Niðurstaða Stefnuráðs byggðasamlaganna fellst fyrir sitt leyti á að fyrirliggjandi tillögum verði vísað til afgreiðslu aðildarsveitarfélaganna. Á grundvelli ofangreinds er farið fram á að meðfylgjandi tillaga um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., sem nánar er lýst í fylgiskjali 2, verði tekin til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélagsins.
Kynning og umræður.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:05

Gestir viku af fundi kl. 10.51

Bæjarráð vísar tillögu um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., Líf ehf. og Lok ehf., til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri Sorpu - mæting: 09:52
  • Haraldur Flosi Tryggvason fulltrúi í vinnuhópi Sorpu - mæting: 09:52

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2209119 - Flutningur Sorpu af Dalvegi 1

Frá bæjarstjóra, dags. 27.01.2026, lögð fram tillaga að framlengingu á uppsögn leigusamnings Sorpu Dalvegi til 31.12.2026.
Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum framlagða tillögu um framlengingu þjónustu Sorpu á Dalvegi 1 til 31.12.2026.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2601347 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um grænkerafæði í leikskólum

Frá menntasviði, dags. 26.01.2026, lagt fram svar við fyrirspurn um grænkerafæði í leikskólum.
Lagt fram og umræður.

Bæjarráð vísar erindinu að nýju til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Bókun:
"Undirrituð óskar eftir að spurningum sínum sé svarað í samræmi við efni þeirra."

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Ýmis erindi

5.26011922 - Til umsagnar 322. mál - Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 322. mál. Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030.
Vísað til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs.

Fundargerðir nefnda

6.2601015F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 435. fundur frá 16.01.2026

Fundargerð í 23 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

7.2601011F - Innkaupanefnd - 12. fundur frá 19.01.2026

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

8.26011750 - Fundargerð 55. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.01.2026

Fundargerð 55. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.01.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

9.26011788 - Fundargerð 621. fundar stjórnar SSH frá 19.01.2026

Fundargerð 621. fundar stjórnar SSH frá 19.01.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10.26011786 - Fundargerð 13. fundar stefnuráðs frá 07.11.2025

Fundargerð 13. fundar stefnuráðs frá 07.11.2025.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

11.26012213 - Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur eftir að mánaðarskýrslur fyrir byggingu Barnaskóla Kársness fyrir árið 2025 og fyrir janúar 2026 komi á dagskrá bæjarráðs

Frá bæjarfulltrúa Viðreisnar, lögð fram beiðni um að fá mánaðarskýrslur fyrir byggingu Barnaskóla Kársness fyrir árið 2025 og fyrir janúar 2026 á dagskrá bæjarráðs.
Lagt fram og umræða sameinuð máli nr. 1 á dagskrá (25112715)

Erindi frá bæjarfulltrúum

12.26012600 - Beiðni bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur um uppplýsingar um málefni Barnaskóla Kársness

Frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, lögð fram beiðni um að fá upplýsingar um málefni Barnaskóla Kársness á dagskrá bæjarráðs.
Lagt fram og umræða sameinuð máli nr. 1 á dagskrá (25112715)

Fundi slitið - kl. 11:16.