Bæjarráð

2662. fundur 15. nóvember 2012 kl. 08:15 - 10:15 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundinn sátu:
  • Rannveig H Ásgeirsdóttir formaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson aðalfulltrúi
  • Guðríður Arnardóttir aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1211101 - Tónlistarsafn Íslands. Samningur um ráðstöfun styrktar-/rekstrarframlags í fjárlögum vegna starfsemi

Frá bæjarstjóra, dags. 14. nóvember, drög að erindi til mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi framlengingu á samningi um Tónlistarsafnið, mál sem frestað var í bæjarráði 8. nóvember sl.

Lagt fram.

 

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð bendir á  að Kópavogsbær er í vaxandi mæli að taka að sér rekstur Tónlistarsafns Íslands. Skv. lögum á ríkið að bera ábyrgð á geymslu fjölda þeirra gagna sem falla undir safnið.  Ég dreg verulega í efa kosti þess að Kópavogsbær beri ábyrgð á  safninu og leggi í það fé skattgreiðenda Kópavogs.

Guðríður Arnardóttir"

 

Ómar Stefánsson tekur undir bókun Guðríðar Arnardóttur.

2.1211102 - Aukið aðgengi almennings að gögnum.

Frá bæjarritara, dags. 14. nóvember, umsögn um aukið aðgengi að gögnum, sem óskað var eftir í bæjarráði 8. nóvember sl.

Lagt fram.

 

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirritaður þakkar greinargerð bæjarritara um aðgengi að gögnum . Ég hefði kosið að til prufu hefði a.m.k. hluti af gögnum, s.s. eins og í aðalskipulagsgerð og umhverfismálum og framkvæmdaþáttum þar sem ekki er um persónuleg gögn að ræða verið gerður aðgengilegri.

Ólafur Þór Gunnarsson"

 

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Aðalskipulagsgögn eru öll kynnt á heimasíðu bæjarins.

Ómar Stefánsson"

3.1211054 - Fyrirspurn um hvort hægt sé að leggja göngustíg hjá Vífilsstaðavegi

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 12. nóvember, umsögn um erindi sem vísað var til umhverfis- og samgöngunefndar á fundi bæjarráðs þann 8. nóv. sl. Erindið varðar hluta Vífilsstaðavegar í Garðabæ, en ekki er gert ráð fyrir göngustíg við veginn í aðalskipulagi Garðabæjar.

Lagt fram.

4.1211187 - Beiðni um launað námsleyfi

Frá flokksstjóra í garðyrkjudeild, dags. 31. október, óskað eftir launuðu námsleyfi frá 7. janúar til 10. maí 2013.

Bæjarráð vísar erindinu til starfsmannastjóra og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.

5.1210301 - Rekstur sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. Úttekt KPMG

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri, og Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri, mættu til fundar til að gera grein fyrir skýrslu KPMG um úttekt á rekstri sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.

6.1211126 - Óskað umsagnar um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs.

Frá nefndasviði Alþingis, dags. 8. nóvember, óskað umsagnar um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs (hlutverk Reykjavíkurflugvallar, heildarlög), 120. mál.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.

7.1211218 - Áríðandi tilkynning varðandi gildi deiliskipulags sem birt hefur verið í Stjórnartíðindum 2011-2012

Frá Skipulagsstofnun, dags. 9. nóvember, tilkynning varðandi gildi deiliskipulags sem birt hefur verið í Stjórnartíðindum 2011-2012.

Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsstjóra til úrvinnslu.

8.1211111 - Markavegur 1. Athugasemdir við efndir Kópavogsbæjar á skuldbindingum vegna lóðarinnar. Beiðni um gög

Frá Rökstólum ehf., dags. 7. nóvember,óskað eftir afstöðu Kópavogsbæjar varðandi Markaveg 1.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.

9.1211183 - Sótt um leyfi fyrir flugeldasölu

Frá flugeldanefnd Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, dags. 12. nóvember, óskað eftir aðstöðu fyrir flugeldasöluskúr við Versali frá 23. desember 2012 til 5. janúar 2013.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

10.1211133 - Óskað eftir stuðningi við Snorraverkefnið sumarið 2013

Frá verkefnisstjóra Snorraverkefnisins, dags. 8. nóvember, þar sem óskað er eftir styrk fyrir verkefni sumarsins 2013.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.

11.1211192 - Styrkbeiðni frá Nýsköpunarkeppni grunnskólanema

Frá Nýsköpunarkeppni grunnskólanema, dags. 13. nóvember, ósk um styrk upp í kostnað við keppnina.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.

12.1211207 - Skíðaspor í Fossvogsdal. Óskað eftir samstarfi við Kópavogsbæ

Frá skíðagöngufélaginu Ulli, dags. 11. nóvember, hugmyndir um hugsanlega lagningu skíðaspors.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til úrvinnslu.

13.1211204 - Þjónustukönnun á endurvinnslustöðvunum 2012

Lagt fram.

14.1211236 - Vefsíða Samkóps

Erindi frá Samkóp, þar sem óskað er eftir að Kópavogsbær hýsi vefsíðu Samkóps.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.

15.1211237 - Vinna við fjárhagsáætlun. Fyrirspurn frá Hjálmari Hjálmarssyni

Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Hvernig var samstarfi meirihluta bæjarstjórnar við fagráð og nefndir háttað við gerð fjárhagsáætlunar? Hvernig var samstarfi meirihluta bæjarstjórnar við hverfisráð háttað við gerð fjárhagsáætlunar? Skriflegt svar óskast.

Hjálmar Hjálmarsson"

16.1211238 - Samanburður á vatnsgjaldi í Garðabæ og Kópavogi. Fyrirspurn frá Guðríði Arnardóttur

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Undirrituð óskar eftir sundurliðuðum samanburði á vatnsgjaldi í Garðabæ og Kópavogi.  Óskað er eftir samanteknum kostnaði við Vatnsveitu Kópavogs.   Jafnframt er óskað eftir samanburði á rúmmetraverði á vatni frá Orkuveitu Reykjavíkur annarsvegar  til þeirra sveitarfélaga sem versla við OR og hins vegar rúmmetraverði á því vatni sem Kópavogur selur Garðabæ.

Guðríður Arnardóttir"

17.1211239 - Þátttöku fjárlagagerð. Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni.

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarráð Kópavogs samþykkir að fela fjármálastjóra að meta kosti þess og galla að bærinn taki upp í einhverjum mæli til reynslu s.k. þátttökufjárlaga gerð (e. Participatory budgeting).

Greinargerð

Þátttöku fjárlagagerð hefur nú rutt sér mjög til rúms sem tæki til að virkja íbúa í ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Slíkt hefur m.a. verið reynt í nokkrum hverfum New York og víðar í BNA, auk þess sem Porto Alegre í Brasilíu hefur verið brautryðjandi í þessum efnum. Full ástæða er til að skoða þessi mál einkum í samhengi við ákvarðanir um framkvæmdir og fjármagn til þeirra, en einnig m.t.t. rekstraþátta sem skipta íbúana miklu máli og ekki flokkast undir lögbundin verkefni.

Ólafur Þór Gunnarsson"

Rannveig Ásgeirsdóttir tekur undir tillögu Ólafs Þórs.

Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.

18.1211240 - Samkomulag við fyrrverandi bæjarstjóra. Fyrirspurn frá Hjálmari Hjálmarssyni.

Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Hver er staða mála varðandi samkomulag við fyrrverandi bæjarstjóra um starfslok og nýtt sviðstjórastarf? Sbr. fundargerð bæjarráðs frá 23.2.2012.

Hjálmar Hjálmarsson"

19.1211241 - Styrkbeiðni frá Höndinni. Fyrirspurn frá Hjálmari Hjálmarssyni

Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Spurst fyrir um styrkbeiðni frá Höndinni sbr. fundargerð bæjarráðs frá 18.10 2012: Styrktarbeiðni fyrir Höndina, mannúðar- og mannræktarsamtök  Frá Höndinni, dags. 15. október, óskað eftir styrk til starfsemi félagsins.

Hjálmar Hjálmarsson"

 

20.1211008 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa, 13. nóvember

63. fundur

Bæjarráð staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa.

21.1211009 - Framkvæmdaráð, 14. nóvember

41. fundur

Lagt fram.

22.1208297 - Álmakór 23. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Evu Hlín Dereksdóttur kt. 070777-5849 og Ágúst Torfa Haukssyni kt. 310574-4499 verði úthlutað lóðinni Álmakór 23.

Bæjarráð samþykkir að gefa Evu Hlín Dereksdóttur, kt. 070777-5849 og Ágúst Torfa Haukssyni, kt. 310574-4499 kost á byggingarrétti á lóðinni Álmakór 23.

23.1211130 - Álmakór 17a og 17b, framsal lóðaréttinda.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Kristjáni G. Leifssyni kt. 230873-5699 verði heimilað að framselja lóðarréttindi Álmakór 17a til Ingvars Hafsteins S. Hreinssonar kt. 090776-4879.

Bæjarráð samþykkir að heimila Kristjáni G. Leifssyni, kt. 230873-5699 að framselja byggingarrétti á lóðinni Álmakór 17a til Ingvars Hafsteins S. Hreinssonar, kt. 090776-4879.

24.1211039 - Austurkór 105. Umsókn byggingarfélagsins Boga ehf. um lóð

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Byggingarfélaginu Boga ehf., kt. 600100-2620 verði úthlutað lóðinni Austurkór 105.

Bæjarráð samþykkir að gefa Byggingarfélaginu Boga ehf., kt. 600100-2620, kost á byggingarrétti á lóðinni Austurkór 105.

25.1211038 - Austurkór 107. Umsókn byggingarfélagsins Boga ehf. um lóð

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Byggingarfélaginu Boga ehf., kt. 600100-2620 verði úthlutað lóðinni Austurkór 107.

Bæjarráð samþykkir að gefa Byggingarfélaginu Boga ehf., kt. 600100-2620, kost á byggingarrétti á lóðinni Austurkór 107.

26.1210493 - Landsendi 29. Umsókn um lóð undir hesthús

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Pétri Bergþór Arasyni kt. 270770-4879 verði úthlutað lóðinni Landsendi 29.

Bæjarráð samþykkir að gefa Pétri Bergþór Arasyni, kt. 270770-4879 , kost á byggingarrétti á lóðinni Landsendi 29.

27.1211171 - Austurkór, 55, 57, 59 og 61. Umsókn Sóltúns ehf. um lóð.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Sóltúni ehf. kt. 610808-0690 verði úthlutað lóðinni Austurkór 55, 57, 59 og 61.

Bæjarráð samþykkir að gefa Sóltúni ehf., kt. 610808-0690, kost á byggingarrétti á lóðunum Austurkór 55, 57, 59 og 61.

28.1211172 - Austurkór 43, 45, 47, 47a. Umsókn um lóðir afturkölluð.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að orðið verði við beiðni Sóltúns ehf. kt. 610808-0690 um að draga til baka umsókn um lóðirnar Austurkór 43, 45, 47 og 47a. Sbr. umfjöllun um umsókn um lóðina Austurkór 55, 57, 59 og 61.

Bæjarráð samþykkir að heimila Sóltúni ehf., kt. 610808-0690, að draga til baka umsókn um lóðirnar Austurkór 43, 45, 47 og 47a, og fá í þeirra stað úthlutað byggingarrétti á lóðunum Austurkór 55, 57, 59 og 61.

29.1201288 - Stjórnarfundur Strætó bs. 26. október

Lögð fram minnisblöð sem fjallað var um á fundi stjórnar Strætó bs. þann 26. október sl., sbr. lið 2, 3 og 4 í fundargerð 175.

Lagt fram.

30.1211066 - Kópavogstún 3,5,7 og 9. Beiðni um framsal lóða.

Lögð fram beiðni Jóhanns Árnasonar, f.h. Sunnuhlíðar, dags. 5. nóvember 2012 um heimild til framsals lóðarleiguréttinda að Kópavogstúni 3, 5, 7 og 9, til Jáverks ehf., ásamt beiðni um heimild til veðsetningar lóðanna til handa framsalshafa. Jafnframt lagt fram minnisblað bæjarlögmanns og fjármálastjóra, dags. 5. nóvember 2012, um beiðni Sunnuhlíðar. Bæjarstjórn samþykkti að vísa afgreiðslu málsins til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

Bæjarráð samþykkir umbeðið framsal lóðaleiguréttinda að Kópavogstúni 3, 5, 7 og 9 með þeim skilyrðum að kvaðir verði á lóðunum um uppbyggingu fyrir eldri borgara í samstarfi og eftir hugmyndafræði Sunnuhlíðar. Aukinheldur samþykkir bæjarráð veðheimild til handa Jáverki ehf. vegna kaupa á nefndum lóðum.

Fundi slitið - kl. 10:15.