Bæjarstjórn

1113. fundur 24. mars 2015 kl. 16:00 í bæjarstjórnarsal
Fundinn sátu:
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1503539 - Fundargerðir nefnda. Afgreiðsla bæjarstjórnar 24. mars 2015.

Lagðar fram fundargerðir bæjarráðs frá 12. og 19. mars 2015, aðalfundar SSH frá 24. október 2014, byggingarfulltrúa frá 12. mars 2015, eigendafundar Strætó frá 6. mars, félagsmálaráðs frá 16. mars, forsætisnefndar frá 13. og 19. mars, leikskólanefndar frá 12. mars, lista- og menningarráðs frá 12. mars, skipulagsnefndar frá 16. mars, skólanefndar MK frá 10. mars, samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 3. mars, stjórnar SSH frá 9. febrúar og 2. og 6. mars, stjórnar Strætó frá 13. mars og svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 27. febrúar.
Lagt fram.

2.1503006 - Bæjarráð, dags. 12. mars 2015.

2766. fundur bæjarráðs í 15. liðum.
Lagt fram.

Karen Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun vegna málefna fatlaðs fólks:
"Undirrituð lýsir yfir áhyggjum af þeirri stöðu sem málefni fatlaðra er komin í skv. bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga þann 27. febrúar 2015. Þar er ítrekað að ekki sé til næg fjármögnun til að standa undir útgjöldum við þjónustu við fatlað fólk að óbreyttu. Það er grundvallarforsenda fyrir áframhaldandi nauðsynlegri þjónustu við fatlaða einstaklinga og fjölskyldur þeirra að sveitafélögin fái 1,33% í stað 1,2% af tekjuskatti ríkisins yfir í útsvar.
Það er áríðandi að útkoma endurmatsins og samningaviðræðna á grundvelli þess liggi fyrir sem fyrst til að draga úr óvissu sem skapast hefur í málaflokknum vegna vanfjármögnunar hans. Samtakamáttur sveitafélaganna skiptir hér öllu máli.
Karen Elísabet Halldórsdóttir "

3.1503012 - Bæjarráð, dags. 19. mars 2015.

2767. fundur bæjarráðs í 34. liðum.
Lagt fram.

4.1312426 - Austurkór 63, símahús og mastur.

Lagt fram erindi Fjarskipta hf,. Skútuvogi 2, 104 Reykjavík dags. 26.2.2015 þar sem óskað er eftir heimild skipulagsnefndar til uppsetningar fjarskiptabúnaðar á húsinu Austurkór 63. Jafnfram lagt fram erindi Víglundar Þorsteinssonar, fh. húsfélags Austurkórs 63, dags. 3.2.2015. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

5.1412225 - Austurkór 89. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju erindi Steinars Jónssonar dags. 9.12.2014 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Austurkórs 89. Á fundi skipulagsnefndar 16.2.2015 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Erindi lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 16.3.2015. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna ásamt umsögn dags. 16.3.2015 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum.

Birkir Jón Jónsson vék af fundi undir þessum lið.

6.1306637 - Borgarholt, bílastæði.

Lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttri aðkomu að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

7.1210126 - Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Breytt deiliskipulag

Lögð fram breytt tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi Breiðahvarfs 4 og Funahvarfs 3, dags. 16.3.2015. Á fundi skipulagsnefndar 19.1.2015 var málinu frestað. Lagður fram uppfærður deiliskipulagsuppdráttur fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3, sbr. ofangreint. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með áorðnum breytingum ásamt umsögn dags. 16.3.2015 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi, Ólafur Þór Gunnarsson, greiddi ekki atkvæði.

8.1503348 - Dalaþing 7. Umsókn um lóð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 16. mars, lögð fram umsókn Skollakopps ehf., kt. 421211-0940 um lóðina Dalaþing 7. Lagt til að bæjarráð mæli með við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun lóðarinnar til umsækjanda. Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að lóðinni Dalaþing 7 verði úthlutað til umsækjanda og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.

9.1503356 - Endurgreiðsluhlutfall Kópavogsbæjar 2015 vegna lífeyrisskuldbindinga Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópav

Frá framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga, dags. 26. febrúar, lagt fram bréf þar sem tilkynnt er um að stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar hafi samþykkt tillögu um að endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri vegna ársins 2015 verði lækkað niður í 57%. Máli vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi við grein 23.1 í samþykktum sjóðsins.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir að lækka endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri vegna ársins 2015 niður í 57% með 11 atkvæðum.

10.1403171 - Fornahvarf 3, settjörn.

Á fundi skipulagsnefndar 15.12.2014 var erindi um breytta staðsetningu settjarna við Fornahvarf samþykkt og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Erindið sem kemur til móts við innsendar athugasemdir lóðarhafa Fornahvarfs 3, er lagt fram að nýju til samþykktar ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.12.2014, samkomulagi milli lóðarhafa Fornahvarfs 3 og bæjaryfirvalda dags. 15.12.2014, minnisblaði verkfræðistofunnar Mannvits dags. 3. mars 2015 um flóðahættu, umsögn Fiskistofu dags. 3.3.2015 og breyttum deiliskipulagsuppdrætti "Vatnsendi - breytt deiliskipulag" dags. 19.5.1994 m.s.br. lagfærðum uppdrætti dags. 16.3.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu "Vatnsendi -Settjörn við Elliðavatnsstíflu" ásamt fylgigögnum og umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.12.2014 og deiliskipulagsuppdráttinn "Vatnsendi - breytt deiliskipulag" dags. 19.5.1994 m.s.br. dags. 16.3.2015. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

11.1502353 - Landspítalinn Kópavogstúni, húsnúmer.

Lögð fram tillaga skipulags- og bygggingardeildar að nýjum húsnúmerum fyrir Landspítala á Kópavogstúni. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu að húsnúmerum Landspítalans á Kópavogstúni. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagnefndar með 11 atkvæðum.

12.1503359 - Lundur. Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu holræsislagnar.

Lagt fram erindi Konráðs Jóns Sigurðssonar tæknifræðings, f.h. Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., dags. 10.3.2015 þar sem óskað er eftir heimild skipulagsnefndar til að hefja framkvæmd við lagningu skólplagnar undir Hafnarfjarðarveg, sbr. uppdráttum dags. 2.10.2014. Samþykkt af skipulagsnefnd og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

13.1502167 - Rjúpnahæð: opin svæði, stígar og sparkvöllur.

Lögð fram og kynnt tillaga umhverfissviðs að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

14.1410344 - Smalaholt, leiksvæði.

Lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttri staðsetningu leiksvæðis í Smalaholti. Í gildandi deiliskipulagi er leiksvæði staðsett milli Örvasala 28 og Öldusala 8. Í tillögu er gert ráð fyrir að leiksvæði verði í skóglendi suðvestanmegin við byggðina. Göngustígur verður milli Örvasala 4 og 6, sbr. teikningum dags. 6.2.2015. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

15.1501305 - Vallakór gatnagerð 2015.

Óskað eftir að heimild skipulagsnefndar fyrir gatnagerð við Vallakór. Samþykkt af skipulagsnefnd og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

16.1501297 - Vallhólmi 12. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram að nýju erindi Vektors ehf., f.h. lóðarhafa dags. 10.12.2014. Í erindi er óskað eftir að byggja 27,1 m2 sólskála á suðurhlið hússins og 38,9 m2 svalir við vestur- og norðurhliðina, sbr. uppdráttum dags. 10.12.2014. Á fundi skipulagsnefndar var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vallhólma 10 og 14.
Lagt fram að nýju ásamt samþykki lóðarhafa Vallhólma 10 og 14 fyrir kynntum breytingum dags. 24. og 25.2.2015. Skipulagsnefnd taldi framlagða tillögu ekki varða hagsmuni annara en lóðarhafa, sveitarfélagsins og þeirra er veita samþykki sitt. Skipulagsnefnd samþykkti því tillöguna með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

17.1502349 - Vatnsendaskóli - Íþróttahús

Lögð fram tillaga umhverfissviðs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:250 dags. 5.1.2015. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi, Pétur Hrafn Sigurðsson, greiddi ekki atkvæði.

18.1503489 - Aðalfundur SSH 2014, dags. 24. október 2014.

38. aðalfundur SSH í 10. liðum.
Lagt fram.

19.1503010 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa, dags. 12. mars 2015.

147. fundur afgreiðslna byggingarfulltrúa í 10. liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

20.1501347 - Fundargerðir eigendafunda Strætó bs., dags. 6. mars 2015.

Sameiginlegur fundur eigenda og stjórnar Strætó í 4. liðum.
Lagt fram.

21.1503011 - Félagsmálaráð, dags. 16. mars 2015.

1388. fundur félagsmálaráðs í 7. liðum.
Lagt fram.

22.1503018 - Forsætisnefnd, dags. 13. mars 2015.

42. fundur forsætisnefndar í 2. liðum.
Lagt fram.

23.1503021 - Forsætisnefnd, dags. 19. mars 2015.

43. fundur forsætisnefndar í 1. lið.
Lagt fram.

24.1503004 - Leikskólanefnd, dags. 12. mars 2015.

56. fundur leikskólanefndar í 13. liðum.
Lagt fram.

25.1503009 - Lista- og menningarráð, dags. 12. mars 2015.

39. fundur lista- og menningarráðs í 36. liðum.
Lagt fram.

26.1503002 - Skipulagsnefnd, dags. 16. mars 2015.

1255. fundur skipulagsnefndar í 27. liðum.
Lagt fram.

27.1501328 - Fundargerðir skólanefndar MK, dags. 10. mars 2015.

11. fundur skólanefndar MK í 4. liðum.
Lagt fram.

28.1501344 - Fundargerðir stjórnar Skíðasvæða hbsv., dags. 3. mars 2015.

343. fundur samstarfsnefndar skíðasvæða hbvs. í 6. liðum.
Lagt fram.

29.1501341 - Fundargerðir stjórnar SSH, dags. 9. febrúar 2015.

411. fundur stjórnar SSH í 6. liðum.
Lagt fram.

30.1501341 - Fundargerðir stjórnar SSH, dags. 2. mars 2015.

412. fundur stjórnar SSH í 5. liðum.
Lagt fram.

31.1501341 - Fundargerðir stjórnar SSH, dags. 6. mars 2015.

413. fundur stjórnar SSH í 3. liðum.
Lagt fram.

32.1501346 - Fundargerðir stjórnar Strætó bs., dags. 13. mars 2015.

214. fundur stjórnar Strætó bs. í 9. liðum.
Lagt fram.

33.1501351 - Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar hbsv., dags. 27. febrúar 2015.

55. fundur svæðisskipulagsnefndar í 4. liðum.
Lagt fram.

34.1406248 - Kosningar í leikskólanefnd

Kosning varamanns í leikskólanefnd.
Af B-lista.
Margrét Sigmundsdóttir kjörin varamaður í leikskólanefnd í stað Sigurbjargar Vilmundardóttur.

Fundi slitið.