Bæjarstjórn

1053. fundur 28. febrúar 2012 kl. 16:00 - 18:00 í bæjarstjórnarsal
Fundinn sátu:
  • Margrét Björnsdóttir forseti
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Gunnar Ingi Birgisson aðalfulltrúi
  • Aðalsteinn Jónsson 1. varaforseti
  • Rannveig H Ásgeirsdóttir aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson aðalfulltrúi
  • Guðríður Arnardóttir aðalfulltrúi
  • Hafsteinn Karlsson aðalfulltrúi
  • Pétur Ólafsson aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson aðalfulltrúi
  • Páll Magnússon bæjarritari
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir varafulltrúi
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1202011 - Bæjarráð 16/2

2630. fundur

Til máls tóku Ólafur Þór Gunnarsson um liði 3, 5 og 8, Hjálmar Hjálmarsson um liði 3, 5, (hlé var gert á fundi kl. 16:15 og var fram haldið kl. 16:16) og 10 og lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Undirritaður leggur til að aðgangur barna 10 ára og yngri í Sundlaugar Kópavogs verði gjaldfrjáls.

Hjálmar Hjálmarsson"

Vísaði Hjálmar Hjálmarsson í greinargerð um tillöguna í fundargerð bæjarráðs frá 16. febrúar sl.

Þá tóku til máls Hafsteinn Karlsson um lið 5, Guðríður Arnardóttir um liði 22 og 5, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um liði 10 og 5, Hafsteinn Karlsson um lið 5 og Guðríður Arnardóttir um stjórn fundarins. Þá tók til máls Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um stjórn fundarins. Þá tóku til máls Hjálmar Hjálmarsson um liði 10, 5 og 19, Ólafur Þór Gunnarsson um liði 10, 22 og 5, og Hjálmar Hjálmarsson um stjórn fundarins. Þá tóku til máls Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um liði 10 og 5, Guðríður Arnardóttir um liði 5, 19, og 22 og lagði til að lið 5 yrði vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs. Þá tóku til máls Ómar Stefánsson um lið 5 og Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 22. Þá óskaði Guðríður Arnardóttir eftir því að bera af sér sakir.

Hlé var gert á fundi kl. 18:08.  Fundi var fram haldið kl. 18:10.

Tillaga Hjálmars Hjálmarssonar um aðgang 10 ára og yngri að sundlaugum var lögð fyrir fundinn og var óskað eftir nafnakalli. Atkvæði féllu þannig:

Hafsteinn Karlsson sagði já

Hjálmar Hjálmarsson sagði já

Ólafur Þór Gunnarsson gerði grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi bókun og sagði já:

"Rök Hjálmars Hjálmarssonar fyrir tillögu sinni eru sannfærandi og vel rökstudd og leiða ekki til kostnaðarauka fyrir sveitarfélagið."

Ómar Stefánsson sagði nei

Pétur Ólafsson greiddi ekki atkvæði

Rannveig Ásgeirsdóttir sagði nei

Aðalsteinn Jónsson sagði nei

Ármann Kr. Ólafsson sagði nei

Guðríður Arnardóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi bókun og greiddi ekki atkvæði:

"Tillögur sem þessar hafa áhrif á fjárhagsáætlun og því mun ég taka afstöðu til málsins við gerð næstu fjárhagsáætlunar"

Gunnar Ingi Birgisson sagði nei og

Margrét Björnsdóttir sagði nei

Tillagan var felld með sex atkvæðum en þrír greiddu atkvæði með henni og tveir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.

Ólafur Þór Gunnarsson og Guðríður Arnardóttir tóku til máls um stjórn fundarins.

Tillaga Guðríðar Arnardóttur um að vísa samningi við fyrrverandi bæjarstjóra um starfslok til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs var felld með sex atkvæðum en fimm greiddu atkvæði með henni.

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

2.1202015 - Bæjarráð 23/2

2631. fundur

Hlé var gert á fundi kl. 18:16.  Fundi var fram haldið kl. 18:36.

Til máls tók Hafsteinn Karlsson um lið 17 og lagði fram eftirfarandi breytingartillögur að starfslokasamkomulagi við fyrrverandi bæjarstjóra:

"Leggjum til að samkomulagið breytist á þann veg að í stað þess að greiða GP út orlofsinneign frá árinu 2007 sem fá fordæmi eru fyrir og hefur í för með sér kostnaðarauka upp á tæpar 6 milljónir taki hún út sitt orlof að loknu veikindaleyfi en að því loknu hefjist biðlaunataka.

Jafnframt skuli 4 grein falla út sem fjallar um fyrirhugað starf GP hjá Kópavogsbæ, staða sem hefur enn ekki verið stofnuð eða útfærð.

Nánar:

Breyting á 2. grein:

-málsliður 1. málsgreinar fellur út.  

-málsliður 2. málsgreinar hljóði svo:  Setningin ?þar með talið hækkunar á þingfararkaupi sem átti sér stað í október 2011" falli út.

-Síðasta málsgrein 2. greinar falli út.

Breyting á 3. grein:

-Seinni málsliður 3. greinar falli út sem hljóðar svo ?Einnig áunnið óuppgert orlof" og í staðinn komi:  Við lok veikindaleyfis hefst orlofstaka GP og að því loknu tekur biðlaunaréttur við.

4. gr. falli út.

Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson, Pétur Ólafsson, Ólafur Þór Gunnarsson"

Þá tók Guðríður Arnardóttir til máls um stjórn fundarins. Til máls tóku Ólafur Þór Gunnarsson um liði 13 og 17, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um liði 13 og 17, Guðríður Arnardóttir um liði 17, 13, 23, 25 og 29 og Aðalsteinn Jónsson um liði 23 og 13.

Hlé var gert á fundi kl. 19:17.  Fundi var fram haldið kl. 19:51.

Kl. 19.51 vék Gunnar Ingi Birgisson af fundi og tók Karen Halldórsdóttir sæti hans.

Til máls tóku Hjálmar Hjálmarsson um liði 13 og 19, Pétur Ólafsson um lið 19, Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 19, Guðríður Arnardóttir um lið 19, Aðalsteinn Jónsson um lið 19, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um lið 19, Pétur Ólafsson um lið 19, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um stjórn fundarins, Pétur Ólafsson, sem óskaði eftir að bera af sér sakir, Hjálmar Hjálmarsson um lið 19, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, sem óskaði eftir að bera af sér sakir, Hjálmar Hjálmarsson, sem óskaði eftir að bera af sér sakir, Ómar Stefánsson, sem óskaði eftir að bera af sér sakir, Guðríður Arnardóttir, sem óskaði eftir að bera af sér sakir, Hjálmar Hjálmarsson, sem óskaði eftir að bera af sér sakir, Hafsteinn Karlsson um liði 19, 36 og 39, Ólafur Þór Gunnarsson um liði 17 og 19, Guðríður Arnardóttir, sem óskaði eftir að bera af sér sakir, Ólafur Þór Gunnarsson um stjórn fundarins, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, um lið 17

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

3.1201278 - Rekstur skíðasvæðisins í Skálafelli.

Mál sem ágreiningur var um í bæjarráði 23/2, sbr. lið 13 í fundargerð (liður 1 í fundargerð stjórnar skíðasvæðanna 13/2)

Óskað var eftir nafnakalli. Atkvæði féllu þannig:

Hafsteinn Karlsson sagði nei og vísaði til bókunar fulltrúa Kópavogsbæjar í stjórn skíðasvæðanna

Hjálmar Hjálmarsson gerði grein fyrir atkvæði sínu og sagði já

Ólafur Þór Gunnarsson  sagði nei og vísaði til bókunar fulltrúa Kópavogsbæjar í stjórn skíðasvæðanna

Ómar Stefánsson sagði já

Pétur Ólafsson sagði nei

Rannveig Ásgeirsdóttir sagði já

Aðalsteinn Jónsson sagði já

Ármann Kr. Ólafsson sagði já

Guðríður Arnardóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi bókun og sagði nei:

"Ég vísa til bókunar fulltrúa Kópavogsbæjar í stjórn skíðasvæðanna og ítreka mikilvægi þess að staðið sé við fjárhagsáætlun 2012."

Karen Halldórsdóttir sagði já og

Margrét Björnsdóttir sagði já.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með sjö atkvæðum en fjórir greiddu atkvæði gegn.

Guðríður Arnardóttir og Ármann Kr. Ólafsson tóku til máls um stjórn fundarins.

4.1202489 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins

Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá.

Bæjarstjórn staðfestir einróma breytingar á gjaldskrá slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem samþykktar voru í bæjarráði 23/2.

5.1202341 - Starfslok bæjarstjóra

Afgreiðslu starfslokasamnings bæjarstjóra vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar, sbr. lið 17 í fundargerð bæjarráðs 23/2.

Breytingartillaga bæjarfulltrúa Samfylkingar og VG felld með sex fimm atkvæðum en fimm greiddu atkvæði með henni.

Forseti bar undir fundinn tillögu að samkomulagi um starfslok við fyrrverandi bæjarstjóra og var óskað eftir nafnakalli. Atkvæði féllu þannig:

Ármann Kr. Ólafsson sagði já

Guðríður Arnardóttir sagði nei

Karen Halldórsdóttir sagði já

Hafsteinn Karlsson gerði grein fyrir atkvæði sínu og vísaði til breytingartillagna bæjarfulltrúa Samfylkingar og VG og sagði nei

Hjálmar Hjálmarsson sagði nei

Ólafur Þór Gunnarsson gerði grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi bókun og greiddi ekki atkvæði:

"Samkomulag það sem liggur fyrir bæjarstjórn í dag um "starfslok" Guðrúnar Pálsdóttur er að mínu mati illa unnið og ónákvæmt. Spurningum minnihlutans um gerð þess hefur verið svarað með "ekki svörum" eða alls ekki, og ábendingum ekki tekið. Launakjör eru hækkuð frá ráðningarsamningi sem er í mínum huga afar undarlegt og bærinn verður því fyrir kostnaðarauka sem nemur fleiri milljónum króna. Biðlaunaréttur lengist um 6 mánuði að því er best verður séð sem er umfram það sem gert var ráð fyrir í fyrri samningi. Blandað er saman samningi um starfslok og væntanlega ráðningu í starf sem liggur ekki fyrir hvernig verður háttað. Mótsagnir í samkomulaginu eru einnig augljósar, t.a.m. í sambandi við orlofsrétt útgreiðslu orlofs, og áframhaldandi ráðningarsamband og biðlaun. Þá eru í samningnum upplýsingar sem eiga alls ekki heima í ráðningarsamningi. Réttarstaða sveitarfélagsins er einnig óljós sérstaklega ef ekki verður af ráðningu í haust og einnig ef ekki verður búið að stofna starfið. Það fordæmi sem skapast með þessu samkomulagi gagnvart starfslokum og orlofsuppgjöri annarra starfsmanna er einnig mjög varhugavert og á skjön við það sem áður hefur tíðkast. Undirritaður getur ekki tekið ábyrgð á þessu samkomulagi."

Ómar Stefánsson greiddi ekki atkvæði

Pétur Ólafsson sagði nei

Rannveig Ásgeirsdóttir sagði já

Aðalsteinn Jónsson gerði grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi bókun og sagði já:

"Fyrir hönd meirihlutans legg ég fram eftirfarandi bókun:

Smkomulagið grundvallast á þeim ráðningarsamningi sem í gildi var milli þáverandi meirihluta og bæjarstjóra."

Margrét Björnsdóttir sagði já.

Samkomulag um starfslok fyrrverandi bæjarstjóra var samþykkt með fimm atkvæðum gegn fjórum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.

6.1202008 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 14/2

35. fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa án umræðu.

7.1202012 - Félagsmálaráð 21/2

1324. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

8.1201026 - Framkvæmdaráð 1/2

23. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

9.1202014 - Framkvæmdaráð 22/2

24. fundur

Ólafur Þór Gunnarsson tók til máls undir lið 3.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

10.1202450 - Hamraendi 21. Lóðarumsókn.

Framkvæmdaráð leggur til að Valdísi Önnu Garðarsdóttur, Marel Einarssyni og Heimi Hrafni Garðarssyni verði úthlutað lóðinni Hamraenda 21.

Bæjarstjórn samþykkir einróma að úthluta Valdísi Önnu Garðarsdóttur, kt. 230575-4529, Marel Einarssyni, kt. 240743-4939 og Heimi Hrafni Garðarssyni, kt. 041083-5819 lóðinni að Hamraenda 21.

11.1202013 - Menningar- og þróunarráð 21/2

18. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

12.1202010 - Skipulagsnefnd 21/2

1205. fundur

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

13.1201109 - Austurkór 74, breytt deiliskipulag

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs einróma og samþykkir erindið.

14.1111452 - Huldubraut 15, umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs einróma og samþykkir erindið.

15.1202321 - Austurkór 78. Rými í kjallara.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs einróma og samþykkir erindið.

16.1202318 - Austurkór 88-92. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs einróma og hafnar erindinu.

17.1201261 - Stjórn skíðasvæða hbsv. 13/2

322. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

18.1201286 - Stjórn Slökkviliðs hbsv. 17/2

109. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

19.1201285 - Stjórn SSH 9/1

373. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

20.1201285 - Stjórn SSH 6/2

374. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

21.1201381 - 3ja ára fjárhagsáætlun 2013-2015 - seinni umræða

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir 3ja ára fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árin 2013 - 2015 og lagði til að hún yrði samþykkt.

Þá tóku til máls Guðríður Arnardóttir, Ómar Stefánsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Guðríður Arnardóttir, Ómar Stefánsson, Aðalsteinn Jónsson, Rannveig Ásgeirsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Guðríður Arnardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, og Guðríður Arnardóttir.

Hlé var gert á fundi kl. 22:36.  Fundi var fram kl. 22:41.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að fjárhagsáætlun 2013 - 2015 með 11 atkvæðum.

Fylgiskjal yfir sundurliðaðan stofnkostnað er ekki hluti af samþykktri áætlun og felur samþykkt áætlunar því ekki í sér að samþykkt hafi verið að ráðast í þær einstöku framkvæmdir sem þar eru áætlaðar.

22.708167 - Bæjarmálasamþykkt - fyrri umræða

Tillaga að breytingum á 57. grein samþykkta um stjórn Kópavogsbæjar fundarsköp bæjarstjórnar, vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn, sbr. lið 22 í fundargerð bæjarráðs 23/2.

Hlé var gert á fundi kl. 22:44.  Fundi var fram haldið kl. 22:46.

Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, og gerði grein fyrir tillögunni. Þá tóku til máls Hafsteinn Karlsson, Hjálmar Hjálmarsson, Guðríður Arnardóttir, Pétur Ólafsson, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, Ólafur Þór Gunnarsson og Guðríður Arnardóttir.

Hlé var gert á fundi kl. 23:34.  Fundi var fram haldið kl. 23:36.

Til máls tóku Guðríður Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, Guðríður Arnardóttir og Ómar Stefánsson.

Hlé var gert á fundi kl. 23:49.  Fundi var fram haldið kl. 23:55.

Forseti lagði til að tillögu að breytingum á samþykktum um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar yrði vísað til síðari umræðu. Var það samþykkt með sex atkvæðum gegn tveimur. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.

23.1006264 - Kosningar í almannavarnanefnd 2010 - 2014

Kosning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Til máls tók Ómar Stefánsson.

 

Kosningu frestað.

24.1103099 - Kosningar í barnaverndarnefnd 2011

Kosning fimm varamanna í barnaverndarnefnd, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Guðrún Sverrisdóttir

Hákon Jónsson

Sveinbjörn Strandberg

Af B-lista:

Hafsteinn Karlsson

Lára Jóna Þorsteinsdóttir

25.1006248 - Kosningar í félagsmálaráð 2010 - 2014

Kosning fimm varamanna í félagsmálaráð, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Bragi Thoroddsen

Karen Halldórsdóttir

Ólöf Pálína Úlfarsdóttir

Af B-lista:

Valgerður Guðjónsdóttir

Arnþór Sigurðsson

26.1103100 - Kosningar í forvarna- og frístundanefnd 2011

Kosning fimm varamanna í forvarna- og frístundanefnd, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Guðmundur Freyr Sveinsson

Jóhannes Hilmarsson

Ómar Stefánsson

Af B-lista:

Stefán Ólafsson

Helga Reinhardsdóttir

27.1010046 - Kosning í framkvæmdaráð 2010 - 2014

Kosning þriggja varamanna í framkvæmdaráð, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Rannveig Ásgeirsdóttir

Alexander Arnarson

Af B-lista:

Hafsteinn Karlsson

28.1006244 - Kosningar í hafnarstjórn 2010 - 2014

Kosning fimm varamanna í hafnarstjórn, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Birgir Ari Hilmarsson

Ómar Stefánsson

Aðalsteinn Jónsson

Af B-lista:

Erlendur Geirdal

Þorleifur Friðriksson

29.1006249 - Kosningar í heilbrigðisnefnd 2010 - 2014

Kosning tveggja varamanna í heilbrigðiseftirlitið, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Þórir Bergsson

Af B-lista:

Þór Ásgeirsson

30.1006265 - Kosningar í stjórn Héraðsskjalasafns 2010 - 2014

Kosning þriggja varamanna í stjórn Héraðsskjalasafns, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Hreiðar Oddsson

Ómar Stefánsson

Af B-lista:

Pétur Ólafsson

31.1103102 - Kosningar í íþróttaráð 2011

Kosning fimm varamanna í íþróttaráð, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Anna María Bjarnadóttir

Ragnheiður K. Guðmundsdóttir

Hjörtur Sveinsson

Af B-lista:

Tjörvi Dýrfjörð

Elvar Arnþórsson

Áheyrnarfulltrúi:

Vernharð Þorleifsson

32.1103101 - Kosningar í jafnréttis- og mannréttindaráð 2011

Kosning fimm varamanna í jafnréttis- og mannréttindaráð, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Eiríkur Ólafsson

Hjördís Johnson

Ómar Stefánsson

Af B-lista:

Kristín Sævarsdóttir

Einar Ólafsson

33.1006242 - Kosningar í kjörstjórnir - Alþingi 2010 - 2014

Kosning þriggja manna í undirkjörstjórn og jafnmargra til vara, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Una Björg Einarsdóttir

Snorri Tómasson

Af B-lista:

Dalla Ólafsdóttir

Varamenn:

Af A-lista:

Birna Bjarnadóttir

Helgi Þór Jónasson

Af B-lista:

Helgi Jóhannesson

34.1006243 - Kosningar í kjörstjórn 2010 - 2014

Kosning þriggja aðalmanna og jafnmargra til vara, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Aðalmenn:

Af A-lista:

Una Björg Einarsdóttir 

Snorri Tómasson

Af B-lista:

Dalla Ólafsdóttir

Varamenn:

Af A-lista:

Birna Bjarnadóttir

Helgi Þór Jónasson 

Af B-lista:

Helgi Jóhannesson

35.1006271 - Kosningar í leikskólanefnd 2010 - 2014

Kosning fimm varamanna í leikskólanefnd, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Héðinn Sveinbjörnsson

Sigurrós Þorgrímsdóttir

Ómar Stefánsson

Af B-lista:

Unnur Flóvenz

Signý Þórðardóttir

Áheyrnarfulltrúi:

Ásdís Jóhannesdóttir

36.1006258 - Kosningar í stjórn lífeyrissjóðs 2010 - 2014

Kosning tveggja fulltrúa og jafnmargra til vara, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu frestað.

37.1103103 - Kosningar í menningar- og þróunarráð 2011

Kosning sjö varamanna í menningar- og þróunarráð, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Guðmundur Freyr Sveinsson

Óttar Felix Hauksson

Margrét Björnsdóttir

Ómar Stefánsson

Af B-lista:

Sigrún Skaftadóttir

Helga Reinhardsdóttir

Hafsteinn Karlsson

38.1006289 - Tilnefning í skólanefnd MK 2010 - 2014

Tilnefning tveggja varamanna í skólanefnd MK, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Rafn Steingrímsson

Af B-lista:

Ýr Gunnlaugsdóttir

39.1006280 - Kosningar í stjórn Reykjanesfólkvangs 2010 - 2014

Kosning eins varamanns í stjórn Reykjanesfólkvangs, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlaut:

Matthías Björnsson

40.1008104 - Kosningar í samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.

Kosning tveggja varamanna í samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Jóhann Ísberg

Af B-lista:

Guðmundur Örn Jónsson

41.1006252 - Kosningar í skipulagsnefnd 2010 - 2014

Kosning fimm varamanna í skipulagsnefnd, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Hreiðar Oddsson

Viggó Hilmarsson

Ómar Stefánsson

Af B-lista:

Magnús Bjarnason

Hreggviður Norðdahl

42.1006262 - Kosningar í stjórn skíðasvæðanna 2010 - 2014

Kosning eins varamanns í stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðsins, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlaut:

Varafulltrúi:

Oddur B. Grímsson

43.1006253 - Kosningar í skólanefnd 2010 - 2014

Kosning fimm varamanna í skólanefnd, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu hlutu:

Varamenn:

Af A-lista:

Ómar Stefánsson

Ragnheiður Dagsdóttir

Una Björg Einarsdóttir

Af B-lista:

Jens Sigurðsson

Ólafur Þór Gunnarsson

44.1006263 - Kosningar í stjórn Tónlistarskóla Kópavogs 2010 - 2014

Kosning tveggja varamanna í stjórn Tónlistarskóla Kópavogs, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu frestað.

45.1103104 - Kosningar í umhverfis- og samgöngunefnd 2011

Kosning fimm varamanna í umhverfis- og samgöngunefnd, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2.

Kosningu frestað.

46.1006158 - Kjör fulltrúa á landsþing Samband íslenskra sveitarfélaga

Kosning 7 fulltrúa á landsþing Sambandsins, sem verður á Hótel Reykjavík Natura (Hótel Loftleiðum) þann 23. mars nk.

Kosnir voru:

Margrét Björnsdóttir kjörin varamaður Ármanns Kr. Ólafssonar.

Aðalsteinn Jónsson kjörinn varamaður Gunnars Inga Birgissonar.

Erla Karlsdóttir kjörin varamaður Hjálmar Hjálmarssonar.

Guðmundur Freyr Sveinsson kjörinn varamaður Rannveigar Ásgeirsdóttur

Una María Óskarsdóttir kjörin varamaður Ómars Stefánssonar

47.1202533 - Starfskjör bæjarstjóra

Frestað.

Í lok fundar var samþykkt að fela skrifurum og forseta frágang og undirritun fundargerðar.

Fundi slitið - kl. 18:00.