Bæjarstjórn

1040. fundur 28. júní 2011 kl. 16:00 - 18:00 í bæjarstjórnarsal
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1106011 - Bæjarráð 16/6

2599. fundur

Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson um liði 13, 18, 19 og 22, Ólafur Þór Gunnarsson um liði 13, 19 og 22, Gunnar Ingi Birgisson um liði 13, 19, 17 og 21, Ómar Stefánsson um liði 13, 19, 21 og 23, Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 13, Margrét Júlía Rafnsdóttir um lið 13, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 21, 22, 19 og 13, Tjörvi Dýrfjörð um lið 13, Ómar Stefánsson um lið 13, Ólafur Þór Gunnarsson um lið 13 og Ármann Kr. Ólafsson um lið 13.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

2.1105499 - Sérfræðiþjónusta á menntasviði

Mál sem ágreiningur var um í bæjarráði, 16/6, sbr. lið 13 í fundargerð.

Tillaga frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks:

""Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að lið 13, tillögu vegna sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla, verði vísað til bæjarráðs og afgreidd þar þegar afstaða skólastjóra liggur fyrir.

Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson, Margrét Björnsdóttir, Aðalsteinn Jónsson""

 

Tillagan var felld með sex atkvæðum en fimm greiddu atkvæði með henni.

 

Hlé var gert á fundi kl. 17.12. Fundi var fram haldið kl. 17.14.

 

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks:

""Bæjarstjórn samþykkir að bjóða út sérfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum. Í útboðinu verði tekið fram að hagstæðasta tilboði verði tekið ef viðunandi verð fæst.

Gunnar Ingi Birgisson, Margrét Björnsdóttir, Aðalsteinn Jónsson, Ármann Kr. Ólafsson""

 

Hlé var gert á fundi kl. 17.16. Fundi var fram haldið kl. 17.20.

 

Forseti bar undir fundinn fyrirliggjandi tillögu um breytingu á sérfræðiþjónustu á menntasviði, sem um var ágreiningur í fundargerð bæjarráðs. Tillagan var samþykkt með sex atkvæðum gegn fimm. Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks ekki borin upp þar sem fyrri tillaga var samþykkt.

 

 

3.1106017 - Bæjarráð 23/6

2600. fundur

Til máls tóku Ómar Stefánsson um liði 10 og 13 og vakti athygli á hugsanlegu vanhæfi sínu undir þessum lið, 14, 19 og 20, Gunnar Ingi Birgisson um liði 10, 12 og 13, Margrét Júlía Rafnsdóttir um liði 12, 10 og 9, Aðalsteinn Jónsson um liði 10 og 13 og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 13, 14, 20 og 10.

 

Kl. 18.08 vék Hjálmar Hjálmarsson af fundi og tók Erla Karlsdóttir sæti hans.

 

Þá tóku til máls Pétur Ólafsson um lið 14, Ómar Stefánsson, sem bar af sér sakir, Gunnar Ingi Birgisson um lið 12 og Ármann Kr. Ólafsson um lið 14 og 13.

 

Hlé var gert á fundi kl. 18.27. Fundi var fram haldið kl. 18.28.

 

Til máls tóku Margrét Júlía Rafnsdóttir um lið 12, Tjörvi Dýrfjörð um lið 12, Margrét Björnsdóttir um lið 9, 12, 13 og 7, Margrét Júlía Rafnsdóttir, sem var af sér sakir, og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um lið 13.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

4.1103134 - Umhverfisviðurkenningar 2011

Tilnefning um götu ársins, sem vísað var til bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs 23/6, sbr. lið 8 í fundargerð.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu um götu ársins einróma.

5.1001169 - Umhverfisstefna Kópavogs

Mál sem bæjarráð vísaði til bæjarstjórnar á fundi sínum 23/6, sbr. lið 9 í fundargerð.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að umhverfisstefnu með tíu samhljóða atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.

6.1106008 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 14/6

14. fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa án umræðu.

7.1106014 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 21/6

15. fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa án umræðu.

8.1106013 - Félagsmálaráð 21/6

1311. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

9.1105013 - Forvarna- og frístundanefnd 31/5

3. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

10.1105445 - Iðkendastyrkir tómstundafélaga 2011

Liður 6 í fundargerð forvarna- og frístundanefndar 31/5, óskað er eftir viðbótarframlagi að upphæð kr. 96.200,- til að jafnræðis sé gætt á milli tómstunda- og íþróttafélaga. Nefndin bendir einnig á að innan þessarar úthlutunar eru íþróttafélög. Forvarna- og frístundanefnd leggur til að fyrir fjárhagsáætlun 2012 verði iðkendastyrkjum úthlutað af einum sameiginlegum fjárhagslið.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu forvarna- og frístundanefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

11.1105122 - Iðkendastyrkur 2011 - KFUM og K

Liður 7 í fundargerð forvarna- og frístundanefndar 31/5, forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita KFUM og K iðkendastyrk að upphæð kr. 60.000,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs

Bæjarstjórn samþykkir tillögu forvarna- og frístundanefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

12.1104310 - Iðkendastyrkur 2011 - Skátafélagið Kópar

Liður 8 í fundargerð forvarna- og frístundanefndar 31/5, forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita Skátafélaginu Kópum iðkendastyrk að upphæð kr. 745.800,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu forvarna- og frístundanefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

13.1104313 - Iðkendastyrkur 2011 - Íþróttafélagið Ösp

Liður 9 í fundargerð forvarna- og frístundanefndar 31/5, forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita íþróttafélaginu Ösp iðkendastyrk að upphæð kr. 88.000,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu forvarna- og frístundanefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

14.1105076 - Iðkendastyrkur 2011 - HSSK

Liður 10 í fundargerð forvarna- og frístundanefndar 31/5, forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita HSSK iðkendastyrk að upphæð kr. 88.000,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu forvarna- og frístundanefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

15.1105009 - Iðkendastyrkir 2011 - Íþróttafélagið Glóð

Liður 11 í fundargerð forvarna- og frístundanefndar 31/5, forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita félaginu iðkendastyrk að upphæð kr. 45.000,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu forvarna- og frístundanefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

16.1105060 - Iðkendastyrkur 2011 - ÍFR

Liður 12 í fundargerð forvarna- og frístundanefndar 31/5, forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita ÍFR iðkendastyrk að upphæð kr. 19.800,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu forvarna- og frístundanefndar með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

17.1106015 - Íþróttaráð 22/6

5. fundur

Til máls tók Aðalsteinn Jónsson og lagði fram eftirfarandi tillögu:

""Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að leitað verði leiða til að nýta íþróttamannvirki bæjarins betur með tilliti til búsetu iðkenda.

Greinargerð:

Ekki hefur verið nægilega góð nýting á minni íþróttahúsum bæjarins. Æfingar íþróttafélaganna í knattspyrnu hafa farið fram í auknum mæli í knatthúsum bæjarins, sem hefur í för með sér aukinn akstur foreldra vítt og breytt um bæinn með tilheyrandi kostnaði. Með því að fjölga æfingatímum barna yngri en 12 ára í minni íþróttahúsunum má draga úr þessum kostnaði og fjölga tímum í knatthúsum til útleigu, sem lækkar á móti rekstrarkostnaði bæjarins með húsunum.

Aðalsteinn Jónsson""

 

Þá tók Rannveig Ásgeirsdóttir og lagði til að tillögu Aðalsteins Jónssonar yrði vísað til bæjarráðs til úrvinnslu.

 

Bæjarstjórn samþykkti einróma að vísa tillögu Aðalsteins Jónssonar til úrvinnslu bæjarráðs.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

18.1106010 - Menningar- og þróunarráð 15/6

7. fundur

Til máls tók Ármann Kr. Ólafsson og óskaði fært til bókar að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks taki undir bókun Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir lið 26. Þá tóku til máls Rannveig Ásgeirsdóttir um lið 26, Ólafur Þór Gunnarsson um lið 26, Erla Karlsdóttir um lið 26, Ómar Stefánsson um lið 26 og óskaði fært til bókar að hann taki undir bókun Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir þeim lið og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 26 og 25 og færði Theódóru Þorsteinsdóttur þakkir fyrir afhendingu á léninu visitkopavogur.is.

 

Hlé var gert á fundi kl. 19.08. Fundi var fram haldið kl. 19.09.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

19.1106007 - Skipulagsnefnd 14/6

1191. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

20.1101996 - Stjórn Sorpu 30/5

286. fundur

Ómar Stefánsson tók til máls um lið 1.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

21.1101878 - Stjórn Strætó bs. 3/6

156. fundur

Til máls tók Pétur Ólafsson um lið 1.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

22.1106005 - Umhverfis- og samgöngunefnd 20/6

5. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

23.1006240 - Kosning í bæjarráð

Kosningar skv. 57. gr. bæjarmálasamþykktar til eins árs, fimm fulltrúar sem aðalmenn svo og tvo áheyrnarfulltrúa og varamenn þeirra.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Guðríður Arnardóttir

Ólafur Þór Gunnarsson

Hjálmar Hjálmarsson

 

Af B-lista:

Ármann Kr. Ólafsson

Gunnar Ingi Birgisson

 

Áheyrnarfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn: Ómar Stefánsson og varamaður hans Una María Óskarsdóttir.

 

Áheyrnarfulltrúi fyrir Y-lista Kópavogsbúa: Rannveig Ásgeirsdóttir og varamaður hennar Guðmundur Freyr Sveinsson.

24.1006278 - Kosning forseta, varaforseta og skrifara

Kosning forseta, 1. og 2. varaforseta, tveggja skrifara og varamanna þeirra.

Rannveig Ásgeirsdóttir gerði tillögu um Hjálmar Hjálmarsson sem forseta.

 

Hjálmar Hjálmarsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar með sex samhljóða atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

 

Ólafur Þór Gunnarsson gerði tillögu um Hafstein Karlsson sem 1. varaforseta.

Hafsteinn Karlsson var kjörinn 1. varaforseti með sex samhljóða atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

 

Ólafur Þór Gunnarsson gerði tillögu um Rannveigu Ásgeirsdóttur sem 2. varaforseta.

Rannveig Ásgeirsdóttir var kjörin 2. varaforseti með sex samhljóða atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.

 

Kosning tveggja skrifara og jafnmargra til vara úr hópi bæjarfulltrúa:

 

Kosningu hlutu Pétur Ólafsson og Margrét Björnsdóttir og til vara Ólafur Þór Gunnarsson og Aðalsteinn Jónsson.

Fundi slitið - kl. 18:00.