Bæjarstjórn

1076. fundur 23. apríl 2013 kl. 17:00 - 19:00 í bæjarstjórnarsal
Fundinn sátu:
• Margrét Björnsdóttir forseti
• Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
• Gunnar Ingi Birgisson aðalfulltrúi
• Aðalsteinn Jónsson 1. varaforseti
• Rannveig H Ásgeirsdóttir aðalfulltrúi
• Guðríður Arnardóttir aðalfulltrúi
• Hafsteinn Karlsson aðalfulltrúi
• Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
• Páll Magnússon bæjarritari
• Una María Óskarsdóttir varafulltrúi
• Elfur Logadóttir varafulltrúi
• Erla Karlsdóttir varafulltrúi
• Arnþór Sigurðsson varafulltrúi
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá
Áður en gengið var til dagskrár minntist forseti Björns Þorsteinssonar, sem lést á líknardeild Landsspítalans 14. apríl sl. Björn Þorsteinson starfaði um árabil hjá Kópavogsbæ m.a. sem bæjarritari.

1.1301200 - Ársreikningur Kópavogsbæjar 2012

Lagður fram ársreikningur Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2012. Bæjarráð samþykkti ársreikning Kópavogsbæjar fyrir árið 2012 ásamt ársreikningi stofnana bæjarins samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2012 er undirritaður og er tilbúinn til endurskoðunar og til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreiknings Kópavogsbæjar, A og B hluta. Greindi hann frá rekstrarniðurstöðum og helstu frávikum. Þannig skýrði hann út sjóðsstreymi og niðurstöður Efnahagsreiknings. Einnig var lagður fram ársreikningur LSK til kynningar. Þá lagði bæjarstjóri til að ársreikningi Kópavogsbæjar yrði vísað til seinni umræðu.

Bæjarstjórn samþykkir með ellefu greiddum atkvæðum að vísa ársreikningi Kópavogsbæjar og stofnana hans til seinni umræðu.

2.1304359 - Fundargerðir nefnda. Afgreiðsla bæjarstjórnar.

Lagðar fram fundargerðir bæjarráðs frá 11. og 18. apríl, afgreiðslur byggingarfulltrúa frá 9. og 12. apríl, framkvæmdaráð frá 10. apríl, íþróttaráð frá 9. apríl, leikskólanefnd, frá 16. apríl, lista- og menningarráð frá 11. apríl, skipulagsnefnd frá 16. apríl, stjórn SSH frá 8. apríl, stjórnar skíðasvæðisins frá 25. mars og 4. apríl, stjórnar sorpu frá 8. apríl, stjórnar reykjanesfólkvangs frá 13. apríl, umhverfis- og samgöngunefndar frá 8. og 15. apríl.

3.1304009 - Bæjarráð, 11. apríl

2681. fundur.

Lagt fram.

4.1107040 - SSH-Eigendastefna fyrir Sorpu bs.

Lokadrög framtíðarhóps að eigendastefnu fyrir byggðasamlagið Sorpu bs., sbr. lið 2.a) í fundargerð stjórnar SSH frá 8. apríl. Vísað til aðildarfélaga til staðfestingar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir einróma drög að eigendastefnu fyrir Sorpu bs.

Kl. 18.55 vék Ólafur Þór Gunnarsson af fundi og tók Arnþór Sigurðsson sæti hans á fundinum.

5.1107040 - SSH-Eigendastefna Strætó bs.

Lokadrög framtíðarhóps að eigendastefnu fyrir byggðasamfélagið Strætó bs., sbr. lið 2. a) í fundargerð stjórnar SSH frá 8. apríl. Vísað til aðildarsveitarfélaga til staðfestingar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir einróma drög að eigendastefnu fyrir Strætó bs.

6.1107040 - SSH-Sóknaráætlun 2013 fyrir höfuðborgarsvæðið.

Samningur milli SSH og fjármálaráðuneytisins vegna fjármögnunar og framkvæmdar sóknaráætlunar 2013, sbr. lið 2.b) í fundargerð stjórnar SSH frá 8. apríl. Lögð fram verkefnatillaga framtíðarhóps og minnisblað fomanns framtíðarhópsins um verklag við framkvæmd verkefnatillögunnar.
Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir einróma samning um sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið.

7.1304016 - Bæjarráð, 18. apríl.

2682. fundur.

Lagt fram.

8.1302683 - Gnitakór 5. Breytt deiliskipulag

Skipulagsnefnd hafnar framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar tillögunni með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

9.1301684 - Álmakór 1, 3 og 5. Breytt deiliskipulag.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir tillöguna með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

10.1206417 - Aðalskipulag Mosfellsbæjar 2011-2030

Skipulagsnefnd staðfestir umsögn skipulagsstjóra. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með níu samhljóða atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.

11.1212238 - Oddfellowblettur við Hólmsárbrú, deiliskipulag.

Skipulagsnefnd hafnar framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar tillögunni með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

12.1106529 - Lindasmári 20, breytt notkun húsnæðis

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir tillöguna með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

13.1304209 - Þrúðsalir 2. Grindverk á lóðamörkum.

Skipulagsnefnd hafnar erindinu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

14.1104204 - Jórsalir 2, breytt deiliskipulag

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingadeildar. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar samhljóða með átta greiddum atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.

15.1304326 - Staðfesting á einfaldri ábyrgð.

Bæjarstjórn staðfestir að veðskuldabréf í eigu bæjarins, sem hann hefur eignast vegna úthlutunar á byggingarétti bera eins og hingað til, einfalda ábyrgð bæjarins og fellur ábyrgðin niður þegar fokheldisvottorð er gefið út vegna viðkomandi eignar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu tillögunnar til bæjarstjórnar á fundi sínum þann 18. apríl sl.

Kl. 19:07 vék Guðríður Arnardóttir af fundi.

16.1304324 - Ársreikningur Kópavogshafnar 2012

Lögð fram drög að ársreikningi Kópavogshafna 2012.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu samhljóða atkvæðum að vísa ársreikningi Kópavogshafnar til síðari umræðu.

17.1304021 - Bæjarráð, 19. apríl.

2683. fundur.

Lagt fram.

18.1304006 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa, 9. apríl.

78. fundur.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa.

19.1304013 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa, 12. apríl.

79. fundur.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa.

20.1304020 - Forsætisnefnd, 19. apríl.

7. fundur

Lagt fram.

21.1304008 - Forvarna- og frístundanefnd, 11. apríl.

16. fundur.

Lagt fram.

22.1304005 - Framkvæmdaráð, 10. apríl.

48. fundur.

Lagt fram.

Gunnar Ingi Birgisson lagði til að lið 5 í fundargerð framkvæmdaráðs verði vísað að nýju til framkvæmdaráðs.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu samhljóða atkvæðum tillögu Gunnars Inga Birgissonar.

23.1304078 - Hlíðarendi 16,umsókn um hesthúsalóð

Frá framkvæmdaráði, 10. apríl.
Borist hefur umsókn um lóðina Hlíðarendi 16 frá Jóhanni Tómasi Egilssyni, kt. 070371-4139 og Inga Svavarssyni, kt. 140588-3429. Umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna. Lagt er til við bæjarstjórn að umsækjendum verði úthlutað lóðinni Hlíðarendi 16.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

24.1304068 - Austurkór 155. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Frá framkvæmdaráði, 10. apríl.
Borist hefur umsókn um lóðina Austurkór 155 frá Arnari Hallssyni, kt.280972-5419 og Guðnýju Steinunni Jónsdóttur, kt. 171174-4659. Uppfylla umsækjendur skilyrði úthlutunarreglna. Lagt er til við bæjarstjórn að umsækjendum verði úthlutað lóðinni Austurkór 155.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

25.1303023 - Íþróttaráð, 9. apríl.

24. fundur.

Lagt fram.

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun vegna fundargerðar íþróttaráðs:

"Eftir að hafa skoðað talningar í íþróttahúsum Kópavogsbæjar, er ljóst að nýting nokkurra íþróttamannvirkja er ekki ásættanleg. Sérstaklega á þetta við um knatthúsið og tvöfaldan íþróttasal í Kórnum. Undirritaðir skora á íþróttaráð að skoða talningarnar með það í huga að nýta íþróttamannvirkin betur. Til dæmis væri hægt að verða við óska íþróttafélagsins Gerplu um tíma fyrir yngstu iðkendurna í öðrum íþróttahúsum. Einnig mætti auka útleigu í Kórnum. Þar er algjörlega óafsakanlegt að nýta ekki íþróttamannvirki Kópavogsbæjar betur en raun ber vitni.

Gunnar Ingi Birgisson

Aðalsteinn Jónsson"

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:

"Þær ályktanir sem bæjarfulltrúarnir Gunnar Ingi Birgisson og Aðalsteinn Jónsson draga að talningum í íþróttahúsum eru beinlínis rangar og einkennast af pólitískum ofsóknum gagnvart einu íþróttafélagi.

Ármann Kr. Ólafsson"

Una María Óskarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Áskorun um að bæjarstjórn Kópavogs hafi forgöngu um að hefja snjóframleiðslu á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins, þannig að aðstaða til skíðaiðkunar batni.

Una María Óskarsdóttir"

26.1304010 - Leikskólanefnd, 16. apríl.

37. fundur.

Lagt fram.

27.1304007 - Lista- og menningarráð, 11. apríl.

15. fundur.

Lagt fram.

28.1304001 - Skipulagsnefnd, 16. apríl.

1224. fundur.

Lagt fram.

29.1301027 - Stjórn Reykjanesfólkvangs 13. febrúar.

Lagt fram.

30.1301043 - Stjórn SSH 8. apríl.

388. fundur.

Lagt fram.

Erla Karlsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Tillaga að skoðun á endurvinnslu skólps á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt er til að fyrirhuguð staðsetning og áform um gasgerðarstöð á vegum Sorpu b.s. verði skoðuð betur með tilliti til nýtingar skólps til metangasframleiðslu í gegnum fráveitukerfi höfðuborgarsvæðissins. Lagt er til að tillaga þessi verði tekin til umfjöllunar á vettvangi stjórnar SSH.

Erla Karlsdóttir"

Bæjarstjórn samþykkir tillögu Erlu Karlsdóttur með níu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

31.1301048 - Stjórn skíðasvæða hbsv., 25. mars

329. fundur.

Lagt fram.

32.1301048 - Stjórn síðasvæða hbsvþ. 4. apríl.

330. fundur.

Lagt fram.

33.1301050 - Stjórn Sorpu bs., 8. apríl

317. fundur.

Lagt fram.

34.1303018 - Umhverfis- og samgöngunefnd, 8. apríl.

32. fundur

Lagt fram.

35.1304012 - Umhverfis- og samgöngunefnd, 15. apríl.

33. fundur.

Lagt fram.

36.1006242 - Kosningar í kjörstjórnir - Alþingi 2010 - 2014

Tillaga að breyttri skipan undirkjörstjórnar vegna alþingiskosninga 2013.

Kosningu hlutu:

Í 3. kjördeild Erna Torfadóttir, Kársnesbraut 115 í stað Sigríðar Sigmarsdóttur, Kársnesbraut 135 og Anna María Gísladóttir, Laugalind 3 í stað Þórdísar S. Þorláksdóttur, Kársnesbraut 135.

Í 8. kjördeild Þórdís S. Þorláksdóttir, Kársnesbraut 135 í stað Unnar Helgu Ólafsdóttur.

Í 13. kjördeild Sigríður Sigmarsdóttir, Kársnesbraut 135 í stað Söru M. Marteinsdóttur.

Bæjarstjórn veitir bæjarráði umboð til breytinga á skipan undirkjörstjórna vegna alþingiskonsninga 2013.

37.1006244 - Kosningar í hafnarstjórn 2010 - 2014

Svava Hrönn Guðmundsdóttir kjörin varamaður í stað Þorleifs Friðrikssonar.

38.1103101 - Kosningar í jafnréttis- og mannréttindaráð

Einar Ólafsson kjörinn aðalmaður í stað Láru Jónu Þorsteinsdóttur. Svava Hrönn Guðmundsdóttir kjörin varamaður.

39.1006253 - Kosningar í skólanefnd

Sigríður Gísladóttir kjörin aðalmaður í stað Láru Jónu Þorsteinsdóttur.

40.1202292 - Kosningar í atvinnu- og þróunarráð 2012-2014

Þóra Elfa Björnsson kjörin varamaður í stað Þorleifs Friðrikssonar.

Fundi slitið - kl. 19:00.