Bæjarstjórn

1164. fundur 24. október 2017 kl. 16:00 - 17:00 Í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Andri Steinn Hilmarsson varafulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir varafulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal aðalfulltrúi
  • Hreiðar Oddsson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Önnur mál fundargerðir

1.1710006F - Bæjarráð - 2886. fundur frá 12.10.2017

Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

2.1710011F - Bæjarráð - 2887. fundur frá 19.10.2017

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

3.1709003F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 226. fundur frá 31.08.2017

Fundargerð í 2 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

4.1709013F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 227. fundur frá 14.09.2017

Fundargerð í 23 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

5.1710004F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 228. fundur frá 03.10.2017

Fundargerð í 10 liðum.
Birkir Jón Jónsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 10 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

6.1709010F - Lista- og menningarráð - 77. fundur frá 03.10.2017

Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.1709026F - Menntaráð - 15. fundur frá 03.10.2017

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

8.1710010F - Menntaráð - 16. fundur frá 17.10.2017

Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

9.1710007F - Skipulagsráð - 16. fundur frá 16.10.2017

Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.

  • 9.4 1707228 Hlíðasmári 12. Kynning á byggingaleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Sigurðar Einarssonar arkitekts dags. 6. júlí 2017 fyrir hönd lóðarhafa þar sem óskað er eftir að reisa reiðhjólaskýli framan við húsið sbr. uppdrátt í mkv. 1:500. Athugasemdafresti lauk 18. september 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 16. október 2017. Einnig lagt fram breytt erindi dags. 16. október 2017 þar sem komið er til móts við innsenda athugasemd. Niðurstaða Skipulagsráð - 16 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 16. október 2017 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 12. október 2017 um athugasemdir sem bárust á kynningartíma. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 9.5 1708831 Hófgerði 18a. Kynning á byggingarleyfi.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Rúnars Inga Guðjónssonar, byggingafræðings, fh. lóðarhafa að viðbyggingu (stækkun anddyris) við Hófgerði 18a. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 2. ágúst 2017. Á fundi skipulagsráðs 21. ágúst 2017 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Hófgerðis 16, 18; Borgarholtsbrautar 32, 34, 36, 38 og Skólagerðis 4 og 6. Athugasemdafresti lauk 5. október 2017. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Niðurstaða Skipulagsráð - 16 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 9.7 1708425 Sunnubraut 30. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju erindi Guðmundar Gunnlaugssonar, arkitekts fh. lóðarhafa Sunnubrautar 30 dags. 13. júlí 2017. Í erindinu felst ósk um heimild til að rífa einbýlishús á lóðinni byggt 1939 ásamt bílskúr byggður 1966 samtals 130,8 m2 að flatarmáli. Lóðin er 793,0 m2 og núverandi nýtingarhlutfall 0,16. Jafnframt er óskað heimildar til að reisa á lóðinni einbýlishús á tveimur hæðum með ásamt áfastri bílgeymslu með þaksvölum. Samanlagður gólfflögur er áætlaður 310 m2 og nýtingarhlutfall 0,39. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 ásamt skýringarmyndum dag. 13. júlí 2017. Á fundi skipulagsráðs 21. ágúst 2017 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum Sunnubrautar 26, 27, 28, 29, 31, 32, 33, 34, 35 og Þinghólsbrautar 25, 27, 29 og 31. Þá lagður fram grenndarkynningaruppdráttur og skjal með undirskrifuðu samþykki lóðarhafa í grennd. Niðurstaða Skipulagsráð - 16 Skipulagsráð samþykkir framlagt erindi með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 9.9 1709733 Digranesvegur 12. Kynning á byggingarleyfi.
    Lögð fram að nýju tillaga Móheiðar HH. Obel, arkitekts fh. lóðarhafa að breyttri notkun húsnæðis við Digranesvegi 12. Í breytingunni felst að atvinnuhúsnæði (tvíbreiðum bílskúr) er beytt í 45 m2 íbúð. Uppdrætti í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 22. ágúst 2017. Á fundi skipulagsráðs 19. september 2017 var málinu frestað. Niðurstaða Skipulagsráð - 16 Hafnað og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 9.10 17031299 Kársneshöfn, svæði 8. Bakkabraut 1-23, Nesvör 1 og Vesturvör 29, 31 og 33. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 15. maí 2017 að breyttu deiliskipulagi Kársneshafnar, sem samþykkt var í bæjarstjórn 23. janúar 1990. Skipulagssvæðið nær til Bakkabrautar 1 til 23, Nesvarar 1 og Vesturvarar 29, 31 og 33 og afmarkast af lóðarmörkum Vesturvarar 30 og 32 til norðurs, lóðarmörkum Bakkabrautar 6-16 til austurs, smábátahafnarinnar til suðurs og opnu bæjarlandi til vesturs.
    Svæðið sem er um 5 ha að stærð er hluti þróunarsvæðis Kársnes og nær til núverandi lóða Bakkabrautar 5, 7, 9 og Vesturvarar 29. Deiliskipulagssvæðið er sem svæði 8, reitir 1-7 í samþykktri skipulagslýsingu fyrir umrætt svæði.
    Í breytingunni felst að koma fyrir um 129 nýjum íbúðum á svæðinu, endurnýja hluta eldra athafnahúsnæði og reisa nýtt húsnæði fyrir verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir að núverandi athafnahúsnæði við Bakkabraut 9 verði rifið. Heildarbyggingarmagn á svæði 8 verður eftir breytingu um 25.000 m2 þar af um 11.000 m2 í verslun, þjónustu og athafnahúsnæði. Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum, greinargerð og skipulagsskilmálum dags. 15. maí 2017. Þá lögð fram greinargerðin Kársnes-Þróunarsvæði. Umhverfisskýrsla. Mannvit 12. maí 2017 og minnisblað Mannvits dags. 12. maí 2017, deiliskipulag þróunarsvæðis á Kársnesi - svæði 8 - umhverfismál. Skipulagsráð samþykkti með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga að kynna framlagða tillögu. Athugasemdafresti lauk 30. ágúst 2017. Athugasemdir bárust. þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar, dags. 12. október 2017, auk þess lagður fram nýr uppdráttur dags. 16. október 2017 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 16 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 16. október 2017 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 12. október 2017 um athugasemdir sem bárust á kynningartíma, minnisblaði verkfræðistofunnar Mannvits, dags. 12. maí 2017 og umhverfisskýrslu Kársnes Þróunarsvæði dags. 12. maí 2017. Með tilvísan í lið 2.4 í skipulagsskilmálum svæðisins samþykkir skipulagsráð jafnframt að unnin verði nánari útfærsla á hönnun bæjarlandsins á deiliskipulagssvæðinu. Lögð verði áhersla á vandaða hönnun og efnisval m.a hvað varðar frágang hafnar, torg, opin svæði, bolverk, gróður, lýsingu, göngu- og hjólaleiðir svo og yfirborð gatna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Fundarhlé kl. 18:17
    Fundi fram haldið kl. 18:26

    Bókun frá Guðmundi Geirdal:
    "Til grundvallar þeirri deiluskipulagsbreytingu sem hér er samþykkt er viljayfirlýsing sem felur í sér að aðstaða sú sem bátaeigendur hafa við Kópavogshöfn, svo sem til að taka báta upp, taka eldsneyti og aðgangur að bryggju með krana ásamt öðru því sem bátaeigendur hafa komið sér upp við núverandi aðstöðu verði fullnægt á öðru svæði við Kópavogshöfn í samráði við notendur hafnarinnar.
    Þess skal gætt að ný aðstaða verði tilbúin áður en núverandi aðstaða verður tekin úr notkun."

    Andrés Pétursson, Kristinn Dagur Gissurarson, Ármann Kr. Ólafsson, Sigríður Kristjánsdóttir og Júíusi Hafstein taka undir bókun Guðmundar.

    Bókun frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur:
    "Mikilvægt er við uppbyggingu aðstöðu við höfnina sé horft til umhverfisþátta svo sem rafvæðingu bátaflotans."

    Fundarhlé kl. 18:39
    Fundi fram haldið kl. 18:44

    Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
    "Undirrituð styður tillöguna í heild en leggur áherslu á eftirfarandi. Þarfir Hjálparsveitar skáta fyrir rúmt athafnasvæði eru miklar. Taka þarf tillit til þess í áframhaldandi vinnu. Undirrituð telur að vanda þurfi mjög til verka við hönnun hafnarsvæðisins og gera ráð fyrir menningar og mannlífsauðgandi starfsemi."

    Kristinn Dagur Gissurarson, Andés Pétursson og Margrét Júlía Rafnsdóttir taka undir bókun Ásu.
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

    Bókun:
    Ég árétta bókun mína vegna málsins er fram kemur í fundargerð skipulagsráðs.
    Guðmundur Gísli Geirdal.

Önnur mál fundargerðir

10.1709008F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 92. fundur frá 17.10.2017

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11.1710107 - Fundargerð 448. fundar stjórnar SSH frá 02.10.2017

Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.1710122 - Fundargerð 11. eigendafundar Sorpu bs. frá 27.09.2017

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.1710126 - Fundargerð 15. eigendafundar Strætó bs. frá 27.09.2017

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14.1710314 - Fundargerð 273. fundar stjórnar Strætó bs. frá 29.09.2017

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:00.