Bæjarstjórn

1192. fundur 12. mars 2019 kl. 16:00 - 18:40 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá
Hlé var gert á fundi kl. 17:14. Fundi var fram haldið kl. 17:40.

Önnur mál fundargerðir

1.1902021F - Bæjarráð - 2948. fundur frá 28.02.2019

Fundargerð í 13. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

2.1903003F - Bæjarráð - 2949. fundur frá 07.03.2019

Fundargerð í 27. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

3.1902008F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 261. fundur frá 08.02.2019

Fundargerð í 13. liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

4.1902018F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 262. fundur frá 22.02.2019

Fundargerð í 14. liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

5.1903005F - Forsætisnefnd - 134. fundur frá 07.03.2019

Fundargerð í 2. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

6.1902014F - Íþróttaráð - 90. fundur frá 21.02.2019

Fundargerð í 7. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.1902015F - Leikskólanefnd - 104. fundur frá 21.02.2019

Fundargerð í 9. liðum.
Lagt fram.

Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun f.h. undirritaðra bæjarfulltrúa:
"Í umsögn foreldraráðs leikskólans Urðarhóls kemur fram: Foreldraráðið vill undirstrika hversu brýn þörf er á að hefja endurbætur á húsnæði Skólatraðar sem fyrst. Húsnæðið er að hruni komið og nauðsynlegt er að hefja þar umbætur. Nauðsynlegt er að umhverfissviði Kópvogsbæjar verði gert kleift að gera ítarlega úttekt á ástandi og viðhaldsþörf mannvirkja Kópavogsbæjar. Mun tillaga þess efnis verða lögð fyrir bæjarráð Kópavogs.
Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Þorvarðarsson, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"

Önnur mál fundargerðir

8.1902005F - Lista- og menningarráð - 99. fundur frá 28.02.2019

Fundargerð í 3. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

9.1902012F - Menntaráð - 38. fundur frá 19.02.2019

Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.1902011F - Skipulagsráð - 46. fundur frá 04.03.2019

Fundargerð í 15. liðum.
Lagt fram.
  • 10.4 1902787 201 Smári. Útfærsla deiliskipulags í bæjarrými.
    Lögð fram tillaga Landark ehf. fh. lóðarhafa dags. 1. mars 2019, að nánari útfærslu deiliskipulags bæjarrýmis í 201 Smári. Pétur Jónsson, landslagsarkitekt og Ingvi Jónasson,framkvæmdastjóri Klasa ehf. gera grein fyrir tillögunni. Niðurstaða Skipulagsráð - 46 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 10.5 1901414 Hverfisáætlun Fífuhvamms 2019.
    Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að hverfisáætlun Fífuhvamms 2019. Niðurstaða Skipulagsráð - 46 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 10.7 1901016 Dalvegur 30. Breytt deiliskipulag.
    Á fundi skipulagsráðs 7. janúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Ask arkitekta fh. lóðarhafa að Dalvegi 30 um breytt deiliskipulag á lóðinni. Breytingin er í samræmi við breytt Aðalskipulag Kópavogs sem staðfest var 3. september 2018. Í tillögunni felst að í stað gróðrarstöðvar verður lóðin nýtt fyrir verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir þremur byggingarreitum á lóðinni fyrir 3-5 hæða atvinnuhúsnæði auk kjallara. Nýtingarhlutfall ofanjarðar er 0,8 og nýtingarhlutfall ofan- og neðanjarðar er 1,0.
    Tillagan lögð fram að nýju með þeim breytingum að ein aðkoma verður inn á lóðina í stað tveggja ásamt kvöð um trjágóður meðfram Dalvegi. Heildarbyggingarmagn ofanjarðar er áætlað 16.500 m2 og neðanjarðar er 4.160 m2 eða samalagt um 20.660 m2. Heildarfjöldi bílastæða á lóð er áætlaður 360 stæði þar af um 110 stæði í bílageymslu neðanjarðar. Gert er ráð fyrir gönguleiðum milli bygginga og skilti sýnileg frá Reykanesbraut. Fyrirhugaður byggingarreitur austast á lóðinni (reitur 3) er færður fjær lóðarmörkum m.t.t. Kópavogslækjar. Sýnd er möguleg tenging yfir á lóð nr. 30 frá Dalvegi 28. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 28. febrúar 2019.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 46 Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn vísar tillögunni til skipulagsráðs að nýju til frekari úrvinnslu.
  • 10.8 1810288 Tónahvarf 2. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 19. nóvember 2018 að breyttu deiliskipulagi fyrir Tónahvarf 2, Vatnsendahvarf- athafnasvæði. Svæði 3. Í breytingunni felst að stofna nýja lóð, Tónahvarf 2 sem er 5.600 m2 að stærð og koma fyrir athafnahúsi á þremur hæðum og kjallara. Skipulagssvæðið sem er um 0.8 ha afmarkast af Vatnsendavegi til norðurs, fyrirhuguðum Arnarnesvegi til vesturs, Tónahvarfi 4 til suðurs og Tónahvarfi 3 til austurs. Samþykkt deiliskipulag gerir ráð fyrir 90 m. háum fjarskiptaturni á deiliskipulagssvæðinu. Núverandi götur liggja innan afmörkunar og koma til með að breytast. Hámarksvegg er 15 metrar á norðurhlið og á suðurhlið 12 metrar. Hámarks þakhæð er 15 metrar. Þakform er frjáls. Aðkoma og fjöldi bílastæða breytist og er gerð krafa um eitt bílastæði á hverja 50 m2 atvinnuhúsnæðis. Hámarks byggingarmagn er 3.360 m2 en 3.800m2 með niðurgrafinni bílageymslu. Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag. Á fundi skipulagsráðs 19. nóvember 2019 var samþykkt að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdafresti lauk 4. mars 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartíma. Niðurstaða Skipulagsráð - 46 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 10.9 1804615 Hlíðarvegur 40. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram erindi Hildar Bjarnadóttur arkitekts dags. 16. mars 2018 fh. lóðarhafa að Hlíðarvegi 40 þar sem óskað er eftir að fá skráningu á einbýli breytt í tvíbýli. Í breytingunni felst að íbúðum á lóðinni er fjölgað úr einni í tvær svoleiðis að ein íbúð sé á hvorri hæð hússins.Íbúð á efri hæð verður 76.8 m2 og íbúð á neðri hæð verður 76.8 m2. Húsið er byggt 1959 og var tvíbýlishús samkvæmt eignaskiptasamningi frá 1976 en var síðar breytt í einbýli. Uppdráttur í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 16. mars 2018. Niðurstaða Skipulagsráð - 46 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 10.11 1902775 Fróðaþing 21. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Finns Inga Hermannssonar byggingafræðings, dags. 25. febrúar 2019, fh. lóðarhafa þar sem óskað er eftir að byggja stoðvegg og svalir utan byggingarreits við lóðina Fróðaþing 21, við lóðarmörk Fróðaþings 19. Við vegginn kæmi stigi og svalir sem tengjast efri hæð hússins með tengingu við efri hluta garðs og lóðar. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa Fróðaþings 19 og 23. Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 22. febrúar 2019. Niðurstaða Skipulagsráð - 46 Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 10.14 1902772 Fossvogsbrún 2a. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Önnu Margrétar Hauksdóttur arkitekts fh. Umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi við Fossvogsbrún 2a. Í breytingunni felst að byggingarreitur stækkar um til suðvesturs að hluta og til norðurs að hluta, samtals um ca 56 m2. Einnig er sótt um að setja útigeymslu á lóðina að hámarki 15 m2 að höfðu samráði við garðyrkjustjóra.
    Byggingarmagn á lóðinni eykst ekki miðað við gildandi skipulagsskilmála.
    Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:1000 dags. 1. mars 2019.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 46 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

11.1902801 - Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 6.2.2019

Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.1902783 - Fundargerð 868. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22.02.2019

Fundargerð í 33. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.1902588 - Fundargerð 179. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 22.2.2019

Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14.1902733 - Fundargerð 42. aðalfundar SSH frá 16.11.2018

Fundargerð í 6. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15.1901002F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 110. fundur frá 12.02.2019

Fundargerð í 9. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

16.1901003F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 111. fundur frá 26.02.2019

Fundargerð í 11. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

17.1902020F - Velferðarráð - 41. fundur frá 25.02.2019

Fundargerð í 8. liðum.
Lagt fram.
  • 17.4 1310526 NPA samningar - einingaverð
    Lagt fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðarráð - 41 Velferðarráð samþykkti framlagða tillögu um breytingu á einingaverðum fyrir sitt leyti. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu velferðarráðs með 11 atkvæðum.
  • 17.6 1901100 Tillaga að breyttri gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu
    Lagt fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðarráð - 41 Velferðarráð samþykkti framlagða tillögu um breytingu á gjaldskrá fyrir sitt leyti.
    Niðurstaða Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði til að tillögu að breytingu á gjaldskrá verði frestað og vísað til öldungaráðs til umsagnar.

    Tillögu Sigurbjargar Erlu var hafnað með atkvæðum Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Johnson, Guðmundar Geirdal og Birkis Jóns Jónssonar en Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir og Einar Þorvarðarson greiddu atkvæði með tillögunni.

    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun f.h. undirritaðra bæjarfulltrúa:
    "Tillagan felur í sér að einfalda gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu en með því flyst kostnaður frá tekjuhærri eldri borgurum yfir á þá tekjulægri. Við teljum ávinninginn af umræddum breytingum ekki réttlæta þessa kostnaðartilfærslu.
    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Þorvarðarson, Bergljót Kristinsdóttir"

    Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu velferðarráðs með sex atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru Þorsteinsdóttur og Einars Þorvarðarssonar. Pétur Hrafn Sigurðsson greiddi ekki atkvæði.

Önnur mál fundargerðir

18.1902007F - Öldungaráð - 7. fundur frá 14.02.2019

Fundargerð í 2. liðum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 18:40.