Bæjarstjórn

1204. fundur 12. nóvember 2019 kl. 16:00 - 19:30 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Karen E. Halldórsdóttir aðalfulltrúi
  • Jón Finnbogason varafulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalfulltrúi
  • Elvar Páll Sigurðsson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

Dagskrármál

1.1910628 - Fjárhagsáætlun 2020 - fyrri umræða

Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2020 og tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023.
Kl. 17:50 vék Pétur Hrafn Sigurðsson af fundi og tók Elvar Páll Sigurðsson sæti hans.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023 til seinni umræðu.
Hlé var gert á fundi kl. 18:10. Fundi var fram haldið kl. 18:40.

Fundargerð

2.1910015F - Bæjarráð - 2975. fundur frá 24.10.2019

Fundargerð í 30 liðum.
Lagt fram.
  • 2.22 1910481 Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. til samþykktar
    Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 18. október, lögð fram til samþykktar gjaldskrá fyrir slökkviliðið. Niðurstaða Bæjarráð - 2975 Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá með 11 atkvæðum.

Fundargerð

3.1910023F - Bæjarráð - 2976. fundur frá 31.10.2019

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

4.1910027F - Bæjarráð - 2977. fundur frá 07.11.2019

Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
  • 4.2 1907192 Þjónusta við íbúa við Kópavogsbraut 5a.
    Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 1. nóvember, lögð fram drög að samningi við félagsmálaráðuneytið vegna yfirfærslu þjónustu við fjóra einstaklinga til heimilis að Kópavogsbraut 5a. Niðurstaða Bæjarráð - 2977 Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning við félagsmálaráðuneytið vegna yfirfærslu á þjónustu að Kópavogsbraut 5a.

    Bæjarráð vísar erindi skipulagsráðs um nýtingu lóðanna Kleifakór 2 og 4 undir heimili fyrir fatlaða einstaklinga til afgreiðslu bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að lóðirnar Kleifakór 2 og 4 verði nýttar undir heimili fyrir fatlaða.

Önnur mál fundargerðir

5.1910010F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 277. fundur frá 11.10.2019

Fundargerð í 16 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Fundargerð

6.1910025F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 278. fundur frá 25.10.2019

Fundargerð í 13 liðum
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Fundargerð

7.1909029F - Barnaverndarnefnd - 96. fundur frá 02.10.2019

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

8.1911004F - Forsætisnefnd - 145. fundur frá 07.11.2019

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

9.1910629 - Fundargerð 250. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 28.10.2019

Fundargerð í 41 lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.1910006F - Leikskólanefnd - 111. fundur frá 17.10.2019

Fundargerð 8 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

11.1910007F - Menntaráð - 49. fundur frá 15.10.2019

Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

12.1909022F - Skipulagsráð - 60. fundur frá 21.10.2019

Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
  • 12.7 1909105 Desjakór 2. Stækkun lóðar. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi lóðarhafa Desjakórs 2 dags. 14. ágúst 2019 þar sem óskað er eftir stækkun lóðar til austurs og suðurs og reisa skjólgirðingu. Á fundi skipulagsráðs 7. október var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Desjakórs 1 og Dofrakórs 1. Lóðarhafi Desjakórs 2 skilaði inn undirrituðu samþykki lóðarhafa Desjakórs 1 og Dofrakórs 1 og því er kynningartími styttur. Uppdráttur í mkv. 1:200 og 1:2000 dags. 3. september 2019. Niðurstaða Skipulagsráð - 60 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Fundargerð

13.1910011F - Skipulagsráð - 61. fundur frá 04.11.2019

Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
  • 13.6 1907412 Álmakór 9b. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Ríkharðs Oddsonar, byggingafræðings fh. lóðahafa að breyttu deiliskipulagi Álmakórs 9b. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir viðbyggingu til suður um 34 m2. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. í júlí 2019. Á fundi skipulagsráðs 29. júlí 2019 var samþykkt með tilvísa til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/210 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Álmakórs 7a, 7b, 9a, 17a og 17b. Kynningartíma lauk 25. október 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Niðurstaða Skipulagsráð - 61 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 13.7 1910387 Lækjasmári 114 og 116. Breytt staðföng.
    Lagt fram erindi Gunnars Más Karlssonar, deildastjóra eignadeildar Kópavogsbæjar þar sem lagt er til að staðföngum lóðanna Lækjasmári 114 og 116 verði breytt í Dalsmári 23 og 25. Á lóðunum Dalsmári 21 og Lækjasmári 114 og 116 er leikskólinn Lækur. M.a. vegna aðkomu neyðarbíla er nauðsynlegt að samræma lóðarheitin og verði eftir breytingu Dalsmári 21, 23 og 25. Niðurstaða Skipulagsráð - 61 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 13.8 1910460 Fagraþing 1 og Glæsihvarf 4. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram tillaga Jakobs Líndal arkitekts dags. 16. október 2019 fh. lóðarhafa Fagraþings 1 og Glæsihvarfs 4 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í tillögunni felst að þessar tvær samliggjandi lóðir verði deilt upp í 3 lóðir. Glæsihvarf 4 er í dag óbyggð lóð en á Fagraþingi 1 er 186 m2 einbýlishús úr timbri, byggt 1999. Til samans eru þessar tvær lóðir 4235 m2. Gert er ráð fyrir að reisa tvö ný einbýlishús á lóðunum, bæði um 300 m2 á tveimur hæðum. Uppdrættir og lóðablað í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum. Niðurstaða Skipulagsráð - 61 Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

14.1910651 - Fundargerð 875. stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.10.2019

Fundargerð í 25 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15.1910448 - Fundargerð 185. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 18.10.2019

Fundargerð í 7. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

16.1910389 - Fundargerð 477. fundar stjórnar SSH frá 07.10.2019

Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

17.1910018F - Ungmennaráð - 12. fundur frá 23.10.2019

Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

18.1910024F - Velferðarráð - 52. fundur frá 28.10.2019

Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 19:30.