Bæjarstjórn

1207. fundur 14. janúar 2020 kl. 16:00 - 17:41 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Karen E. Halldórsdóttir aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Fundargerð

1.1912001F - Bæjarráð - 2982. fundur frá 12.12.2019

Fundargerð í 22 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

2.1912010F - Bæjarráð - 2983. fundur frá 19.12.2019

Fundargerð í 22 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

3.1912013F - Bæjarráð - 2984. fundur frá 09.01.2020

Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

4.1912006F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 281. fundur frá 06.12.2019

Fundargerð í 14 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Fundargerð

5.1912014F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 282. fundur frá 19.12.2019

Fundargerð í 17 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Fundargerð

6.2001004F - Forsætisnefnd - 148. fundur frá 09.01.2020

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.1912051 - Fundargerð 251. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 02.12.2019

Fundargerð í 69 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

8.1911028F - Íþróttaráð - 97. fundur frá 03.12.2019

Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

9.1912009F - Íþróttaráð - 98. fundur frá 11.12.2019

Fundargerð í 42 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.1912007F - Jafnréttis- og mannréttindaráð - 74. fundur frá 11.12.2019

Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

11.1912005F - Leikskólanefnd - 114. fundur frá 12.12.2019

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

12.1911015F - Lista- og menningarráð - 107. fundur frá 12.12.2019

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

13.1911027F - Menntaráð - 53. fundur frá 03.12.2019

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

14.1911021F - Skipulagsráð - 65. fundur frá 16.12.2019

Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

15.1911029F - Skipulagsráð - 66. fundur frá 06.01.2020

Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
  • 15.2 2001022 Bláfjöll. Skíðasvæði. Framkvæmdaleyfi.
    Lögð fram umsókn Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, greinargerð VSÓ; Endurbætur á skíðasvæðinu í Bláfjöllum, umsókn um framkvæmdaleyfi dags. í desember 2019. Þá lögð fram tillaga skipulagsstjóra að leyfi fyrir framkvæmdum á skíðasvæði Bláfjalla. Fyrirhugaðar framkvæmdir felast í landmótun, uppsetningu á lausum lögnum og girðingum og aðrar framkvæmdir sem unnar eru samhliða reisingu á nýjum skíðalyftum Gosa og Drottningu. Skíðalyftur samanstanda af undirstöðum, möstrum, línum, stólum, neðri og efri stjórnhúsum og stólageymslu. Einnig framkvæmdir sem tengjast uppsetningu snjóframleiðslubúnaðar, gerð borplans, miðlunarlóns og uppsetningu á lögnum og snjóbyssum. Framkvæmdirnar eru í samræmi við deiliskipulag skíðasvæðisins í Bláfjöllum samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 25. september 2018. Í framkvæmdaleyfinu koma fram þau hönnunargögn og önnur gögn sem framkvæmdaleyfið byggir á sem og skilyrði og skilmálar leyfisveitenda. Niðurstaða Skipulagsráð - 66 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 15.4 1901120 Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Breytt vaxtamörk á Álfsnesi.
    Lagt fram erindi Hrafnkels Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóra dags. 30. desember 2019 og varðar breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 þar sem vaxtamörk á Álfsnesi eru færð út. Umrædd tillaga að breytingu á svæðisskipulagi ásamt umhverfisskýrslu var auglýst 30. ágúst 2019. Frestur til athugasemda og ábendinga var til 11. október 2019. Samhliða breytingunni var jafnframt kynnt breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur 2030; nýtt deiliskipulag fyrir Álfsnesvík ásamt frummatsskýrslu vegna nýrrar staðsetningar Björgunar á Álfsnesi. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Að lokinni kynningu var umrædd breyting á svæðisskipulaginu lögð fyrir að nýju í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins 29. nóvember 2019 ásamt framkomnum athugasemdum og ábendingu og viðbrögðum svæðisskipulagsnefndar við þeim. Frá auglýstri tillögu hefur verið bætt við fyllri umsögn í umhverfisskýrslu um áhrif á hljóðvist, umfjöllun um þætti sem geta haft áhrif á fok sem og umfjöllun um útivistarsvæði. Þá hefur verið leiðrétt misritun um stækkunarmöguleika lóðar Björgunar í Álfsnesvík. Að öðru leyti kalla umsagnir ekki á breytingu á skipulagstillögum eða umhverfisskýrslu vegna svæðisskipulagsins. Svæðisskipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði henni til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga SSH.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 66 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 15.5 1910605 Nýbýlavegur 32. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Einars Ólafssonar arkitekts dags. 25. júlí 2019 fh. lóðarhafa Nýbýlavegar 32. Í erindinu er óskað eftir að breyta þriðju hæð hússins úr iðnaðarhúsnæði í íbúðarhúsnæði og koma fyrir fjórum íbúðum á hæðinni. Byggt verður yfir svalir að hluta svo gólfflöturinn stækkar um 39,9 m2 og komið fyrir nýjum stiga á suður hlið hússins, Dalbrekkumegin. Gólfflötur þriðju hæðar er í dag 171,1 m2 en verður 211 m2 eftir breytingu. Íbúðirnar fjórar verða 61 m2, 51 m2, 50 m2 og 49 m2. Á fundi skipulagsráðs 18. nóvember 2019 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Nýbýlavegar 30 og Dalbrekku 27, 29, 54, 56 og 58. Kynningartíma lauk 18. desember 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 66 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 15.6 1811314 Dalaþing 36. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts dags. 10. október 2018 fh. lóðarhafa Dalaþings 36 þar sem óskað er eftir að byggja opið garðskýli á suðurhluta lóðarinnar og breyta skráningartöflu. Á fundi skipulagsráðs 19. nóvember 2018 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Dalaþings 15, 26 a og b, 27 og 34. Kynningu lauk 18. desember 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 66 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 15.9 1910451 Bakkabraut 7a. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Sigurðar Hafsteinssonar byggingatæknifræðings dags. 9. ágúst 2019 fh. lóðarhafa Bakkabrautar 7a þar sem óskað er eftir leyfi til að breyta skráningu á 121 m2 rými neðri hæðar úr iðnaðarhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Á fundi skipulagsráðs 4. nóvember 2019 var samþykkt að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Bakkabrautar 5a til 5e og Bakkabrautar 7b til 7d. Kynningartíma lauk 20. desember 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 66 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Kristinn Dagur Gissurarson greiðir atkvæði gegn erindinu.
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 9 atkvæðum og hjásetu Karenar E. Halldórsdóttur og mótatkvæði Guðmundar G. Geirdal.

Önnur mál fundargerðir

16.1912093 - Fundargerð nr.876 fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29.11.2019

Fundargerð í 43 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

17.1912492 - Fundargerð 877. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfél. frá 13.12.2019

Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

18.1912392 - Fundargerð 416. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 06.12.2019

Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

19.1912319 - Fundargerð 479. fundar stjórnar SSh frá 02.12.2019

Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

20.1912041 - Fundargerð 309. fundar stjórnar Strætó frá 30.08.2019

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

21.1912042 - Fundargerð 310. fundar stjórnar Strætó frá 20.09.2019

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

22.1912043 - Fundargerð 311. fundar stjórnar Strætó frá 11.10.2019

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

23.1912044 - Fundargerð 312. fundar stjórnar Strætó frá 28.10.2019

Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

24.1912045 - Fundargerð 313. fundar stjórnar Strætó frá 22.11.2019

Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

25.1912554 - Fundargerð 314. fundar stjórnar Strætó frá 13.12.2019

Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

26.1912570 - Fundargerð 90. fundar stjórnar svæðisskipulagsnefndar frá 29.11.2019

Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

27.1911026F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 122. fundur frá 17.12.2019

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram og kynnt.

Fundargerð

28.1912004F - Velferðarráð - 55. fundur frá 09.12.2019

Fundargerð í 8 liðum
Lagt fram.

Kosningar

29.18051280 - Kosningar í íþróttaráð 2018-2022

Jón Magnús Guðjónsson kjörinn varamaður í stað Bergljótar Kristinsdóttur.

Fundi slitið - kl. 17:41.