- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Dagskrármál
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Önnur mál fundargerðir
Fundi slitið - kl. 20:03.
Fundarhlé hófst kl. 19:08, fundi fram haldið kl. 19:21
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Aðalsjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Eignasjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Byggingarsjóðs MK. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Húsnæðisnefndar Kópavogsbæjar. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Tónlistarhúss Kópavogs. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Bílastæðasjóðs Kópavogs. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Hafnarsjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Fráveitu Kópavogsbæjar. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Vatnsveitu Kópavogsbæjar. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning Vatna ehf. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning félagsins Músik og sögu ehf. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði í heild sinni samantekinn ársreikning Kópavogsbæjar, þ.e. ársreikning Kópavogsbæjar, A- og B-hluta fyrirtækja hans ásamt framlögðum ársreikningum B-hluta fyrirtækja og öðrum fylgigögnum. Staðfestur með 11 atkvæðum.
Bókun:
"Meirihlutinn í Kópavogi fagnar sterkri stöðu sveitarfélagsins sem birtist í ársreikningi ársins 2024.
Rekstur Kópavogsbæjar styrkist umtalsvert milli ára sem endurspeglar ríka áherslu okkar á traustan rekstur. Þrátt fyrir miklar fjárfestingar í leik- og grunnskólum og öðrum nauðsynlegum innviðum sveitarfélagsins eru heildarskuldir og skuldbindingar að lækka að raunvirði. Þá heldur skuldahlutfall Kópavogsbæjar áfram að lækka og er langt undir lögbundnu skuldaviðmiði. Ábyrg fjármálastjórn er forsenda þess að unnt sé að veita framúrskarandi þjónustu til bæjarbúa. Verkefnið nú sem endranær er að standa vörð um góðan rekstur þannig að áfram sé unnt að skila ábatanum til bæjarbúa í formi lægri skatta og bættrar þjónustu."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet B. Sveinsdóttir
Bókun:
"Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í bæjarstjórn Kópavogs brýtur gegn bæði sveitarstjórnarlögum og lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna með því að gæta ekki að jöfnu kynjahlutfalli við skipan í nefndir bæjarins. Í stað þess að leiðrétta skipanina velur meirihlutinn að fjarlægja þá klausu úr ársreikningi bæjarins þar sem áður kom fram að bæjarfélagið fari að þessum lögum. Sú yfirlýsing hafði árum saman verið hluti af ófjárhagslegum upplýsingum í ársreikningi Kópavogs."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Thelma Bergmann Árnadóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Unnið er að því að að leiðrétta kynjahlutföll í nefndum."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet B. Sveinsdóttir
Bókun:
"Í bæjarstjórn Kópavogs sitja nú átta konur og þrír karlar. Undirritaður gerir enga athugasemd við þessi kynjahlutföll. Kjósendur hafa talað og niðurstaðan er lýðræðisleg. Það er tímabært að afnema lög um jöfn kynjahlutföll í opinberum nefndum og ráðum, kyn á ekki að ráða úrslitum við skipan í nefndir og ráð. Mikilvægt er að tryggja jafnræði til þátttöku þótt niðurstaðan kunni að halla á annað hvort kynið. Þessi bókun er hvatning til löggjafans um endurskoðun á þessum lögum."
Andri Steinn Hilmarsson
Bókun:
"Í ljósi góðrar rekstrarafkomu vilja undirritaðar minna fulltrúa meirihlutans á að velferðarþjónusta er lögbundin skylda sveitarfélaga. Fjölmargir Kópavogsbúar í viðkvæmri stöðu bíða árum saman eftir lögbundinni velferðarþjónustu.
Biðlistar eftir heimaþjónustu fyrir aldraða lengjast frá ári til árs en staðan er sú að enginn nýr fær þjónustu nema annar hætti. Á annan tug fatlaðra fullorðinna Kópavogsbúa bíður eftir félagslegri stuðningsþjónustu en aðeins þeir í brýnustu þörfinni geta átt von á að fá þjónustu. Fötluð börn í Kópavogi bíða í allt að sex ár eftir því að komast að í skammtímadvöl. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar ber pólitíska ábyrgð á þessari stöðu. Að hreykja sér af 4,5 milljarða króna rekstrarafgangi á sama tíma og fólk í viðkvæmum hópum bíður mánuðum og árum saman eftir þeirri lögbundnu þjónustu sem það á rétt á lýsir ekki ábyrgri fjármálastjórn heldur kolrangri forgangsröðun."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Thelma Bergmann Árnadóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn tekur undir að það er mikilvægt að reka öflugt velferðarkerfi enda voru framlög bæjarins til málaflokksins aukin um ríflega hálfan milljarð á síðasta ári til að koma til móts við aukna þörf fyrir þjónustu."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet B. Sveinsdóttir
Bókun:
"Fyrri bókun undirritaðra er lýsing á biðinni eftir þjónustu miðað við fjármunina sem varið var til málaflokksins árið 2024. Lýsingin staðfestir hversu því fer fjarri að málaflokkurinn fái þau fjárframlög sem þarf til að sinna lögbundinni þjónustu."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Thelma Bergmann Árnadóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Kópavogsbær er í miklum vanda. Tekjuhlið ársins 2024, 2.7 milljarðar króna fyrir sölu byggingarréttar í Roðahvarfi, er í uppnámi. Í úrskurði innviðaráðuneytisins frá 2. maí sl. er niðurstaðan sú að ákvörðun Kópavogsbæjar um úthlutun lóða í Roðahvarfi sé haldin svo verulegum annmarka að óhjákvæmilegt sé að fella ákvörðunina úr gildi í heild. Málsmeðferð hafi brotið í bága við jafnræði bjóðenda og hvorki verið í samræmi við jafnræðisreglu 11.gr. stjórnsýslulaga né réttmætisreglu stjórnsýsluréttar. Ráðuneytið hefur samkvæmt sveitarstjórnarlögum eftirlit með því að sveitarfélög gegni skyldum sínum lögum samkvæmt og getur í alvarlegustu tilvikum, eins og þessu, falið sveitarfélagi að fella ákvörðun úr gildi og koma málum í lögmætt horf. Sveitarstjórnum ber í þessu efni að fara að ákvörðunum æðra stjórnvaldsins.
Í tillögu til bæjarráðs um úthlutun lóðanna 3.júní 2024 kom hvergi fram að kærendur höfðu gert formlega athugasemd við málsmeðferð fyrir lok maí 2024. Í tillögu til bæjarráðs um að heimila veðsetningu á lóðunum 27. júní 2024 var sérstaklega tekið fram að ekki væri meinbugir á að heimila veðsetningu. Andmæli þeirra sem töldu brotið á rétti sínum voru aldrei kynnt í bæjarráði og bæjarráð var ekki upplýst um kæruna til ráðuneytis fyrr en úrskurður lá fyrir. Þó gegnir bæjarráð samkvæmt bæjarmálasamþykkt, úthlutunarreglum og úthlutunarskilmálum meginhlutverki í lóðaúthlutunum. Ákvarðanir stjórnsýslunnar um að gera lóðarleigusamninga og innheimta byggingarréttargjöld meðan kæran var óútkljáð í ráðuneytinu er dýrkeypt. Þessar ákvarðanir gera stöðu bæjarins og nýja ákvörðun í málinu afar flókna. Þær voru ekkert ræddar við bæjarráð. Við vísum allri ábyrgð af þessari málsmeðferð á bæjarstjóra. Það er framkvæmdastjóra sveitarfélagsins að sjá til þess að bæjarráði sé kleift að sinna hlutverki sínu sem framkvæmdastjórn bæjarins. Það er alls óheimilt að halda frá bæjarráði þáttum sem lúta að hlutverki þess.
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Thelma Bergmann Árnadóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Niðurstaðan kom verulega á óvart, enda hafði ráðuneytið áður hafnað beiðni um að fresta réttaráhrifum vegna kærunnar. Meirihlutinn fylgir áliti utanaðkomandi lögfræðiráðgjafa sem telja sterk rök hníga til þess að úrskurður ráðuneytisins sé haldinn verulegum annmörkum bæði að formi og efni til. Á síðasta fundi bæjarráðs var því bæjarstjóra falið að hefja undirbúning að málsókn fyrir héraðsdómi til að fá úrskurðinum hnekkt. Meirihlutinn gerir þar að auki alvarlegar athugasemdir við að málsmeðferðin hafi tekið tæpt ár hjá ráðuneytinu, sér í lagi í ljósi aðkallandi stöðu á húsnæðismarkaði.
Enn fremur ber að hafa í huga að kæran barst ekki fyrr en eftir að ákvörðun um úthlutun hafði verið tekin og hún lá heldur ekki fyrir þegar bæjarráð samþykkti veðsetningu. Í ljósi bókunar minnihlutans er ástæða til að árétta að það hefur ekki verið venja að tilkynna sérstaklega um allar kærur sem berast fyrr en úrskurður liggur fyrir. Því var ekki vikið frá neinum vinnureglum með því að upplýsa ekki um kæruna í þessu tilviki.
Varhugavert er að tjá sig efnislega um málið þegar það er á þessu viðkvæma stigi í undirbúningi dómsmáls enda er hlutverk kjörinna fulltrúa að standa vörð um hagsmuni Kópavogs.
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet B. Sveinsdóttir
Tillaga:
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að leggja fyrir bæjarráð tillögu um kerfi og ferli til að styrkja hlutverk bæjarráðs og og bregðast við ágöllum í innra eftirliti Kópavogsbæjar. M.a. verði farið yfir ábendingar og athugasemdir í skýrslum löggiltra endurskoðenda með ársreikningi Kópavogsbæjar 2024. Markmiðið er að gera bæjarráði kleift að sinna eftirlitshlutverki sínu fyrir hönd bæjarstjórnar skipulega og formlega.
Greinargerð
Í skýrslu endurskoðenda Kópavogsbæjar með ársreikningi 2024 kemur fram að bæjarstjórn beri ábyrgð á að til staðar sé virkt kerfi innra eftirlits og það sé formlegt, skjalfest og sannreynt reglulega. Innra eftirlitið á að vera til þess fallið að veita vissu um að sveitarfélagið nái árangri og skilvirkni í starfsemi í samræmi við markmið sveitarfélagsins, að það veiti áreiðanlegar og réttmætar fjárhagsupplýsingar til ytri aðila og það hlíti lögum og reglum sem gilda um starfsemina. Í skýrslu endurskoðendanna eru tilgreindir ýmsir ágallar innra eftirlits sem taldir eru verulegir og fram koma gagnlegar ábendingar m.a. um nauðsyn formfestu og þætti sem betur mega fara í stjórnsýslu og meðferð fjármuna bæjarins. Í 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er kveðið á um það sem hlutverk bæjarráðs að hafa eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess og sjá um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir sveitarstjórn til meðferðar og afgreiðslu. Til að bæjarráð geti gegnt þessum hlutverkum sínum þarf reglubundið að leggja fyrir það greiningar og upplýsingar um stöðu mála, tillögur um nauðsynlegar úrbætur og tímasetningu aðgerða.
Það er þó ekki bara eftirlitshlutverk bæjarráðs sem þarf að styrkja. Tryggja þarf í endurskoðuðu ferli að ákvarðanir sem bæjarráð á að taka sem framkvæmdastjórn bæjarfélagsins séu lagðar fyrir það sem tillögur til umræðu og ákvörðunar.
Thelma B. Árnadóttir
Helga Jónsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.
Bókun:
"Tillagan er samþykkt, enda er hún í samræmi við áður samþykkta tillögu frá fundi bæjarstjórnar 29. apríl sl., svohljóðandi: „Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að leggja fyrir bæjarráð tillögu um kerfi og ferli til að bregðast við ábendingum í innra eftirliti Kópavogsbæjar. Verður farið í mótun tillögu og aðgerðir eftir að endanleg skýrsla endurskoðenda liggur fyrir 13. maí.“
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet B. Sveinsdóttir