Bæjarstjórn

1326. fundur 23. september 2025 kl. 16:00 - 17:19 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ásdís Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Hanna Carla Jóhannsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Orri Vignir Hlöðversson aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Dagskrármál

1.24093269 - Beiðni um lausn frá störfum

Beiðni um lausn frá störfum.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum beiðni Sigrúnar Huldu Jónsdóttur um lausn frá störfum bæjarfulltrúa út kjörtímabilið.

Önnur mál fundargerðir

2.2509009F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 427. fundur frá 12.09.2025

Fundargerð í 10 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

3.2509001F - Bæjarráð - 3226. fundur frá 11.09.2025

Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

4.2509006F - Bæjarráð - 3227. fundur frá 18.09.2025

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

5.2509015F - Forsætisnefnd - 243. fundur frá 18.09.2025

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

6.2508025F - Leikskólanefnd - 172. fundur frá 04.09.2025

Fundargerð í sjö liðum
Lagt fram

Önnur mál fundargerðir

7.2508002F - Menningar- og mannlífsnefnd - 6. fundur frá 03.09.2025

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

8.2509010F - Menntaráð - 148. fundur frá 16.09.2025

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

9.2509004F - Velferðar- og mannréttindaráð - 8. fundur frá 08.09.2025

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.2508014F - Skipulags- og umhverfisráð - 14. fundur frá 15.09.2025

Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.
  • 10.3 25022006 Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu umsókn Gunnars Páls Kristinssonar arkitekts dags. 20. júní 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 7 við Smiðjuveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 1485,1 m² viðbygging við núverandi húsnæði á lóðinni til vesturs. Viðbyggingin mun vera á einni hæð auk kjallara. Þak á fyrirhugaðri viðbyggingu verður í sömu hæð og þak núverandi byggingar. Einnig er fyrirhugað að byggja 35m² viðbyggingu á einni hæð við austurgafl hússins. Núverandi bílastæði færast niður í hluta af kjallaranum en þar er gert ráð fyrir um 14 bílastæðum í opnu kjallararými. Bílastæðum á lóðinni fækkar úr 81 í 69. Byggingarmagn eykst úr 3554 m² í 5039 m² og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 0,7. Uppdrættir dags. 20. júní 2025, uppfærðir 11. júlí 2025. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. september 2025 um umsögn sem barst á kynningartíma tillögunnar sem lauk 5. september 2025, ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 12. september 2025. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 14 Samþykkt með áorðnum breytingum dags. 12. september 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
  • 10.5 2411575 Smiðjuvegur 4. Byggingarleyfisumsókn.
    Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 1. nóvember 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn Inga Gunnars Þórðarsonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Smiðjuveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta notkun 110 m² atvinnurýmis á 2. hæð í gistiheimili. Uppdrættir dags. 1. september 2024.
    Þá er einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2025.
    Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 14 Hafnað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
  • 10.6 25043140 Digranesvegur 8-16A. Ósk um upphaf deiliskipulagsvinnu.
    Lagt fram að nýju erindi Skala arkitekta f.h. lóðarhafa Digranesvegar 8, 10 og 12 dags. 28. apríl 2025 þar sem óskað er eftir samvinnu við skipulagsyfirvöld um gerð deiliskipulags fyrir lóðirnar nr. 8, 10, 12, 14, 16 og 16A við Digranesveg í samræmi við 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt er óskað eftir að sveitarstjórn veiti heimild til að vinna tillögu að deiliskipulag fyrir umrætt svæði og afmarki mörk svæðisins. Þá er einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. september 2025. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 14 Hafnað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. september 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

11.2509424 - Fundargerð 983. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 29.08.2025

Fundargerð 983. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 29.08.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.25091905 - Fundargerð 984. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 12.09.2025

Fundargerð 984. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 12.09.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.2509443 - Fundargerð 611. fundar stjórnar SSH frá 18.08.2025

Fundargerð 611. fundar stjórnar SSH frá 18.08.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14.25091068 - Fundargerð 273. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 15.08.2025

Fundargerð 273. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 15.08.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15.2509693 - Fundargerð 53. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 18.08.2025

Fundargerð 53. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 18.08.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

16.2509436 - Fundargerð 517. fundar stjórnar Sorpu bs frá 18.06.2025

Fundargerð 517. fundar stjórnar Sorpu bs frá 18.06.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

17.2509437 - Fundargerð 518. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 18.08.2025

Fundargerð 518. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 18.08.2025.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:19.