Bæjarstjórn

1332. fundur 27. janúar 2026 kl. 16:00 - 18:46 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ásdís Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson, aðalmaður boðaði forföll og Thelma Bergmann Árnadóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Indriði Ingi Stefánsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Önnur mál fundargerðir

1.2601004F - Bæjarráð - 3242. fundur frá 15.01.2026

Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

2.2601020F - Bæjarráð - 3243. fundur frá 22.01.2026

Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

3.2601012F - Leikskólanefnd - 176. fundur frá 15.01.2026

Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

4.2601002F - Menningar- og mannlífsnefnd - 10. fundur frá 20.01.2026

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

5.2601019F - Menntaráð - 155. fundur frá 20.01.2026

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

6.2512022F - Skipulags- og umhverfisráð - 22. fundur frá 19.01.2026

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
  • 6.4 25043169 Silfursmári 1-7. Breyting á aðalskipulagi. Skipulagslýsing.
    Lögð fram tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu, dags. 16. janúar 2026, vegna breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytingar á deiliskipulagi fyrir Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæð húsa í allt að 11 hæðir, efsta inndregin, og breytingu á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið. Lagt fram minnisblað dags. 16. janúar 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 22 Gunnar Sær Ragnarsson tók sæti á fundinum kl. 16:08.

    Samþykkt að framlögð skipulags- og matslýsing verði kynnt með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Fundarhlé kl. 16:18, fundi framhaldið kl. 16:57.

    Bókun:
    „Skipulagsstofnun synjaði tillögu Kópavogsbæjar um að telja aðalskipulagsbreytinguna sem hér er til umfjöllunar óverulega. Í rökstuðningi stofnunarinnar kom fram að breytingin sé líkleg til að geta haft áhrif á hagsmuni íbúa og annarra hagsmunaaðila í nágrenninu. Í því ferli sem ógilt var gafst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum færi á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillögu. Mikill fjöldi athugasemda barst m.a. um skort á greiningum og mælingum t.d. á aukningu byggingarmagns, fjölgun íbúða, vindálagi, umferðarmál og bílastæði, ófullnægjandi greiningu á grenndarhagsmunum og bent er á að meðalhóf skorti, ekki hafi verið gætt rannsóknarskyldu o.s.frv. Eftir að hafa kynnt okkur vel rökstuddar athugasemdir og málefnalegar áhyggjur íbúa telja undirrituð ekki koma til álita að kynna tillögu til breytingar á aðalskipulagi óbreytta. Við höfnum því.“
    Helga Jónsdóttir, Hákon Gunnarsson, Andrés Pétursson og Indriði Ingi Stefánsson.

    Bókun:
    „Afstaða Skipulagsstofnunar gagnvart aðalskipulagsbreytingunni liggur fyrir og telur stofnunin breytinguna á aðalskipulagi ekki óverulega. Málið fer nú aftur í formlegt og gagnsætt skipulagsferli og verður tillagan því auglýst að nýju í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Þær ábendingar og athugasemdir sem bárust frá íbúum og hagsmunaaðilum í fyrra ferli eru málefnalegar og leggur meirihlutinn áherslu á að þessar athugasemdir muni nýtast við áframhaldandi vinnslu málsins og verða teknar til skoðunar í þeirri vinnu sem framundan er.“
    Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
    Niðurstaða Bæjarstjórn vísar málinu til leiðréttingar og nýrrar efnismeðferðar hjá skipulagsfulltrúa.

    Fundarhlé hófst kl. 18:41, fundi fram haldið kl. 18:44
  • 6.5 2411179 Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulagslýsing.
    Lögð fram tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu, dags. 16. janúar 2026, vegna breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytingar á deiliskipulagi fyrir Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæð húsa í allt að 11 hæðir, efsta inndregin, og breytingu á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið. Lagt fram minnisblað dags. 16. janúar 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 22 Samþykkt að framlögð skipulags- og matslýsing verði kynnt með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Bókun:
    „Skipulagsstofnun synjaði tillögu Kópavogsbæjar um að telja aðalskipulagsbreytinguna sem hér er til umfjöllunar óverulega. Í rökstuðningi stofnunarinnar kom fram að breytingin sé líkleg til að geta haft áhrif á hagsmuni íbúa og annarra hagsmunaaðila í nágrenninu. Í því ferli sem ógilt var gafst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum færi á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillögu. Mikill fjöldi athugasemda barst m.a. um skort á greiningum og mælingum t.d. á aukningu byggingarmagns, fjölgun íbúða, vindálagi, umferðarmál og bílastæði, ófullnægjandi greiningu á grenndarhagsmunum og bent er á að meðalhóf skorti, ekki hafi verið gætt rannsóknarskyldu o.s.frv. Eftir að hafa kynnt okkur vel rökstuddar athugasemdir og málefnalegar áhyggjur íbúa telja undirrituð ekki koma til álita að kynna tillögu til breytingar á aðalskipulagi óbreytta. Við höfnum því.“
    Helga Jónsdóttir, Hákon Gunnarsson, Andrés Pétursson og Indriði Ingi Stefánsson.

    Bókun:
    „Afstaða Skipulagsstofnunar gagnvart aðalskipulagsbreytingunni liggur fyrir og telur stofnunin breytinguna á aðalskipulagi ekki óverulega. Málið fer nú aftur í formlegt og gagnsætt skipulagsferli og verður tillagan því auglýst að nýju í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Þær ábendingar og athugasemdir sem bárust frá íbúum og hagsmunaaðilum í fyrra ferli eru málefnalegar og leggur meirihlutinn áherslu á að þessar athugasemdir muni nýtast við áframhaldandi vinnslu málsins og verða teknar til skoðunar í þeirri vinnu sem framundan er.“
    Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
    Niðurstaða Bæjarstjórn vísar málinu til leiðréttingar og nýrrar efnismeðferðar hjá skipulagsfulltrúa.
  • 6.9 25043616 Nýbýlavegur 1. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.
    Lögð fram að nýju tillaga skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2025 skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir lóðina nr. 1 við Nýbýlaveg. Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni verði breytt úr verslun og þjónustu í íbúðabyggð. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. nóvember 2025 var afgreiðslu frestað. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 22 Fundarhlé kl. 17:33, fundi framhaldið kl. 18:06.

    Samþykkt að framlögð skipulagslýsing verði kynnt með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Bókun:
    „Nýbýlavegur 1 er ein mikilvægasta og verðmætasta lóðin innan bæjarmarka Kópavogs. Fyrir liggur að breyta þarf landnotkun eða „tilgangi“ bygginga á lóðinni. Um það þarf Kópavogsbær að eiga viðræður við núverandi lóðarhafa og veghaldarann (Vegagerðina). Íbúar í grenndinni hafa sömuleiðis ríka hagsmuni af ákvörðun um ráðstöfun lóðarinnar og á raddir þeirra ber að hlusta. Það er ótímabært og gagnstætt hagsmunum íbúa og bæjarfélagsins að ákveða að þarna verði íbúabyggð eins og lagt er til í tillögunni. Við leggjumst gegn henni.“
    Hákon Gunnarsson, Indriði Ingi Stefánsson, Helga Jónsdóttir og Andrés Pétursson.

    Bókun:
    „Núverandi svæði er í dag skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði en skipulagslýsingin gerir ráð fyrir að svæðið verði íbúðarbyggð. Meirihlutinn leggur áherslu á að vegtenging verði einungis frá Nýbýlavegi. Í skipulagsvinnu þarf að skoða byggingarheimildir, hæðir húsa og aðra skilmála varðandi frágang, ásýnd og gæði byggðar. Í kynningu á skipulagslýsingu gefst tækifæri til að eiga samráð við íbúana enda leggur meirihlutinn ríka áherslu á að skipulagsvinnan fari fram í góðri sátt.“
    Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum, gegn atkvæðum Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Helgu Jónsdóttur og Thelmu B. Árnadóttur.
  • 6.11 2508452 Bakkabraut 9-23. Svæði 8. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram til afgreiðslu tillaga umhverfissviðs dags. 1. október 2025 að breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar fyrir lóðina nr. 9-23 við Bakkabraut, svæði 8 á þróunarsvæðinu á Kársnesi (ÞR-1). Í breytingunni felst breytt aðkoma að lóðinni, breytt fyrirkomulag bílastæða og djúpgáma. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. desember 2025 var tillögunni vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt minnisblaði frá skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 22 Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

7.2601009F - Velferðar- og mannréttindaráð - 13. fundur frá 12.01.2026

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
  • 7.1 25122502 Breytingar á reglum um útleigu félagslegra leiguíbúða vegna lagabreytinga
    Tillögur að breytingum á reglum um félagslegar leiguíbúðir Kópavogsbæjar lagðar fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðar- og mannréttindaráð - 13 Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir tillögur að breytingum á reglum um félagslegar leiguíbúðir Kópavogsbæjar og vísar þeim áfram til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar í bæjarstjórn. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar tillögur að breytingum á reglum um félagslegar leiguíbúðir Kópavogsbæjar.

Önnur mál fundargerðir

8.26011422 - Fundargerð 522. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.11.2025

Fundargerð 522. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.11.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

9.26011423 - Fundargerð 523. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.12.2025

Fundargerð 523. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.12.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.26011424 - Fundargerð 524. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.01.2026

Fundargerð 524. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.01.2026.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11.2601449 - Fundargerð 413. fundar stjórnar Strætó frá 20.10.2025

Fundargerð 413. fundar stjórnar Strætó frá 20.10.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.2601450 - Fundargerð 414. fundar stjórnar Strætó frá 22.10.2025

Fundargerð 414. fundar stjórnar Strætó frá 22.10.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.2601451 - Fundargerð 415. fundar stjórnar Strætó frá 05.11.2025

Fundargerð 415. fundar stjórnar Strætó frá 05.11.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14.2601452 - Fundargerð 416. fundar stjórnar Strætó frá 14.11.2025

Fundargerð 416. fundar stjórnar Strætó frá 14.11.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15.2601453 - Fundargerð 417. fundar stjórnar Strætó frá 12.12.2025

Fundargerð 417. fundar stjórnar Strætó frá 12.12.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

16.2601454 - Fundargerð 418. fundar stjórnar Strætó frá 17.12.2025

Fundargerð 418. fundar stjórnar Strætó frá 17.12.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

17.2601455 - Fundargerð 419. fundar stjórnar Strætó frá 22.12.2025

Fundargerð 419. fundar stjórnar Strætó frá 22.12.2025.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 18:46.