Bæjarstjórn

1333. fundur 10. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:52 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ásdís Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson, aðalmaður boðaði forföll og Hanna Carla Jóhannsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Einar Örn Þorvarðarson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Önnur mál fundargerðir

1.2601015F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 435. fundur frá 16.01.2026

Fundagerð í 23 liðum.
Fundarhlé hófst kl. 17:45, fundi fram haldið kl. 18:15.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar fundargerð byggingarfulltrúa.

Önnur mál fundargerðir

2.2601022F - Bæjarráð - 3244. fundur frá 29.01.2026

Fundargerð í 12 liðum.
  • 2.2 26011425 Viðbrögð við niðurstöðu ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs.
    Frá SSH. dags. 16.01.2026, lagðar fram niðurstöður ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs. Niðurstaða Stefnuráðs byggðasamlaganna fellst fyrir sitt leyti á að fyrirliggjandi tillögum verði vísað til afgreiðslu aðildarsveitarfélaganna. Á grundvelli ofangreinds er farið fram á að meðfylgjandi tillaga um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., sem nánar er lýst í fylgiskjali 2, verði tekin til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélagsins. Niðurstaða Bæjarráð - 3244 Kynning og umræður.
    Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:05

    Gestir viku af fundi kl. 10.51

    Bæjarráð vísar tillögu um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., Líf ehf. og Lok ehf., til afgreiðslu bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða tillögu SSH um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., Líf ehf. og Lok ehf.

Önnur mál fundargerðir

3.2601031F - Bæjarráð - 3245. fundur frá 05.02.2026

Fundargerð í 21 lið.
Lagt fram.
  • 3.2 26012406 Lántökur Kópavogsbæjar 2026
    Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 03.02.2026, lögð fram tillaga um að gefa út skuldabréf í skuldabréfaflokknum KOP24-1 að markaðsvirði allt að 3.000 milljónir. Jafnframt er óskað eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar til tímabundinnar hækkunar á lánalínum bæjarins hjá Arion banka ef með þarf, á meðan á sölu skuldabréfanna stendur. Niðurstaða Bæjarráð - 3245 Gestur vék af fundi kl. 11:55.

    Dagskrártillaga:
    "Undirritaðar óska eftir frestun til öflunar frekari upplýsinga í samræmi við neðangreinda bókun."

    Theódóra S. Þorsteinsdóttir
    Helga Jónsdóttir
    Bergljót Kristinsdóttir

    Bæjarráð hafnar með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur tillögu um frestun málsins.

    Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðu gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur framlagða tillögu um útgáfu skuldabréfa í flokknum KOP24-1 og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.


    Bókun:
    "Skrifstofa áhættu- og fjárstýringar var sett á fót til að sinna betur greiningu á áhættu og fjárfestingum. Skrifstofan á að móta áhættustefnu og tryggja virka áhættustýringu í starfsemi og rekstri bæjarins. Einn mikilvægasti þátturinn í hlutverkinu er skiljanleg lánastýring. Fjármagnskostnaður, sem nú er í hæstu hæðum, er áhættuþáttur, sem bæjarráð getur haft mikil áhrif á. Tillögur verða að byggjast á skýrri greiningu á kostnaði við mismunandi valkosti sem til greina koma við fjármögnun á verkefnum bæjarins. Þess er því óskað að fyrir bæjarráð verði lagt mun skýrara mat á mismunandi leiðum til fjármögnunar fjárfestinga og rekstrar Kópavogsbæjar ásamt yfirliti yfir lántökur síðustu fimm ára. Núllkosturinn til samanburðar er að nýta tekjur Kópavogsbæjar til niðurgreiðslu lána. Þá fyrst þegar slíkar upplýsingar hafa verið lagðar fyrir getur bæjarráð tekið afstöðu til þess hvernig og hvaða verkefni á að fjármagna með lánsfé.

    Helga Jónsdóttir
    Theódóra S. Þorsteinsdóttir
    Bergljót Kristinsdóttir


    Fundarhlé hófst kl. 11:15, fundi fram haldið kl. 11:42


    Bókun:
    "Fyrirliggjandi tillaga er í fullu samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og lántökuheimildir ársins 2026, þar sem þegar hefur verið gert ráð fyrir bæði lántökum og afborgunum langtímalána. Hér er því ekki verið að taka nýja stefnumótandi ákvörðun um aukna skuldsetningu heldur verið að útfæra fjármögnun sem þegar hefur verið samþykkt. Meirihlutinn fellst á tillögu deildarstjóra greiningardeildar og telur ekki ástæðu til að fresta málinu."

    Ásdís Kristjánsdóttir
    Orri Hlöðversson
    Andri Steinn Hilmarsson
    Elísabet Sveinsdóttir
    Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum, gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Einars A. Þorvarðarsonar og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur framlagða tillögu um að gefa út skuldabréf í skuldabréfaflokknum KOP24-1 að markaðsvirði allt að 3.000 milljónir króna. Jafnframt er samþykkt að heimila tímabundna hækkun á lánalínum bæjarins hjá Arion banka ef með þarf, á meðan á sölu skuldabréfanna stendur.
  • 3.4 23031542 Neyðarstjórn Kópavogsbæjar - Erindisbréf
    Frá bæjarstjóra, dags. 03.02.2026, lagt fram uppfært erindisbréf neyðarstjórnar Kópavogs. Niðurstaða Bæjarráð - 3245 Bæjarráð vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum uppfært erindisbréf neyðarstjórnar Kópavogs.

Önnur mál fundargerðir

4.2601024F - Forsætisnefnd - 249. fundur frá 05.02.2026

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

5.2601011F - Innkaupanefnd - 12. fundur frá 19.01.2026

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

6.2601021F - Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 9. fundur frá 29.01.2026

Fundargerð í 35 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.2601035F - Menntaráð - 156. fundur frá 03.02.2026

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

8.2601032F - Skipulags- og umhverfisráð - 23. fundur frá 02.02.2026

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
  • 8.4 2512205 Hæðarhvarf 2. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Hæðarhvarf dags. 1. desember 2025 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst aukning byggingarmagns 32,1 m2 vegna útbygginga yfir svölum, B-rými. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,44 í 0,49. Uppdrættir dags. 29. nóvember 2025 og skráningartafla ódags. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 22. desember 2025 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
    Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2026.
    Kristjana H. Kristjánsdóttir gerði grein fyrir erindinu.
    Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 23 Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2026 með fimm atkvæðum Andra Steins Hilmarssonar, Þorðvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Leós Snæs Péturssonar Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
  • 8.5 2402739 Nónhæð. Nónsmári 1-17. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju til afgreiðslu tillaga Hrólfs Carls Cela arkitekts dags. 12. febrúar 2024 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1-17 við Nónsmára að breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst tilfærsla íbúða milli lóða og hækkun byggingarreita úr tveimur hæðum í þrjár á norðurhluta lóðanna. Heildarfjöldi íbúða á lóðunum tveimur helst óbreyttur, 100 íbúðir. Á lóðinni nr. 11-17 er íbúðum fjölgað úr 45 í 47 íbúðir. Hámarksflatarmál ofanjarðar er aukið um 490 m², úr 4.840 m² í 5.330 m², við það hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,92 í 1,01. Á lóðinni nr. 1-9 er íbúðum fækkað úr 55 í 53 íbúðir og stigahúsum fjölgar um eitt, úr fjórum í fimm. Nyrsti hluti byggingarreits hækkar úr tveimur í þrjár hæðir. Hámarksflatarmál ofanjarðar er aukið um 1.240 m², úr 5.960 m² í 7.200 m², við það hækkar nýtingarhlutfall úr 0,94 í 1,10. Lóðin stækkar um 185 m², úr 6.360 m² í 6.545 m² til austurs að göngu- og hjólastíg meðfram Smárahvammsvegi. Tillagan var auglýst frá 23. október til 15. janúar 2026, athugasemdir bárust. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 30. janúar 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa ásamt fylgiskjölum dags. 30. janúar 2026. Einnig eru lögð fram andmæli lóðarhafa við framkomnum athugasemdum dags. 26. janúar 2026 og 28. janúar 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 23 Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. janúar 2026 með fimm atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Þorðvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Leó Snæs Péturssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Fundarhlé hófst kl. 17:08, fundi framhaldið kl. 17:32.

    Bókun:
    „Undirrituð leggjast gegn breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Þegar deiliskipulag liggur fyrir eftir vandaðan undirbúning og víðtækt samráð geta einstakir lóðarhafar ekki vænst breytinga til hagsbóta fyrir sig nema veigamiklar nýjar ástæður komi fram sem réttlæta þá breytingu. Nýjar upplýsingar sem réttlæta breytingu á deiliskipulaginu hafa ekki komið fram. Það er varhugavert fordæmi og rýrir trúverðugleika stjórnvalda ef þau gefa þau skilaboð að breyting á samþykktu deiliskipulag sé samningsatriði eftir á. Þetta mál hefur tafist vegna ítrekaðra breytingabeiðna og dráttur á verklokum er óhæfilegur og óásættanlegur fyrir íbúa í nágrenninu.“
    Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

    Bókun:
    „Eins og kemur fram í umsögn skipulagsfulltrúa hafa þær breytingar sem felast í tillögu að breyttu deiliskipulagi Nónsmára 1-9 og 11-17 óveruleg áhrif á nærliggjandi byggð og munu ekki raska hagsmunum nágranna að teljandi marki.“
    Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson, Gunnar Sær Ragnarsson og Þorvarður Hrafn Ásgeirsson.
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með sex atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Einars A. Þorvarðarsonar, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.

Önnur mál fundargerðir

9.2602001F - Ungmennaráð - 56. fundur frá 26.01.2026

Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.26013179 - Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 23.01.2026

Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 23.01.2026.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11.26011786 - Fundargerð 13. fundar stefnuráðs frá 07.11.2025

Fundargerð 13. fundar stefnuráðs frá 07.11.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.26011788 - Fundargerð 621. fundar stjórnar SSH frá 19.01.2026

Fundargerð 621. fundar stjórnar SSH frá 19.01.2026
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.26011750 - Fundargerð 55. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.01.2026

Fundargerð 55. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.01.2026.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14.26012636 - Fundargerð 277. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 09.01.2026

Fundargerð 277. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 09.01.2026.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15.26013152 - Fundargerð 420. fundar stjórnar Strætó frá 23.01.2026

Fundargerð 420. fundar stjórnar Strætó frá 23.01.2026.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 18:52.