3.2
26023222
Menningamiðstöð í efri byggðum Kópavogs og Smáralind
Niðurstaða Bæjarráð - 3248
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl. 10.34.
Fundarhlé hófst kl. 10:35, fundi fram haldið kl. 10:45.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur tillögu að staðsetningu menningarmiðstöðvar í efri byggðum, ásamt því að veita þróunar- og umbótastjóra umboð til áframhaldandi mótunar og þróunar verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu. Tillögunni vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum, gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að veita umbóta- og þróunarstjóra heimild til undirritunar leigusamnings við Heima vegna leigurýmis í Smáralind, ásamt umboði til áframhaldandi þróunar verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu. Tillögunni vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundarhlé hófst kl. 10:51, fundi fram haldið kl. 12:51
Andri Steinn Hilmarsson vék af fundi kl. 11:30 og tók Ásdís Kristjánsdóttir sæti varamanns í hans stað.
Bókun:
"Við áteljum að þessi mál séu lögð fyrir sem eitt. Annars vegar er ósk um heimild til mjög mikillar fjárbindingar með undirritun samnings við eigendur Smáralindar um leigu til 10 ára. Til þess að afgreiða þá tillögu telja undirritaðar nauðsynlegt að fyrir liggi mun skýrari upplýsingar en nú er. T.d. er áætlun um rekstrarkostnað alls ekki undirbyggð. Ljóst þarf að vera hvaða raunverulegur stofn- og rekstrarkostnaður fylgi samningum um menningarstarfsemi Kópavogsbæjar á nýjum stað. Enginn rökstuðningur er fyrir því af hverju tímabært er að leggja í þessa fjárfestingu og opna aðstöðu í Smáralind áður en bókasafn í efri byggðum getur orðið að raunveruleika. Víð óskum eindregið eftir fresti til að kanna þetta mál betur m.a. hvort aðrir aðilar á sama svæði hafi hug á að bjóða Kópavogsbæ aðstöðu. Í hinu málinu er samstaða um nauðsyn þess að almenningsbókasafn, sem verið getur vettvangur menningarviðburða, rísi í efri byggðum. Ekki er ágreiningur um staðsetningu í Kórnum ef greinargerð, sem við óskum eftir frá forstöðumanni bókasafns bæjarins staðfestir að 175 fermetrar dugi til þess að þjóna þeim markmiðum sem að hefur verið stefnt í efri byggðum."
Helga Jónsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Bókun:
"Með menningarkjarna í Kórnum og samstarfi við Smáralind hefur skapast einstakt tækifæri til að færa menningarstarfsemi nær íbúum. Fram undan er fjölgun íbúa á svæðinu og mikilvægt að mæta þörfum þeirra. Að mati meirihlutans eru undirliggjandi gögn bæði vel ígrunduð og faglega fram sett af starfsmönnum bæjarins. Meirihlutinn sér því ekki tilefni til annars en að styðja í einu og öllu afgreiðslu Menningar- og mannlífsnefndar sem var samþykkt samhljóða."
Hjördís Ýr Johnson
Orri V. Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Bókun:
"Enn á ný kemur valdhroki og yfirgangur, sem meirihluti hefur sýnt minnihluta á þessu kjörtímabili skýrt fram, þegar neitað er um eðlilegan frest til að kynna sér stórmál með fullnægjandi hætti. Um er að ræða mjög háa og langvarandi fjárbindingu með 10 ára leigusamningi. Með málsmeðferðinni er vegið að umræðu, aðhaldi og ábyrgri ákvörðunartöku.
Rangar áherslur felast í forgangsröðuninni sem meirihlutinn leggur til. Með henni verður aðstaða í Smáralind, sem hvorki var rædd í aðdraganda kosninga né eftir þær, forgangsmál og opnuð 2027 en aðstaða í efri byggðum sem allir hafa verið sameinaðir um bíður til 2029. Sú röðun er m.a.s. í hróplegu ósamræmi við málefnasamning meirihlutans þar sem segir að stuðla skuli að því að menningakjarnar verði starfræktir í efri byggðum samhliða þungamiðju starfseminnar við Hamraborg og MEKÓ.
Að óbreyttu teljum við ekki forsvaranlegt að afgreiða málið. Skýr og rökstudd gögn um raunverulegan stofn- og rekstrarkostnað, forsendur kostnaðaráætlana og hvort aðrir raunhæfir valkostir hafi verið kannaðir þurfa að liggja fyrir."
Helga Jónsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Bókun:
"Meirihluti vísar ásökunum um valdhroka á bug enda er verið að vinna út frá einróma samþykkt Menningar- og mannlífsnefndar. Ákvörðunin er algjörlega í samræmi við málefnasamning meirihluta enda er með henni verið að stuðla að því að menningarkjarni verði starfræktur í efri byggðum. Skipulagsferlið er fram undan og allt kapp verður lagt á að flýta þeirri vinnu þannig að hægt verði að opna menningarkjarna í Kórnum fyrir 2029. Hér er því stigið stórt skref í átt að enn blómlegra menningarlífi í Kópavogi."
Hjördís Ýr Johnson
Orri V. Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Niðurstaða
Fundarhlé hófst kl. 17:59, fundi fram haldið kl. 18:23.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 18:00 og tók Jóhanna Pálsdóttir sæti á fundinum í hennar stað.
Fundarhlé hófst kl. 18:59, fundi fram haldið kl. 19:01.
Dagskrártillaga, ásamt greinargerð (sjá fylgiskjal undir máli nr. 3):
"Lagt er til að bæjarstjórn vísi fyrirliggjandi tillögum um:
1. Staðsetningu menningarmiðstöðvar í efri byggðum Kópavogs og Smáralind
2. Undirritun leigusamnings við Heima vegna leigurýmis í Smáralind
til frekari umfjöllunar og upplýsingaöflunar í bæjarráði áður en málið er tekið til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Um tvö aðskilin mál er að ræða, annars vegar staðsetningu í Kórnum fyrir bókasafn í efri byggðum. Lengi hefur verið beðið eftir bókasafni og menningarmiðstöð fyrir íbúa efri byggða. Fyrirheitið í Áttavita til árangurs, málefnasáttmála Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, var að stuðla að því að menningarkjarnar verði starfræktir í efri byggðum samhliða þungamiðju starfseminnar í menningarhúsunum við Hamraborg, MEKÓ. Tillagan sem nú hefur verið kynnt er gjörbylting á fyrirliggjandi stefnu og fyrirheitum. Hún felur í sér að allri framkvæmd í efri byggðum verður skotið á frest til 2029. Þess í stað á Smáralindin, sem er vestan Reykjanesbrautar að þjóna hlutverki menningarmiðstöðvar fyrir efri byggðir. Leigusamningur um 900 fm. aðstöðu í Smáralind til 10 ára kostar Kópavogsbæ meira en milljarð króna. Á móti verða 175 fm. lagðir undir bókasafn í Kórnum. Engin rök eru færð fyrir því að Kópavogsbæ liggi svo mikið á að undirrita leigusamninginn að bæjarfulltrúum gefist hvorki tími né gögn til að geta með góðri samvisku tekið upplýsta ákvörðun. Því er þess eindregið farið á leit að frestur gefist til að fá skilning á verkefninu og geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu um það. Í greinargerð með þessari tillögu koma m.a. fram umræðuefni og spurningar sem flutningsmenn telja nauðsynlegt að ræða í bæjarráði og fá umsagnir og upplýsingar um."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
Kolbeinn Reginsson
Jóhanna Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 19:08, fundi fram haldið kl. 19:38
Bæjarstjórn hafnar tillögu um frestun með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Jóhönnu Pálsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
Bókun:
"Meirihlutinn fellst ekki á að fresta málinu. Mikilvægt er að hraða uppbyggingu menningar- og bókasafnsþjónustu sem íbúar efri byggða hafa beðið eftir um árabil. Það er í fullu samræmi við málefnasáttmála meirihlutans, Áttavita til árangurs. Traustur rekstur bæjarins undanfarin ár gerir bænum kleift að ráðast í þessa metnaðarfullu uppbyggingu sem mun efla menningu, mannlíf og samfélagið í heild. Fyrir liggja fullnægjandi gögn til að taka ákvörðun og eðlilegt er að nánari útfærsla haldi áfram samhliða verkefninu."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Björg Baldursdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 20:01, fundi fram haldið kl. 20:34
Bókun:
"Synjun meirihlutans staðfestir það sem óttast hefur verið frá upphafi: að niðurstaðan hafi verið fyrirfram ákveðin og að aldrei hafi staðið til að veita minnihlutanum svigrúm til að rýna málið á jafnræðisgrundvelli. Bersýnilega hafa fulltrúar meirihlutans haft meiri upplýsingar undir höndum en við hin og fengið þær fyrr. Þegar beiðni um eðlilegan frest til að afla upplýsinga sem gera okkur kleift að taka upplýsta afstöðu er hafnað er það skýr birtingarmynd um valdhrokann sem einkennir störf meirihlutans.
Við höfnum því að fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir. Enn vantar skýringar um að gætt hafi verið sjónarmiða stjórnsýslulaganna t.d. um jafnræði og ákvæða samkeppnislaga um að raska ekki samkeppnisstöðu. Að auki vantar upplýsingar um kostnað, rekstrarforsendur, skuldbindingar, valkosti og áhrif á þjónustu við íbúa. Að knýja málið áfram við þessar aðstæður, á lokaspretti kjörtímabils, er yfirgangur af hálfu meirihluta sem telur sig ekki þurfa að svara málefnalegum spurningum áður en hann skuldbindur bæinn um háar fjárhæðir þrjú kjörtímabil fram í tímann."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
Kolbeinn Reginsson
Jóhanna Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn hafnar þeim ásökunum sem fram koma í bókun minnihlutans. Málið hefur verið í eðlilegu stjórnsýsluferli, fullnægjandi upplýsingar liggja fyrir til ákvörðunar. Meirihlutinn telur það hluta af ábyrgri stjórnsýslu að taka ákvarðanir á slíkum grundvelli í stað þess að fresta verkefnum sem miða að bættri þjónustu við íbúa. Tryggt verður að upplýsingum um framgang verkefnanna verði reglulega skilað til bæjarráðs."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Björg Baldursdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Bókun:
"Fyrirheitin um reglulega upplýsingagjöf til að gera bæjarráði kleift að sinna eftirlitshluverki sínu hafa ekki gengið eftir allt þetta kjörtímabil. Hvers vegna ætti að búast við öðru í þessu tilviki?"
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
Kolbeinn Reginsson
Jóhanna Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 20:38, fundi fram haldið kl. 20:39.
Tillaga um menningarmiðstöð í efri byggðum:
Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur tillögu að staðsetningu menningarmiðstöðvar í efri byggðum, ásamt því að veita þróunar- og umbótastjóra umboð til áframhaldandi mótunar og þróunar verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu.
Tillaga um menningarmiðstöð í Smáralind:
Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum, gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur að veita umbóta- og þróunarstjóra heimild til undirritunar leigusamnings við Heima vegna leigurýmis í Smáralind, ásamt umboði til áframhaldandi þróunar verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu.