Bæjarstjórn

1338. fundur 28. apríl 2026 kl. 16:00 - 20:33 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ásdís Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Hákon Gunnarsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Bergur Þorri Benjamínsson varamaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá
Kl. 19:01, vék Hjördís Ýr Johnson af fundi og tók Bergur Þorri Benjamínsson sæti í hennar stað.

Önnur mál fundargerðir

2.2604006F - Bæjarráð - 3253. fundur frá 16.04.2026

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
  • 2.5 26041577 Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
    Lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er vegna endurnýjunar tennisvalla við Tennishöllina. Niðurstaða Bæjarráð - 3253 Umræður.

    Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur framlagaðn viðauka nr. 1.

    Fundarhlé hófst kl. 11:52, fundi fram haldið kl. 12:16

    Bókun:
    "Útgjöld að fjárhæð 48 milljónir króna sem lögð eru til í viðaukanum til endurgerðar tennisvalla hefðu átt að vera ljós við fjárhagsáætlunargerð og vera hluti af bindandi fjárhagsáætlun 2026. Hér er lagt til að fjármagna það með því að fresta útgjöldum vegna skóla í Vatnsendahvarfi. Væntanlega þarf að gera ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun 2027. Ekki er í þessum viðauka fullnægt skilyrðum um tilfærslu milli verkefna í fjárfestingaráætlun heldur er um hreina viðbót að ræða. Minnt er á að með tillögu um viðauka skal fylgja minnisblað um tillöguna og hvaða áhrif hún hefur á samþykkta fjárhagsáætlun. Slíkar skýringar fylgja ekki. Ennfremur er minnt á að samkvæmt reglugerð á sveitarstjórn á að setja sérstakar reglur um heimildir vegna tilfærslu á milli launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar og millifærslu milli deilda. Þetta á jafnframt við um fjárfestingu og tilfærslu milli verkefna. Þrátt fyrir umræður um nauðsyn þessa í bæjarráði hafa engar tillögur um slíkar reglur verið lagðar fyrir af hálfu bæjarstjóra og stjórnsýslunnar."

    Helga Jónsdóttir


    Bókun:
    "Það er ekki verið að fresta útgjöldum vegna skólans sem er í undirbúningi. Forhönnun og samráðsferli er í fullum gangi en ljóst að ekki næst að fjárfesta fyrir alla fjárhæðina í fjárhagsáætlun á þessu ári."

    Hjördís Ýr Johnson
    Andri S. Hilmarsson
    Björg Baldursdóttir


    Bókun:
    "Bókun meirihlutans staðfestir að útgjöldum vegna skólans í Vatnsendahvarfi er frestað til fjárhagsáætlunar næsta ár."

    Helga Jónsdóttir
    Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir framlagðan viðauka með níu atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar og Helgu Jónsdóttur.

Önnur mál fundargerðir

3.2603009F - Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 23. fundur frá 16.03.2026

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

4.2604008F - Innkaupanefnd - 16. fundur frá 13.04.2026

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
  • 4.1 2402380 Stúka HK Kórinn
    Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 10.4.2026 lögð fram beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn. Lagt fram til ákvörðunar. Niðurstaða Innkaupanefnd - 16 Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 10.4.2026 er lögð fram til ákvörðunar beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn.

    Umræður og skýringar.

    Samþykkt er með fjórum atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

    Gestur víkur af fundi kl. 15:45.

    Niðurstaða Fundarhlé hófst kl. 19:44, fundi fram haldið kl. 20:27.


    Tillögu Helgu Jónsdóttur um frestun málsins hafnað með sex atkvæðum gegn atkvæðum Kolbeini Reginssyni, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákonar Gunnarssonar og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.


    Bæjarstjórn staðfestir með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Hákonar Gunnarssonar afgreiðslu innkaupanefndar, dags. 13. apríl 2026, með fyrirvara um niðurstöðu kærunefndar útboðsmála, skv. 2. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016.


    Bókun:
    Undirrituð frábiður sér að bæjarstjóri geri henni upp skoðanir og ásetning í þessu máli, og væntir þess að forseti áminni bæjarstjóra. Siðareglur kveða á um að bæjarfulltrúar skuli sýna háttvísi og bera virðingu fyrir skoðunum annarra.

    Undirrituð telur gögnin sem fylgja þessu máli vera ófullnægjandi með öllu. Enginn gæðamatstafla né rökstuðningur liggur fyrir og því er ótækt að taka ákvörðun.

    Theódóra S. Þorsteinsdóttir


    Bókun:
    Matsaðferðarfræðin lá skýrt fyrir með vægi og forsendum við upphaf innkaupaferlisins. Niðurstöður matsins liggja fyrir varðandi verð, gæði og heildarniðurstöðu matsins. Við val á hagstæðasta tilboði var byggt á þessum atriðum. Að halda því fram að engin gögn eða rökstuðningur liggi fyrir er því alrangt.

    Ásdís Kristjánsdóttir
    Orri Hlöðversson
    Andri Steinn Hilmarsson
    Björg Baldursdóttir
    Elísabet Sveinsdóttir
    Bergur Þorri Benjamínsson

Önnur mál fundargerðir

5.2604005F - Velferðar- og mannréttindaráð - 16. fundur frá 13.04.2026

Fundargerð í sautján liðum.
Lagt fram.
  • 5.10 26011311 Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð
    Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðar- og mannréttindaráð - 16 Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð.
  • 5.11 26011302 Breytingar á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa
    Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðar- og mannréttindaráð - 16 Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um styrki til náms, verkæra- og tækjakaupa og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar breytingar á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa.

Önnur mál fundargerðir

6.2603011F - Öldungaráð - 30. fundur frá 18.03.2026

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Kosningar

7.2206323 - Kosningar í hverfakjörstjórnir 2022-2026

Kosning aðalmanns í Smárann og kosning varmanns í Kórinn.
Helga Magnúsdóttir er kosin aðalmaður í hverfiskjörstjórn í Smáranum í stað Magnúsar Þorsteinssonar.

Halla Evans er kosin varamaður í hverfiskjörstjórn í Smáranum í stað Skúla Hansen.

Fundi slitið - kl. 20:33.