Bæjarstjórn

1039. fundur 14. júní 2011 kl. 16:00 - 18:00 í bæjarstjórnarsal
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1105023 - Bæjarráð 26/5

2596. fundur

Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson um liði 6, 7, 9 og 12, Gunnar Ingi Birgisson um liði 7, 10, 15 og 25, Guðríður Arnardóttir um liði 6, 10 og 15 og Gunnar Ingi Birgisson um lið 15.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

2.1105510 - Sumarleyfi bæjarstjórnar 2011, sbr. lið 25 í fundargerð

Forseti bar undir fundinn tillögu að sumarfundum bæjarstjórnar, sem samþykkt var í bæjarráði, sbr. lið 25:
Frá formanni bæjarráðs, lagt er til að fundartímar bæjarráðs í júlí og ágúst 2011 verði sem hér segir:

Þann 7. og 21. júlí og 11. og 25. ágúst.

Lagt er til að fundir bæjarstjórnar falli niður í júlí og ágúst.

Samkvæmt lögum nr. 45/1988 með síðari breytingum fer bæjarráð með vald bæjarstjórnar í sumarleyfi hennar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með tíu samhljóða atkvæðum.

 

3.1105026 - Bæjarráð 3/6

2597. fundur

Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson um liði 3, 7, 8, 11, 14, 20, 27, , 32 og 39, Guðríður Arnardóttir um lið 3 og lagði til að liðnum yrði vísað til félagsmálaráðs að nýju, Ómar Stefánsson um liði 3, 16 og 14, og vakti athygli á vanhæfi sínun undir lið 16, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 3, 39 og 32, Karen Halldórsdóttir um lið 3, Aðalsteinn Jónsson um lið 3, Gunnar Ingi Birgisson um liði 3, 7, 16, 27, 37 og 38, Guðríður Arnardóttir um lið 3, Ómar Stefánsson um lið 3, Guðmundur Freyr Sveinsson um lið 3, Ármann Kr. Ólafsson um lið 3 og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um lið 3.

 

Ómar Stefánsson vék af fundi við umræður um lið 16.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

4.1105239 - Reglur Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð, sbr. lið 3 í fundargerð

Breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð, samþykktar í félagsmálaráði. Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkti með tíu samhljóða atkvæðum tillögu Guðríðar Arnardóttur um að lið 3 í fundargerð bæjarráðs yrði vísað til félagsmálaráðs að nýju.

5.1106004 - Bæjarráð 9/6

2598. fundur

Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson um liði 2, 4, 8, 10, 12 og 13, Gunnar Ingi Birgisson um liði 10,11, 13, 14, 21 og 22, Hjálmar Hjálmarsson um liði 7 og 6, Ármann Kr. Ólafsson um stjórn fundarins, Ómar Stefánsson um stjórn fundarins, Ómar Stefánsson um liði 6, 8, 27, 11, 15 og 30, Karen Halldórsdóttir um lið 2, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 30 og 15, Hjálmar Hjálmarsson um liði 18 og 20, Ómar Stefánsson um lið 20, Ármann Kr. Ólafsson um liði 3 og 11, Hafsteinn Karlsson um lið 11, Ármann Kr. Ólafsson um lið 11 og Hafsteinn Karlsson um lið 11. Þá óskuðu Ármann Kr. Ólafsson og Hafsteinn Karlsson eftir því að bera af sér sakir.

 

Hlé var gert á fundi kl. 18:40.  Fundi var fram haldið kl. 18:43.

 

Ómar Stefánsson tók til máls um stjórn fundarins og óskaði eftir úrskurði forseta um hæfi bæjarfulltrúa til að taka þátt í afgreiðslu á lið 11. Forseti taldi engan bæjarfulltrúa vanhæfan til afgreiðslu á lið 11 með vísan til 19. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

6.1011015 - Vatnsendablettur 102 (nú Ennishvarf 13)

Forseti bar undir fundinn mál sem ágreiningur var um í bæjarráði, sbr. lið 11 í fundargerð.
Meirihlutinn leggur fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fá álit utanaðkomandi lögfræðings með tilliti til jafnræðis í sambærilegum málum.
Ólafur Þór Gunnarsson Hjálmar Hjálmarsson Hafsteinn Karlsson Guðmundur Freyr Sveinsson"

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með sex atkvæðum gegn einu.  Fjórir bæjarfulltrúar sátu hjá.

7.1105579 - Beiðni um aukið stöðugildi lögfræðings á velferðarsviði

Forseti bar undir fundinn mál, sem ágreiningur var um í bæjarráði, sbr. lið 14 í fundargerð.

Bæjarstjórn samþykkir beiðnina með sex atkvæðum gegn fjórum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.

8.1103083 - Fífuhvammur 25. Viðbygging

Forseti bar undir fundinn mál, sem ágreiningur var um í bæjarráði, sbr. lið 21 í fundargerð. Bæjarráð staðfesti afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnaði erindinu með þremur atkvæðum gegn tveimur.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með sex atkvæðum gegn fjórum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

9.1105014 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 17/5

10. fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa án umræðu.

10.1105022 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 24/5

11. fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa án umræðu.

11.1105024 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 31/5

12. fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa án umræðu.

12.1106006 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 7/6

13. fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa án umræðu.

13.1105019 - Félagsmálaráð 25/5

1309. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

14.1106003 - Félagsmálaráð 7/6

1310. fundur

Til máls tók Ómar Stefánsson um liði 2 og 11 og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um lið 2.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

15.1105029 - Íþróttaráð 8/6

4. fundur

Til máls tóku Hjálmar Hjálmarsson um liði 2 og 1, Aðalsteinn Jónsson um lið 2 og um viðræður við íþróttafélögin og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um lið 2 og um viðræður við íþróttafélögin. 

 

Ómar Stefánsson vék af fundi undir umræðum um lið 1.

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

16.1105020 - Jafnréttis- og mannréttindanefnd 24/5

3. fundur

Til máls tóku Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um lið 3, Ármann Kr. Ólafsson um lið 1 og skipan nefndarinnar, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um lið 1 og skipan nefndarinnar og Ármann Kr. Ólafsson um skipan nefndarinar.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

17.1105027 - Leikskólanefnd 7/6

19. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

18.1106002 - Menningar- og þróunarráð 6/6

6. fundur

Til máls tóku Hjálmar Hjálmarsson um liði 3, 7 og 9 og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, um liði 4, 7 og 8. Þá tók Ármann Kr. Ólafsson til máls um stjórn fundarins. Þá tók til máls Ómar Stefánsson um liði 3, 2 og 9. Þá tók Hjálmar Hjálmarsson til máls um stjórn fundarins. Þá tók Ármann Kr. Ólafsson til máls um lið 7.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

19.1105025 - Skólanefnd 1/6

30. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

20.1105028 - Skólanefnd 6/6

31. fundur

Til máls tóku Hjálmar Hjálmarsson um lið 1 og Ármann Kr. Ólafsson um lið 1 og lagði til að málinu verði vísað til umsagnar skólastjóra. Þá tók til máls Guðríður Arnardóttir um lið 1 og lagði til að tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar yrði vísað til úrvinnslu bæjarráðs.

 

Bæjarstjórn samþykkti með níu samhljóða atkvæðum að tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar yrði vísað til bæjarráðs.

 

Hafsteinn Karlsson og Guðmundur Freyr Sveinsson viku af fundi undir umræðum um lið 1.

 

Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.

21.1101862 - Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 27/5

787. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

22.1101865 - Stjórn skíðasvæða hbsv. 30/5

314. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

23.1101867 - Stjórn slökkviliðs hbsv. 20/5

101. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

24.1106005 - Umhverfis- og samgöngunefnd 23/5

5. fundur

Fundargerðin afgreidd án umræðu.

Fundi slitið - kl. 18:00.