Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa

39. fundur 28. janúar 2026 kl. 09:00 - 11:18 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
Dagskrá

Almenn erindi

1.25112716 - Hamraborg 36. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnra nr. 36 við Hamraborg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að koma fyrir svalalokun á íbúð 204 á 2. hæð. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 28. janúar 2026.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2026 er ekki gerð athugasemd við að sótt verði um byggingarleyfi.

Almenn erindi

2.25121660 - Hjallabrekka 1. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Adrians Sölva Ingimundarsonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Hjallabrekku dags. 16. desember 2025 um breytta skráningu efri hæðar hússins á lóðinni úr gistiheimili í íbúðarhúsnæði. Einnig er spurst fyrir um hvort heimilað verði að reisa íbúðarhús á þremur hæðum í stað núverandi húss á lóðinni. Fyrirspurninni fylgir greinargerð og skýringarmyndir ódags. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 22. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 28. janúar 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2026.

Almenn erindi

3.2601187 - Kópavogsbraut 105. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 19. desember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Jóns M. Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 105 við Kópavogsbraut. Sótt er um 55 m² bílgeymslu og 31 m² svalir norðvestanmegin við núverandi hús. Uppdrættir dags. 3. desember 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 28. janúar 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að hagsmunaaðilum að Kópavogsbraut 98, 100, 103, 103A og 107 og Þinghólsbraut 72 og 74. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

Almenn erindi

4.2601199 - Holtagerði 49. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 19. desember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Bjarna Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 49 við Holtagerði. Sótt er um leyfi til að byggja 48 m² viðbyggingu sunnanmegin við núverandi hús. Uppdrættir dags. 24. nóvember 2025.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Holtagerði 43, 45, 47, 51, 53, 55 og Skólagerði 32, 34, 36 og 38. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

Almenn erindi

5.25112620 - Smáratorg 3. LED skilti. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 21. nóvember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Arkís arkitekta f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 3 við Smáratorg. Sótt er um að koma fyrir 25 m² LED skilti/auglýsingaskjá með birtuskynjara á norðurgafli 2. hæðar. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 28. janúar 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2026.

Almenn erindi

6.2601480 - Hvannhólmi 12. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Hvammhólma um 38,2 m² viðbyggingu austanmegin við núverandi bílgeymslu. Uppdrættir ódags. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 28. janúar 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2026

Almenn erindi

7.2601197 - Turnahvarf 2-4. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 19. desember 2025 vegna byggingarleyfisumsóknar Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2-4 við Turnahvarf. Sótt er um breytingar á innra skipulagi og stoðvegg ásamt girðingu á lóðarmörkum. Uppdrættir dags. 28. október 2025.
Neikvætt, samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.

Almenn erindi

8.25061878 - Naustavör 13. Leikskóli. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn umhverfissviðs dags. 24. október 2025 um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 13 við Naustavör. Breytingin nær einnig til nærumhverfis lóðarinnar. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit fyrirhugaðs leikskóla úr 900 m² í 1212 m², stækkun lóðar úr 4.600 m² í 2.885 m² og hækkun byggingarreits úr 4m í 6m. Einnig hækkar gólfkóti byggingar úr 4.5 í 5.3. Gerð er ný göngutenging austan megin við leikskólalóð. Uppdrættir dags. 24. október 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. desember 2025 til 15. janúar 2026. Einnig lagðar fram athugasemdir sem bárust.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

9.2601115 - Bakkabraut 12. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Bakkabraut dags. 3. janúar 2026 um að fjarlægja núverandi iðnaðarhurð á rými 0108 á jarðhæð og setja hennar í stað glugga og inngangshurð. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 28. janúar 2026.
Ekki er gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2026.

Almenn erindi

10.26012408 - Hlíðarhvarf 9. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 27. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hlíðarhvarf þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess hvort innsendir uppdrættir dags. 15. janúar 2026 samræmist deiliskipulagi. Uppdrættir dags. 15. janúar 2026. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2026 samþykkt.

Almenn erindi

11.26011636 - Dimmuhvarf 10. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Bjarna Þorsteinssonar arkitekts dags. 20. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Dimmuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að uppskipting lóðarinnar í tvær lóðir, hvor um sig 1773,5 m² að flatarmáli. Einnig er óskað eftir breyttri aðkomu að lóðunum. Núverandi stærð lóðar er skráð 3.547 m². Uppdrættir dags. 20. janúar 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

12.26011426 - Vatnsendablettur 1B. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1B við Vatnsendablett um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

13.26012129 - Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja á lóðinni einbýlis hús á einni hæð og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag.
Vísað til meðferðar skipulagsdeildar.

Almenn erindi

14.2601768 - Dofrakór 1. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Dofrakór dags. 12. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun lóðar um 220 m² til austurs, stækkun byggingarreits og viðbyggingu.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

15.26012274 - Vindakór 5-7. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 5-7 við Vindakór um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að heimilt verði að reisa yfirbyggða svalarlokun fyrir hluta þaksvala á 4. hæð.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

16.26011006 - Fjallalind 13. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 13 við Fjallalind um að koma fyrir 24 m² geymsluskúr á lóðinni norðan megin við húsið.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

17.26011572 - Urðarhvarf 10. Byggingaráform.

Með tilvísun í deiliskipulagsskilmála í deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 10 við Urðarhvarf dags. 23. júní 2025 eru lögð fram byggingaráform frá Studio B dags. 9. janúar 2026. Einnig lagðir fram uppdrættir dags. 9. janúar 2026.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

18.26011606 - Nýbýlavegur 6. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Kjartans Rafnssonar byggingartæknifræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Nýbýlaveg. Sótt er um að koma fyrir lyftu milli 1. og 2. hæðar á norðurhlið mannvirkisins. Uppdrættir dags. 12. desember 2025.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

19.26011607 - Hlíðarvegur 62. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Ríkharðs Oddssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Hlíðarveg. Sótt er um 8 m² svalalokun á suðausturhlið jarðhæðar. Uppdrættir dags. 10. desember 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

20.26011609 - Langabrekka 35. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Kjartans Rafnssonar byggingartæknifræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 35 við Löngubrekku. Sótt er um 23,6 m² stækkun á bílgeymslu til suðurs og vesturs og að gera stoðvegg á lóðarmörkum lóðanna nr. 35 við Löngubrekku, 35 og 37 við Álfhólsveg.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

21.26011610 - Smiðjuvegur 11. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar G. Odds Víðissonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Smiðjuveg. Sótt er um að byggja 27 m² útbyggingu á norðurhlið, innra skipulagi og gluggasetningum í útveggjum. Uppdrættir dags. 30. október 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

22.26012312 - Álfhólsvegur 58. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Kristjáns Bjarnasonar arkitekts dags. 26. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 58 við Álfhólsveg um viðbyggingu og hækkun á þaki. Uppdrættir dags. 1. janúar 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

23.26011277 - Norðurnes Álftaness. Breytt aðalskipulag. Kynning tillögu á vinnslustigi. Umsagnarbeiðni.

Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 15. janúar 2026 vegna breytinga á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Helstu breytingar sem tillagan gerir ráð fyrir eru eftirfarandi: Íbúðarbyggð (Íb) stækkar og ný svæði bætast við. Íþróttasvæði (Íþ) fyrir fyrirhugaðan golfvöll stækkar og breytist. Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út. Svæði fyrir verslun og þjónustu bætast við. Svæði undir hverfisvernd breytir um lögun. Svæði fyrir iðnað (1.41 I) bætist við vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu .Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.

Almenn erindi

24.26011328 - Blikastaðaland. Breyting á rammahluta Aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030. Umsagnarbeiðni.

Lögð fram umsagnarbeiðni Mosfellsbæjar dags. 15. janúar 2026 vegna breytinga á rammahluta Aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030. Tillagan felur í sér að uppfæra og breyta íbúðarsvæði 124-Íb í gildandi aðalskipulagi með nýjum rammahluta í samræmi við þegar kynntar forsendur heildarendurskoðunar aðalskipulags. Breytingin er framsett í greinargerð og á uppdrætti aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030, sem rammahluti Blikastaðalands. Breytingin byggir á fjölgun íbúða innan landnotkunar 124-Íb, en einnig á að stofna nýtt svæði verslunar- og þjónustu 150-VÞ meðfram Vesturlandsvegi og opnu svæði til sérstakra nota íþrótta 151-Oí, við gatnamót Vesturlandsvegar og Baugshlíðar. Innfærð eru áform um Borgarlínu um þróunarás svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins auk stígatenginga.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.

Fundi slitið - kl. 11:18.