Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa

40. fundur 23. febrúar 2026 kl. 13:00 - 15:36 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
Dagskrá
Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Kristjana H. Kristjánsdóttir, Freyr Snorrason, Ester Anna Ármannsdóttir og Brynja Guðnadóttir.

Almenn erindi

1.25061878 - Naustavör 13. Leikskóli. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn umhverfissviðs dags. 24. október 2025 um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 13 við Naustavör. Breytingin nær einnig til nærumhverfis lóðarinnar. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit fyrirhugaðs leikskóla úr 900 m² í 1212 m², stækkun lóðar úr 4.600 m² í 4.885 m² og hækkun byggingarreits úr 4m í 6m. Einnig hækkar gólfkóti byggingar úr 4.5 í 5.3. Gerð er ný göngutenging austan megin við leikskólalóð. Uppdrættir dags. 24. október 2025, uppfærðir 20. febrúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

2.25121241 - Dalvegur 28. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Halls Kristmundssonar byggingarfræðings dags. 11. desember 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 28 við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Spurst er fyrir um hvort heimilað verði að gera 10m² viðbyggingu við austurhlið núverandi byggingar á lóðinni. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026 samþykkt.

Almenn erindi

3.26012312 - Álfhólsvegur 58. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Kristjáns Bjarnasonar arkitekts dags. 26. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 58 við Álfhólsveg um hvort heimilt verði að byggja 237m² viðbyggingu á tveimur hæðum við suðurhlið hússins á lóðinni. Jafnframt um hvort heimilt verði að fjölga íbúðum á lóðinni úr einni í fjórar. Gert er ráð fyrir að þak hússins hækki um 30cm samhliða fyrirhuguðum breytingum. Uppdrættir dags. 1. janúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.

Almenn erindi

4.26022221 - Hafnarbraut 27. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 27 við Hafnarbraut um að fallið verði frá kröfu rammahluta aðalskipulags um að lóðir nr. 25 og 27 við Hafnarbraut séu deiliskipulagðar sem ein heild og að lóðarhafa verði veitt heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag lóðarinnar.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

5.2602435 - Skýjahvarf 1-9 og 11-19. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Atla Jóhanns Guðbjörnssonar byggingarfræðings dags. 4. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1-9 og 11-19 við Skýjahvarf um að byggja fyrirhuguð raðhús á lóðunum á einni hæð í stað tveggja. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.

Almenn erindi

6.26011609 - Langabrekka 35. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Kjartans Rafnssonar byggingartæknifræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 35 við Löngubrekku. Sótt er um 23,6 m² stækkun á bílageymslu á suð-vesturhluta lóðarinnar og stoðvegg á lóðarmörkum nr. 35 og 37 við Álfhólsveg. Á embættisafgreiðslufundi þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Löngubrekku 26, 28, 30, 33 og 37 og Álfhólsveg 35 og 37. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

Almenn erindi

7.26011636 - Dimmuhvarf 10. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Bjarna Þorsteinssonar arkitekts dags. 20. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Dimmuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst uppskipting lóðarinnar í tvær lóðir, hvor um sig 1773,5 m², einbýlishúsi á hvorri lóð og breyttri aðkomu að lóðunum. Núverandi stærð lóðar er skráð 3.547 m². Uppdrættir dags. 20. janúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

8.2509227 - Hraunbraut 8. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Björns Guðbrandssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 8 við Hraunbraut þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir 18,7 m² geymsluskúr norðan við núverandi hús. Uppdrættir dags. 12. ágúst 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 29. desember til 4. febrúar 2026. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Almenn erindi

9.26011607 - Hlíðarvegur 62. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Ríkharðs Oddssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Hlíðarveg. Sótt er um 8m² glersvalalokun á suðausturhlið jarðhæðar. Uppdrættir dags. 10. desember 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.

Samþykkt með vísan 6. tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Almenn erindi

10.2601768 - Dofrakór 1. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Dofrakór dags. 12. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun lóðar um 220 m² til austurs, stækkun byggingarreits og viðbyggingu. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn dags. 23. febrúar 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026, samþykkt.

Almenn erindi

11.26011006 - Fjallalind 13. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 13 við Fjallalind um að koma fyrir 24 m² geymsluskúr á lóðinni norðan megin við húsið. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Jafnframt lögð fram umsögn dags. 23. febrúar 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2026.

Almenn erindi

12.26012129 - Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja á lóðinni einbýlis hús á einni hæð og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

13.26012977 - Fróðaþing 23. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 23 við Fróðaþing dags. 29. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst bygging bílageymslu 5 x 12,85 að grunnfleti að lóðarmörkum og svalir á 2. hæð.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

14.2602358 - Dalsmári 9-11. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Jakobs Emils Líndal arkitekts dags. 3. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9-11 við Dalsmára um 3.780 m² lóðarstækkun og 2.900 m² viðbyggingu. Stækkunin yrði innan svæðis sem skilgreint er sem íþróttasvæði í aðalskipulagi og er í dag nýtt undir tennisvelli Kópavogsbæjar. Uppdrættir dags. 3. mars 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

15.26022551 - Hlíðarhvarf 7. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar byggingarfræðings dags. 17. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 7 við Hlíðarhvarf um hvort meðfylgjandi drög að aðaluppdráttum samræmist gildandi deiliskipulagsskilmálum.
Neikvætt, samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.

Almenn erindi

16.26022573 - Hæðarhvarf 6. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Magnúsar Inga Aðalmundsson arkitekts dags. 18. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Hæðarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst aukið byggingarmagn um 17,5m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,42 í 0,45.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

17.26021370 - Búðakór 1. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 30. janúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Búðakór. Sótt er um að breyta skilti í LED skilti og stækka niður á við. Ljósflötur austurhliðar stækkaður um 8m² og verður allt að 12 m² og vesturhliðar um 4m² og verður allt að 7m².
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

18.26022745 - Skjólbraut 5. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut. Sótt er um að setja kvist á norður- og suðurhlið hússins og hækka þakið. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

19.26022747 - Nýbýlavegur 6. Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Lögð fram umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar Jóns Magnúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Nýbýlaveg. Sótt er um leyfi til byggja 8m² viðbyggingu á norðurhlið hússins fyrir lyftu milli 1. og 2. hæðar. Uppdrættir dags. 12. desember 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

20.26022752 - Göngustígar við Naustavör. Framkvæmdaleyfisumsókn.

Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn umhverfissviðs dags. 18. febrúar 2026 um tilfærslu á göngustíg, frárennslilögn og aðlaga stígakerfi í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

21.26022819 - Álalind 8, J fasteignir ehf. Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi - gistileyfi

Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu dags. 23. febrúar 2026 vegna umsóknar lóðarhafa um gistileyfi í flokki II í Álalind 8.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

22.26012890 - Garðabær. Breyting á aðalskipulagi. Umsagnarbeiðni.

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Garðabæ dags. 29. janúar 2026 um breytingar á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Uppdrættir dags. 9. febrúar 2021, uppfærðir 19. desember 2025. Gerð er breyting á afmörkum á opnu svæði og íbúðarbyggð. Hluti opins svæðis, þar sem nú er lóð íbúðarhúss, verður svæði fyrir samfélagsþjónustu. Einnig er gerð breyting á stígum.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.

Fundi slitið - kl. 15:36.