Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa

42. fundur 25. mars 2026 kl. 12:00 - 14:27 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
Dagskrá
Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Freyr Snorrason, Ester Anna Ármannsdóttir, Elín Mjöll Lárusdóttir og Kristjana H. Kristjánsdóttir.


Auður Dagný Kristinsdóttir vék af fundi kl. 13:51. Andrea Kristinsdóttir stýrði fundinum í fjarveru skipulagsfulltrúa.

Almenn erindi

1.26022068 - Kársnesbraut 93. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 93 við Kársnesbraut um að breyta skráningu eignarhluta 0102 hússins úr verslunarrými í íbúð. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 9. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026, samþykkt.

Almenn erindi

2.26023022 - Roðahvarf 10-18 og 20-31. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Hjalta Brynjarssonar arkitekts dags. 24. febrúar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10-18 og 20-32 við Roðahvarf um stækkun lóðanna út á bæjarland til að koma fyrir djúpgámum við götuna Roðahvarf. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. mars 2026, samþykkt.

Almenn erindi

3.2603815 - Brattatunga 6. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 27. febrúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Ríkharðs Oddssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Bröttutungu er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um stakstæða vinnustofu/tómstundahús, 40m² að flatarmáli, á suðurausturhluta lóðarinnar. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 9. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2026.

Almenn erindi

4.26022747 - Nýbýlavegur 6. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Jóns Magnúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Nýbýlaveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um leyfi til byggja 8m² viðbyggingu á norðurhlið hússins fyrir lyftu milli 1. og 2. hæðar. Uppdrættir dags. 12. desember 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026.

Almenn erindi

5.26011610 - Smiðjuvegur 11. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 16. janúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn G. Odds Víðissonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Smiðjuveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja 27m² anddyri norðan megin við iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á lóðinni nr. 11 við Smiðjuveg (mhl. 01) ásamt því að bæta við milligólfi, samtals 400 m² viðbót. Uppdrættir dags. 30. október 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026, samþykkt.

Almenn erindi

6.26021370 - Búðakór 1. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 30. janúar 2026 þar sem byggingarleyfisumsóknar Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Búðakór er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta skilti í LED skilti og stækka niður á við. Ljósflötur austurhliðar stækkaður um 8m² og verður allt að 12 m² og vesturhliðar um 4m² og verður allt að 7m². Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2026.

Almenn erindi

7.26012977 - Fróðaþing 23. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 23 við Fróðaþing dags. 29. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst bygging bílageymslu 5 x 12,85 að grunnfleti að lóðarmörkum og svalir á 2. hæð. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2026, samþykkt.

Almenn erindi

8.25111111 - Kópavogsbraut 20. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 7. nóvember 2025 þar sem byggingarleyfisumsókn Gests Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Kópavogsbraut er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja glerskála/gróðurhús við vesturhlið núverandi íbúðarhúss og tvær viðbyggingar við suður- og norðurhlið bifreiðageymslu, samtals 230 m² að flatarmáli. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,19 í 0,33 við breytinguna. Uppdrættir dags. 15. apríl 2025, uppfærðir 25. september 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 9. mars 2026 var erindið lagt fram að lokinni grenndarkynningu og athugasemdum vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

9.2603944 - Vatnsendablettur - Kríunes. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Ívars Arnars Guðmundssonar arkitekts dags. 5. mars 2026 f.h. lóðarhafa Kríuness um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggingarreitir fyrir nýbyggingar, íbúðarhús og áhaldageymslu á vesturhluta lóðarinnar eru sameinaðir í einn byggingarreit fyrir íbúðarhús á einni hæð ásamt kjallara. Byggingarmagn helst óbreytt 140 m². Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 9. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 25. mars 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðarhafa lóðarinnar nr. 1B, 510, 714 og 715. við Vatnsendablett. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 27. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

Almenn erindi

10.26022752 - Göngustígar við Naustavör. Framkvæmdaleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju framkvæmdaleyfisumsókn umhverfissviðs dags. 18. febrúar 2026 um gerð nýrrar göngutengingar, endurgerð eldri göngu- og hjólastíga, yfirborðsfrágangi og tilfærslu fráveitulagnar auk nýrra lagnaframkvæmda á svæði við Naustavör og Vesturvör ásamt hluta opins svæðis í Bryggjuhverfi við Kársnes. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 23. mars 2026.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. mars 2026. Vísað til lögfræðideildar til útgáfu framkvæmdaleyfis f.h. skipulagsfulltrúa.

Almenn erindi

11.2602358 - Dalsmári 9-11. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Jakobs Emils Líndal arkitekts dags. 3. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9-11 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 3.780 m² lóðarstækkun til norðurs og 4.000 m² nýbygging á tveimur hæðum sem tengist núverandi húsnæði á lóð með tengigangi. Lóðarstækkunin fer að hluta til yfir á svæði með landnotkun skilgreinda í aðalskipulagi sem opið svæði, OP-221, en er að öðru leiti innan íþróttasvæðis, ÍÞ-4. Tillagan leggur undir sig núverandi útitennisvelli og útivistarsvæði. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

12.26022745 - Skjólbraut 5. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. mars 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Braga Blumenstein arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að hækka þak hússins og setja kvisti á þakið, einn að norðanverðu og annan að sunnanverðu að Skjólbraut 5. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Skjólbraut nr. 3, 3A, 7, 7A, 4, 6, og 8. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

Almenn erindi

13.26031413 - Álftröð 1. Breytt akstursstefna. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Snorra Þórissonar dags. 10. mars 2026 f.h. húsfélagsins nr. 1 við Traðarreit um breytta akstursstefnu götunar.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

14.26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 3. mars 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

15.26032509 - Silfursmári 2-8. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Arnars Þórs Jónssonar arkitekts dags. 17. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 2-8 við Silfursmára um hvort svalalokanir á 2., 3., 4. og 5. hæð hússins séu í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

16.26032984 - Hrauntunga 77. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 77 við Hrauntungu dags. 18. mars 2026 um að inndreginn útveggur, austan við aðalinngang, verði færður 1,25 m til suðurs. Við breytinguna stækkar herbergisrými um u.þ.b. 4 m². Núverandi gluggi verður fluttur í nýjan útvegg og eldri veggur fjarlægður. Ný steypt plata og einangrun verða gerð í samræmi við gildandi byggingarreglugerð. Á vesturhlið stækkunar verður reistur sléttur veggur sem myndar skjól og rými við anddyri. Frágangur verður í samræmi við upprunalegt útlit Sigvaldahúsa og húsið málað í sama lit og núverandi bygging.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

17.26032469 - Digranesheiði 31. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. mars 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 31 við Digranesheiði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um 17m² viðbyggingu ofan á bílskúr, breytingu á innra skipulagi efri hæðar og að breyta bílskúr í stúdíó íbúð. Uppdrættir dags. 14. desember 2020, uppfærðir 3. júlí 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

18.26032470 - Álalind 14. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. mars 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Eiríks Vignis Pálssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Álalind er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að koma fyrir svalalokunum á 1. til 9. hæð hússins. Uppdrættir dags. 12. febrúar 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

19.26033112 - Dalvegur 24-26. Umsagnarbeiðni um geymslustað ökutækja

Lagt fram erindi Samgöngustofu dags. 19. mars 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna umsóknar um starfsleyfi. Ökutækjaleigan Iceland to go ehf. óskar eftir geymslustað fyrir tvö ökutæki við Dalveg 24-26.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Fundi slitið - kl. 14:27.