Lagt fram að nýju, ásamt uppfærðri umsögn skipulagsfulltrúa, erindi byggingarfulltrúa dags. 13. mars 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Braga Blumenstein arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að hækka þak hússins og setja tvo kvisti á þakið, einn að norðanverðu og annan að sunnanverðu að Skjólbraut 5. Birt flatarmál eykst um 36,7 m², úr 139,6 m² í 176,3 m². Nýtingarhlutfallið hækkar úr 0,19 í 0,24. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026. Jafnframt lögð fram uppfærð umsögn dags. 9. mars 2026, með leiðréttingum dags. 13. apríl 2026.