Félagsmálaráð

1413. fundur 20. júní 2016 kl. 16:15 í Fannborg 6, fundarherbergi 3. hæð
Fundinn sátu:
  • Gunnsteinn Sigurðsson formaður
  • Ragnheiður S Dagsdóttir aðalfulltrúi
  • Kristín Sævarsdóttir aðalfulltrúi
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðbjörg Sveinsdóttir varafulltrúi
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir aðalfulltrúi
  • Magnea Guðrún Guðmundardóttir varafulltrúi
  • Anna Klara Georgsdóttir verkefnastjóri
  • Rannveig María Þorsteinsdóttir
Fundargerð ritaði: Anna Klara Georgsdóttir verkefnastjóri velferðarsviðs
Dagskrá

1.1601138 - Teymisfundir 23 og 24

Lagt fram.

2.1606740 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Fært í trúnaðarbók.

3.1606736 - Niðurstaða könnunar um stöðu leiguíbúða sveitarfélaga 2015

Skýrsla frá Jöfnunarsjóði
Lagt fram til kynningar.

4.1305624 - Félagsleg heimaþjónusta. Áfrýjun

Fært í trúnaðarbók.

5.1411040 - Umbeðin gögn

Á fundi félagsmálaráðs þann 6. júní var óskað eftir upplýsingum um aldursdreifingu eldri borgara í bænum.
Lagt fram.
Óskað var eftir yfirliti yfir þjónustu velferðarsviðs við mismunandi aldurshópa aldraðra.

6.1411040 - Vegna bókunar 6. júní 2016

Karen E. Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn: "Óska eftir tölfræði síðustu 12 mánaða um seldar máltíðir í þjónustumiðstöðvum aldraðra. Einnig að dregið verði frá þeim tölum fjöldi þeirra sem eru í dagvistun í Boðanum. Einnig fá yfirlit um ábendingar um ánægju eða óánægju um gæði þjónustunnar sem veitt er."
Lögð var fram staðfesting á því að bókunin hafi verið send menntasviði til afgreiðslu.

Fundi slitið.