Félagsmálaráð

1299. fundur 11. janúar 2011 kl. 16:15 - 18:15 í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð
Fundargerð ritaði: Ása A. Kristjánsdóttir lögfræðingur
Dagskrá

1.1101021 - Umsagnarmál

Fært í trúnaðarbók.  Anna Eygló Karlsdóttur yfirmaður barnaverndar og Ragnheiður B. Guðmundsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

2.1001049 - Umsagnarmál

Fært í trúnaðarbók.  Anna Eygló Karlsdóttur yfirmaður barnaverndar og Ragnheiður B. Guðmundsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

3.1101103 - Umsagnarmál

Fært í trúnaðarbók.  Anna Eygló Karlsdóttur yfirmaður barnaverndar sat fundinn undir þessum lið.

4.1101106 - Barnaverndarmál

Fært í trúnaðarbók.

5.1001018 - Fundargerðir teymisfunda 2010

Lagðir fram fundargerðir teymisfunda þann 29. desember 2010, 5. og 11. janúar 2011.

Fært í trúnaðarbók.  Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður Ráðgjafa- og íbúðadeildar og Herdís Björnsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

6.1101125 - Áfrýjun. Fjárhagsaðstoð

Fært í trúnaðarbók.  Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður Ráðgjafa- og íbúðadeildar og Herdís Björnsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

7.1101130 - Álit vegna fjárhagsaðstoðar

Yfirmaður Ráðgjafa- og íbúðadeildar óskar álits félagsmálaráðs á fjárhagsaðstoð til einstaklinga sem hafa verið teknir af skrá vinnumálastofnunar vegna bótasvika.

Félagsmálaráð telur sér skylt skv. núgildandi reglum um fjárhagsaðstoð að veita umsækjendum fjárhagsaðstoð uppfylli þeir skilyrði fyrir aðstoð, þrátt fyrir að það liggi fyrir að umsækjandi hafi ranglega þegið bætur frá Vinnumálastofnun.  Starfsmenn eru hvattir til áframhaldandi árverkni.

Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður Ráðgjafa- og íbúðadeildar og Herdís Björnsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

8.1002294 - Úthlutunarhópur um leiguhúsnæði

Fært í trúnaðarbók.  Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður Ráðgjafa- og íbúðadeildar og Herdís Björnsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

9.1012204 - Samþykkt fyrir félagsmálaráð. Drög að endurskoðun

Lögð fram drög að endurskoðun samþykktar félagsmálaráðs

Félagsmálaráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti með breytingum.

10.1012231 - Samþykkt fyrir barnaverndarnefnd Kópavogs. Drög

Lögð fram drög að samþykkt fyrir barnaverndarnefnd Kópavogs.

Félagsmálaráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti með breytingum.

11.1101066 - Stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi

Lögð fram til kynningar drög að stefnumótun Kópavogs í málefnum fatlaðs fólks 2010-2014; Bæjarfélag fyrir alla, sem unnin var af nefnd um yfirfærslu málefna fatlaðra.

Félagsmálaráð er sammála um að nauðsynlegt sé að fylgja stefnumótun í málaflokknum eftir með virkri aðgerðaráætlun samhliða afgreiðslu ráðsins á stefnunni. 

12.1101299 - Önnur mál

Félagsmálastjóri upplýsir félagsmálaráð um framkomna stjórnsýslukæru á hendur Kópavogsbæ vegna máls er varðar úthlutun ferðaþjónustu til fatlaðs fólks.  Málinu var ekki áfrýjað til félagsmálaráðs áður en til stjórnsýslukærunnar kom.

Fundi slitið - kl. 18:15.