Félagsmálaráð

1281. fundur 13. apríl 2010 kl. 15:15 - 18:00 Fannborg 4 fundarherbergi 2 hæð
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Lögfræðingur
Dagskrá

1.1004112 - Barnaverndarmál

Fært í trúnaðarbók. Hildur Jakobína Gísladóttir yfirmaður fjölskyldudeildar og Kjell Hymer unglingafulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.

2.1001018 - Fundargerðir teymisfunda 2010

Fundagerðir teymisfunda 17.03.2010 - 07.04.2010

Fært í trúnaðarbók. Lagt fram til kynningar. 

3.1004075 - Áfrýjun til félagsmálaráðs 13.04.2010

Fært í trúnaðarbók.

4.1004057 - Samningur um atvinnutengda endurhæfingu

Lagt fram tilboð Ekron að samningi um atvinnutengda endurhæfingu. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar sat fundinn undir þessum lið. Yfirmanni ráðgjafa og íbúðadeildar falið að framlengja samninginn á grundvelli núverandi samnings.

5.1004056 - Þjónustufulltrúi félagsráðgjafa. Umsóknir og ráðning

Lagt fram til kynningar. Félagsmálaráð samþykkir ráðningu þjónustufulltrúa félagsráðgjafa.

6.1004071 - Þjónusta við fatlaða; reglur

Tekið fyrir erindi bæjarráðs. Guðlaug Ósk Gísladóttir félagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið. Lagðar fram reglur félagsmálaráðs frá 19. janúar 2006. Reglurnar eru óbreyttar.

7.1004073 - Styrkir til verkefna fyrir langveik börn og börn með ADHD

Lagt fram til kynningar. Guðlaug Ósk Gísladóttir félagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið. Félagsmálaráð fagnar því að ríkið skuli styðja við þessa þjónustu stofnunarinnar um 2,5 milljónir króna.

8.1003249 - Áfrýjun - húsaleigubætur

Fært í trúnaðarbók. Atli Sturluson yfirmaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið

9.1004108 - Rekstrardeild-Húsaleigubætur- Áfrýjun

Fært í trúnaðarbók. Atli Sturluson yfirmaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.

10.1004120 - Ósk um álit á heimild sveitarfélaga. Fasteignaskattur.

Lagt fram til kynningar svar samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytisins.

11.905193 - Yfirfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga

Rætt var almennt um yfirfærslu málefna fatlaðra.

Margrét Sigurgeirsdóttir varamaður mætti kl:16:00.

Fundi slitið - kl. 18:00.