Félagsmálaráð

1403. fundur 18. janúar 2016 kl. 16:15 í Fannborg 6, fundarherbergi 3. hæð
Fundinn sátu:
  • Anna Klara Georgsdóttir verkefnastjóri
  • Gunnsteinn Sigurðsson formaður
  • Ragnheiður S Dagsdóttir aðalfulltrúi
  • Rannveig Bjarnadóttir aðalfulltrúi
  • Vilhjálmur Einarsson aðalfulltrúi
  • Arnþór Sigurðsson aðalfulltrúi
  • Þráinn Hallgrímsson varafulltrúi
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir aðalfulltrúi
Fundargerð ritaði: Anna Klara Georgsdóttir verkefnastjóri velferðarsviðs
Dagskrá

1.1501155 - Teymisfundir 49-51 2015

Lagt fram.
Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

2.1601138 - Teymisfundir 1-2 2016

Lagt fram.
Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

3.1601009 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Fært í trúnaðarbók.
Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

4.1601805 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Fært í trúnaðarbók.
Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

5.1002294 - Úthlutunarhópur um leiguhúsnæði

Lagt fram.
Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

6.1601671 - Félagsleg leiguíbúð. Endurupptaka

Fært í trúnaðarbók.
Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

7.1310526 - NPA samningar

Til upplýsingar og umræðu
Atli Sturluson rekstrarstjóri og Guðlaug Ósk deildarstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

8.1005111 - Beiðni um styrk frá Samskiptamiðstöð heyrnalausra.

Félagsmálaráð samþykkti að veita Samskiptamiðstöð heyrnalausra og heyrnaskertra 390.000 kr. styrk fyrir túlkun í menningar- og frístundastarfi í Kópavogi árið 2016. Óskað var eftir upplýsingum um nýtingu styrksins.
Guðlaug Ósk Gísladóttir sat fundinn undir þessum lið.

9.1408112 - Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Staða mála og nýjungar í þjónustu og ráðgjafardeild aldraðra
Frestað til næsta fundar.

10.1511509 - Umsókn um rekstrarstyrk til Kvennaathvarfsins fyrir árið 2016

Félagsmálaráð samþykkti að veita Kvennaathvarfinu 861.000 kr. styrk fyrir árið 2016.

11.1601504 - Starfsánægjukönnun velferðarsviðs 2015

Niðurstöður og úrbótatillögur lagðar fram til upplýsingar og umræðu.

Fundi slitið.