Forsætisnefnd

89. fundur 23. febrúar 2017 kl. 16:00 - 17:46 á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Drangey
Fundinn sátu:
  • Margrét Friðriksdóttir aðalmaður
  • Sverrir Óskarsson aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

1.1001158 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

I. Fundargerðir nefnda - önnur mál.
II. Kosningar nefnda.

2.1511157 - Tillaga um að birta fylgiskjöl m.fundargerðum fastanefnda.

Forsætisnefnd samþykkir að fela bæjarritara að undirbúa tillögu í málinu fyrir næsta fund forsætisnefndar.

3.1702583 - Reglur um meðferð óska um opna fundi ráða/nefnda

Lögð fram drög að reglum um meðferð óska um opna fundi ráða/nefnda.
Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

4.1702584 - Útsending bæjarstjórnarfunda

Bæjarritari kynnti tillögu að myndútsendingu. Forsætisnefnd samþykkir að fela bæjarritara að vinna áfram að málinu.

Fundi slitið - kl. 17:46.