Forsætisnefnd

128. fundur 06. desember 2018 kl. 12:00 - 13:00 á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Fundinn sátu:
  • Margrét Friðriksdóttir aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

Almenn mál

1.1001158 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

I. Önnur mál - fundargerðir.
II. Kosningar.

Almenn mál

2.0809008 - Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ

Samkvæmt 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 ber nýrri sveitarstjórn að meta hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi siðareglur bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fól forsætisnefnd á fundi sínum þann 12. júní sl. að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga. Forsætisnefnd fól bæjarritara að afla upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um hvort siðanefnd myndi gefa frekari leiðbeiningar til nýkjörinna sveitarstjórna við gerð siðareglna.
Forsætisnefnd mun að sinni bíða með afgreiðslu málsins þar til siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur lokið við að uppfæra leiðbeiningar sínar til sveitarfélaga.

Almenn mál

3.1810550 - Óskað- eftir upplýsingum um kynjahlutfall í fastanefndum

Frá jafnréttis- og mannréttindanefnd, dags. 5. desember, lagt fram erindi um kynjahlutfall í fastanefndum sveitarfélagsins.
Forsætisnefnd vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.

Almenn mál

4.1812401 - Ólögmæt takmörkun á aðgengi að upplýsingum, krafa um úrbætur

Frá Jóni Finnbogasyni varabæjarfulltrúa, dags. 3. desember, þar sem óskað er eftir aðgengi að gögnum bæjarstjórnar vegna setu á fundum bæjarstjórnar.
Forsætisnefnd vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.

Fundi slitið - kl. 13:00.