Forsætisnefnd

152. fundur 05. mars 2020 kl. 16:00 - 17:03 á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Fundinn sátu:
  • Margrét Friðriksdóttir aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Almenn mál

1.2002489 - Erindi frá Theódóru Þorsteinsdóttur vegna fundar lista-og menningarráðs þann 21.01.2020.

Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur varðandi fund lista-og menningarráðs þann 21. janúar 2020. Óskað er eftir upplýsingum frá forsætisnefnd um hvort fundur ráðsins sé í samræmi við reglur um ritun fundagerða. Forsætisnefnd frestaði málinu til næsta fundar.
Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.

Almenn mál

2.2002425 - Erindi frá Karen E. Halldórsdóttur vegna athugasemda við fund lista- og menningarráðs og ljóðahátíðina Ljóðstafur Jóns úr Vör

Erindi frá bæjarfulltrúa Karen E. Halldórsdóttur vegna athugasemda við fund lista- og menningarráðs og ljóðhátíðina Ljóðstaf Jóns úr Vör, þar sem óskað er álits forsætisnefndar eða bæjarlögmanns á því hvort ráðinu beri að staðfesta niðurstöðu dómnefndar í ljóðakeppninni og þá fjárhæð sem fer í verðlaunafé í formlegri fundargerð og á fundi, í ljósi ábyrgrar meðferðar fjármuna bæjarins sem og gagnsæi. Forsætisnefnd frestaði málinu til næsta fundar.
Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.

Almenn mál

3.1911568 - Fyrirspurn um fundargerð ritaða á fundi með íbúum Bakkabrautar þar sem ákvarðanir voru teknar um að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Frá Guðmundi Geirdal

Frá bæjarlögmanni, lagt fram svar við fyrirspurn sem barst um fundargerð ritaða á fundi með íbúum Bakkabrautar um breytingu á atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði sem forsætisnefnd vísaði til úrvinnslu bæjarlögmanns.
Lagt fram.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir kom til fundar kl. 16:21

Almenn mál

4.1001158 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

I. Önnur mál - fundargerðir.
II. Kosningar.

Almenn mál

5.2001139 - Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar um að birta fylgigögn með fundargerðum á vef bæjarins

Frá persónuverndarfulltrúa, dags. 18. febrúar, lögð fram umsögn um tillögu um að birta fylgigögn með fundargerðum á vef bæjarins.
Lagt fram.

Almenn mál

6.2003054 - Reglur um birtingu fylgigagna með fundargerðum á vef Kópavogsbæjar

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að reglum um birtingu fylgigagna með fundargerðum á vef Kópavogsbæjar.
Forsætisnefnd frestar málinu til næsta fundar.

Bókun:
"Vakin er athygli bæjarfulltrúa á drögum reglna um birtingu fylgigagna með fundargerðum og þeir hvattir til að gera athugasemdir fyrir næsta fund nefndarinnar."

Fundi slitið - kl. 17:03.