Forsætisnefnd

250. fundur 19. febrúar 2026 kl. 15:00 - 15:52 Fjarfundur - Microsoft Teams
Fundinn sátu:
  • Björg Baldursdóttir forseti
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir 1. varaforseti
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir 2. varaforseti
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Almenn mál

1.2301104 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

Dagskrá bæjarstjórnarfundar 24. febrúar 2026.
I. Dagskrármál.
II. Önnur mál - fundargerðir nefnda.
III. Kosningar.

Almenn mál

2.2310547 - Siðareglur kjörinna fulltrúa

Umræða um siðareglur kjörinna fulltrúa. Mál sett á dagskrá að beiðni forseta bæjarstjórnar.
Umræður

Bókun:
"Undirritaðar hafa orðið varar við opinbera umfjöllun og framgöngu kjörins fulltrúa þar sem notaður hefur verið titill bæjarfulltrúa í tengslum við umfjöllun um mál sem varða sveitarfélagið, auk birtingar efnis um starfsfólk bæjarins á opinberum vettvangi. Undirritaðar árétta að samkvæmt siðareglum kjörinna fulltrúa ber þeim að sýna háttvísi, ábyrgð og virðingu í samskiptum og gæta þess að framganga þeirra grafi ekki undan trausti á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Undirritaðar telja mikilvægt að þessi sjónarmið séu höfð að leiðarljósi í störfum kjörinna fulltrúa og í allri opinberri umfjöllun um málefni sveitarfélagsins.
Leggja undirritaðar áherslu á að kjörnir fulltrúar beri sérstaka ábyrgð þegar þeir tjá sig opinberlega, ekki síst þegar fjallað er um einstaklinga í störfum sínum og að opinber umfjöllun skuli ávallt vera málefnaleg og í samræmi við siðareglur."

Björg Baldursdóttir
Elísabet B. Sveinsdóttir

Fundi slitið - kl. 15:52.