Forsætisnefnd

254. fundur 07. maí 2026 kl. 15:00 - 15:45 Fjarfundur - Microsoft Teams
Fundinn sátu:
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir 1. varaforseti
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir 2. varaforseti
  • Björg Baldursdóttir forseti
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Jóna Vigdís Kristinsdóttir verkefnastjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

Almenn mál

1.2301104 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

Dagskrá bæjarstjórnarfundar 12. maí 2026.
I. Dagskrármál.
II. Önnur mál - fundargerðir nefnda.
III. Kosningar.

Almenn mál

2.2605277 - Mál sett á dagskrá forsætisnefndar að beiðni Theódóru S. Þorsteinsdóttur bæjarfultrúa

Lagt fram erindi frá bæjarfulltrúa Viðreisnar vegna bæjarstjórnarfundar 28. apríl 2026, þar sem fulltrúinn bókaði eftirfarandi undir máli nr. 4.1:

"Undirrituð frábiður sér að bæjarstjóri geri henni upp skoðanir og ásetning í þessu máli, og væntir þess að forseti áminni bæjarstjóra. Siðareglur kveða á um að bæjarfulltrúar skuli sýna háttvísi og bera virðingu fyrir skoðunum annarra."

Umræður.
Forseta falið að árétta siðareglur á fundi bæjarstjórnar.

Almenn mál

3.2605276 - Mál sett á dagskrá forsætisnefndar að beiðni Kolbeins Reginssonar bæjarfultrúa um samræmi í störfum forsætisnefndar.

Lagt fram erindi frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs um að samræmis sé gætt í störfum forsætisnefndar, hvað athugasemdir við störf einstakra bæjarfulltrúa varðar.
Kl.15:30 víkur Elísabet Berglind Sveinsdóttir af fundi vegna vanhæfis.

Umræður.

Frá því það mál sem bæjarfulltrúinn Kolbeins Reginsson bendir á sem fordæmi var tekið fyrir hjá forsætisnefnd hefur nefndin afgreitt tvö mál með vísan til minnisblaðs lögfræðiþjónustu, dags. 04.03.2026. Í þeim málum komst nefndin að þeirri niðurstöðu að þau féllu utan valdsviðs nefndarinnar og vísaði málunum frá. Það mál sem hér er til skoðunar fellur einnig utan valdsviðs nefndarinnar á sömu forsendum og vísar nefndin því einnig frá.

Fundi slitið - kl. 15:45.