Forsætisnefnd

27. fundur 10. júlí 2014 kl. 16:00 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundinn sátu:
  • Páll Magnússon bæjarritari
  • Margrét Friðriksdóttir
  • Ólafur Þór Gunnarsson
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.809008 - Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ

Skv. 29. gr. sveitarstjórnarlaga ber nýrri sveitarstjórn að meta hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi siðareglur bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fól forsætisnefnd á fundi sínum þann 24. júní sl. að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga. Á fundi forsætisnefndar þann 1. júlí var málið tekið fyrir og óskað umsagnar lögfræðideildar. Umsögn lögfræðideildar lögð fram.
Forsætisnefnd óskar eftir að lögfræðideild vinni tillögur að breytingum á siðareglum kjörinna fulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ í samræmi við framlagt minnisblað. Þá óskar forsætisnefnd eftir því að ákvæði í starfsmannastefnu um siðareglur starfsmanna og stjórnenda verði uppfærð til samræmis við að siðareglur kjörinna fulltrúa gildi ekki um stjórnendur til framtíðar.

2.1001158 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

Dagskrá bæjarstjórnarfundar 15. júlí 2014.
I. Breytingartillaga á bæjarmálasamþykkt. Seinni umræða.
II. Kosningar.
III. Önnur mál - fundargerðir nefnda.

3.1306180 - Breytingartillaga á bæjarmálasamþykkt

Lögð fram breytingartillaga á samþykktum um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar, sem vísað var til síðari umræðu bæjarstjórnar á fundi bæjarstjórnar þann 24. júní sl. Skv. 4. tl. 9. gr. erindisbréfs forsætisnefndar ber nefndinni að fjalla um tillögur á breytingum á samþykktum bæjarins.
Forsætisnefnd fjallaði um málið á fundi sínum þann 1. júlí og vísaði afgreiðslu til næsta fundar. Tekið fyrir að nýju.
Lagt fram minnisblað bæjarlögmanns um stjórn Héraðsskjalasafns og greinargerð bæjarstjóra um starfsemi framkvæmdaráðs.
Forsætisnefnd vísar breytingartillögum til seinni umræðu bæjarstjórnar.

Fundi slitið.