Forvarna- og frístundanefnd

13. fundur 05. desember 2012 kl. 11:30 - 13:00 í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Fundinn sátu:
  • Héðinn Sveinbjörnsson aðalfulltrúi
  • Tjörvi Dýrfjörð aðalfulltrúi
  • Bragi Michaelsson aðalfulltrúi
  • Guðbjörg Linda Udengard deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
  • Sigmar Þormar aðalfulltrúi
  • Diljá Helgadóttir varafulltrúi
Fundargerð ritaði: Linda Udengaard Deildarstjóri
Dagskrá

1.1210444 - Beiðni um styrk vegna átaks SÁÁ "Betra líf! - mannúð og réttlæti.

Forvarna- og frístundanefnd telur eðlilegt að standa að stuðningi við forvarnastarf SÁÁ og telur mikilvægt að fjárveitingar til starfsins séu auknar.  Hins vegar er hér um að ræða beiðni um pólítíska stefnumörkun til bæjarfulltrúa og því telur nefndin eðlilegt að bæjarstjórn taki afstöðu til þessa máls.

2.1211046 - Áfengisauglýsingar á íþróttasvæðum.

Frá foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum.

Forvarna- og frístundanefnd beinir þeim tilmælum til rekstraraðila íþrótta- og tómstundamannvirkja að auglýsingar sem skírskota til áfengistegunda séu ekki hafðar uppi þar sem íþrótta- og tómstundastarf fer fram í mannvirkjum Kópavogsbæjar.

3.1212020 - Fjárhagsáætlun 2013 - Frístunda- og forvarnadeild

Lögð fram samþykkt fjárhagsáætlun frístunda- og forvarnardeildar fyrir árið 2013.

4.1212017 - Samanhópurinn - fundargerðir, styrkbeiðnir, verkefnaáætlanir og skýrslur

Kynnt drög að verkefnaáætlun SAMANhópsins fyrir árið 2013.

Kynnt jóla- og áramótaauglýsingar frá SAMANhópnum og verkefnið jóladagatal sem birtist í ýmsum vefmiðlum, skjáauglýsingum og öðrum fjölmiðlum.  Forvarna- og frístundanefnd fagnar framtaki SAMANhópsins og tekur undir mikilvægi samveru fjölskyldunnar.

5.1211384 - Aðventuhátíð Kópavogs 2012

Mat á framkvæmd.

Farið yfir framkvæmd á viðburðinum og ræddar ýmsar tillögur og útfærsluatriði.

6.1203028 - Málefni Molans 2012

Kynning á Virkninámskeiði fyrir ungt atvinnulaust fólk. Samstarfsverkefni Molans, Atvinnutorgs og Vinnumálastofnunar.

Andri Lefever forstöðumaður Molans kynnti Virkninámskeiðið fyrir ungt atvinnulaust fólk. Forvarna- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með þetta forvarnaverkefni og hvetur til áframhaldandi starfa að þessu verkefni.

7.1212015 - Kynningarmál frístundadeildar

Kynntar nýjar heimasíður fyrir stofnanir frístunda- og forvarnadeildar sjá www.fristundir.is

Forvarna- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með verkefnið og uppfærslum á heimasíðum fyrir frístundastarf í bænum.

Önnur mál
Bragi Michaelsson óskaði eftir umræðum og upplýsingum um eineltisáætlanir grunnskóla Kópavogs á næsta fund nefndarinnar.

Fundi slitið - kl. 13:00.