Forvarna- og frístundanefnd

16. fundur 11. apríl 2013 kl. 11:30 - 13:00 í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Fundinn sátu:
  • Héðinn Sveinbjörnsson aðalfulltrúi
  • Bragi Michaelsson aðalfulltrúi
  • Guðbjörg Linda Udengard deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
  • Una María Óskarsdóttir aðalfulltrúi
  • Sigmar Þormar aðalfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs
Fundargerð ritaði: Linda Udengaard Deildarstjóri frístunda- og forvarnadeildar
Dagskrá

1.1304127 - 17. júní 2013

Andri Lefever verkefnastjóri 17. júní mætir á fundinn til að ræða drög að skipulagningu og dagskrá hátíðarhaldanna.

Rætt um skipulagningu og dagskrá hátíðarhaldanna. Starfsmönnum falið að vinna áfram að vinna að viðburðinum.

2.1304114 - Sumardagurinn fyrsti 2013

Arna Margrét Erlingsdóttir verkefnastjóri mætir á fundinn og kynnir drög að dagskrá Sumardagsins fyrsta.

Sumardagurinn fyrsti er samvinnuverkefni Skátafélagsins Kópa og frístunda- og forvarnadeildar.  Hátíðarhöldin fara fram í Fífunni og verða með hefðbundnu sniði.  Tómstunda- og íþróttafélögum verður boðið að kynna sumarstarfsemina.

3.1304133 - Blátt áfram - Starfsmannanámskeið 2013

Kynnt námskeiðið "verndun barna" fyrir starfsfólk félagmiðstöðva/ungmennahúss á vegum Blátt Áfram.

Markmið námskeiðisins er að veita starfsfólki öfluga fræðslu og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja, þekkja og bregðast við kynferðislegri misnotkun barna. Námsefnið er sérhannað fyrir stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök sem þjóna börnum og unglingum. Námskeiðið er í boði fyrir starfsfólk stofnana á menntasviði.

4.1304112 - Aðalfundur Samfés 2013

Kynning á SAMFÉS og dagskrá aðalfundar.

Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi kynnt (SAMFÉS).

5.1304113 - Félagsmiðstöðin Gjábakki - 20 ára afmælishátíð

Kynnt drög að dagskrá afmælisviku Gjábakka.

Kynnt drög að dagskrá Gjábakka á 20 ára afmæli félagsmiðstöðvarinnar.  Dagskrá verður frá 4. maí -11 maí. Hátíðardagskrá í Salnum 11. maí á afmælisdegi bæjarins og Gjábakka.  Starfsmönnum falið að vinna áfram að viðburðunum.

6.1303144 - Sumarnámskeið Frístunda- og forvarnadeildar 2013

Markaðssetning sumarnámskeiða, heimasíða og aðrar auglýsingar.

Rætt um markaðsetningu á sumarnámskeiðum.  Heimasíðan sumar.kopavogur.is opnar formlega Sumardaginn fyrsta. Ákveðið að senda út póstkort með upplýsingum um síðuna líkt og s.l sumar á öll póstföng í Kópavogi. Opnað verður fyrir skráningar á námskeið á vegum Kópavogsbæjar þann 3. maí.

Fundi slitið - kl. 13:00.