Forvarna- og frístundanefnd

3. fundur 31. maí 2011 kl. 09:00 - 11:00 í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Fundargerð ritaði: Linda Udengaard Deildarstjóri frístunda- og forvarnadeildar
Dagskrá

1.1105554 - Hagir og líðan ungs fólks í Kópavogi

Á fundinn mætti Jón Sigfússon forstöðumaður Rannsókna og greininga og kynnti niðurstöður rannsókna um hagi og líðan nemenda í 8., 9. og 10. bekk í Kópavogi árið 2011.












Rannsóknarniðurstöður sýna að öflugt forvarnarnet,  hjá unglingum á grunnskólaaldri  í Kópavogi,  skilar árangri. Kynningarfundir á rannsóknarniðurstöðum fyrir starfsfólk grunnskóla og foreldra eru áætlaðir í skólabyrjun næsta haust.

2.1105555 - Þjóðhátíðardagur - 17. júní 2011

Á fundinn mætti Andri Lefever forstöðumaður Molans og verkefnastjóri fyrir 17. júní 2011.

Lögð fram til kynningar drög að dagskrá 17. júní 2011.

3.1105097 - Málefni félagsstarfs eldri borgara 2011

Lögð fram til kynningar skýrsla Félagsþjónustu Kópavogs árið 2010 en þar á meðal er yfirlit um félagsstarf eldri borgara.

4.1105026 - Brúkum bekki

Deildarstjóri sagði frá framvindu verkefnisins "Brúkum bekki" sem er samvinnuverkefni á milli frístunda- og forvarnadeildar, umhverfissviðs, félags íslenskra sjúkraþjálfara og félags eldri borgara í Kópavogi.

Lögð fram drög að verkefnaáætlun.

5.1105246 - Skólahreysti 2011 - umsókn um styrk.

Lögð fram umsókn um styrk frá Skólahreysti 2011. Bæjarráð vísaði erindinu til afgreiðslu frístunda- og forvarnanefndar.

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 150.000.

6.1105445 - Iðkendastyrkir tómstundafélaga 2011

Umsóknir tómstundafélaga vegna iðkendastyrkja/rekstrarstyrkja 2011 lagðar fram.

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir breytingar á úthlutunarfjárhæð til jafns við samþykkt íþróttaráðs. Jafnframt er óskað eftir viðbótarframlagi að upphæð kr. 96.200 til að jafnræðis sé gætt á milli tómstunda- og íþróttafélaga. Nefndin bendir einnig á að innan þessarar úthlutunar eru íþróttafélög.  Forvarna- og frístundanefnd leggur til að fyrir fjárhagsáætlun 2012 verði iðkendastyrkjum úthlutað af einum sameiginlegum fjárhagslið.

7.1105122 - Iðkendastyrkur 2011 - KFUM og K

Lögð fram umsókn um iðkendastyrk frá KFUM og K.

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita félaginu iðkendastyrk að upphæð kr 60.000,-  með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

 

8.1104310 - Iðkendastyrkur 2011 - Skátafélagið Kópar

Lögð fram umsókn um iðkendastyrk frá Skátafélaginu Kópum.

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita félaginu iðkendarstyrk að upphæð kr.745.800,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

9.1104313 - Iðkendastyrkur 2011 - Íþróttafélagið Ösp

Lögð fram umsókn um rekstrarstyrk frá Íþróttafélaginu Ösp.

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita félaginu rekstrarstyrk að upphæð kr.88.000,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

10.1105076 - Iðkendastyrkur 2011 - HSSK

Lögð fram umsókn um iðkendastyrk frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita félaginu iðkendastyrk að upphæð kr. 237.600,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

11.1105009 - Iðkendastyrkir 2011 - Íþróttafélagið Glóð

Lögð fram umsókn um iðkendastyrk frá Íþróttafélaginu Glóð.

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita félaginu iðkendastyrk að upphæð kr.45.000,- með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

12.1105060 - Iðkendastyrkur 2011 - ÍFR

Lögð fram umsókn um rekstrarstyrk frá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík.

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita félaginu iðkendastyrk að upphæð kr.19.800,-  með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

13.11011038 - Bjargir- lífsýn. Erindi til Forvarnarnefndar vegna endurnýjunar á samningi.

Frestað erindi frá fundi nefndarinnar þann 1.apríl 2011.

Forvarna- og frístundanefnd sér sér ekki fært að endurnýja samning við Bjargir-Lífsýn en samþykkir að greiða kr. 75.000 vegna þeirra barna  úr  Kópavogi  sem sóttu 1. stigs forvarna/ tómstundanámskeið TST vorið 2011.

14.1105101 - Sumardagurinn fyrsti 2011

Fulltrúar meirihluta í frístunda- og forvarnanefnd leggja fram eftirfarandi tillögu vegna tillögu minnihluta nefndarinnar frá fundi þann 10. maí 2011:

Að halda upp á Sumardaginn fyrsta er skemmtilegur séríslenskur siður sem á að halda í heiðri.  Forvarna- og frístundanefnd felur deildarstjóra  að hefja endurskoðun á skipulagi hátíðarhaldanna  í samráði við þá aðila sem komið hafa að hátíðarhöldunum undanfarin ár.

Greinargerð: Kostnaður vegna Sumardagsins fyrsta árið 2010 var 845.000,- og fengu skátar 700.000,- af þeirri upphæð til að sjá um daginn.  Hátíðarhöldin hafa verið samstarfsverkefni bæjarins og Skátahreyfingarinnar í mörg ár. Í ár voru gerðar breytingar vegna sérstakra aðstæðna en það er ekki þar með sagt að það sé til frambúðar.

Í nágrannasveitarfélögum okkar voru víða engin hátíðarhöld á Sumardaginn fyrsta og verður að segjast að það er aðdáunarvert að sjálfstæðismenn í Kópavogi skuli harma það að engin voru hátíðarhöldin með aðkomu Kópavogsbæjar. Ekkert er meitlað í stein og fögnum við því þessari tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Forvarna- og frístundanefnd Kópavogs,  því á komandi mánuðum verður styrkjakerfi Kópavogsbæjar tekið til endurskoðunar sem og skipulag hátíðarhalda á Sumardaginn fyrsta.

15.1105583 - Starfsreglur fyrir úthlutun styrkja úr forvarnasjóði

Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að setja sér starfsreglur um úthlutun forvarnastyrkja samhliða endurskoðun á reglum á frístundastyrkjum.

Fundi slitið - kl. 11:00.