Forvarnanefnd

27. fundur 07. september 2010 kl. 16:00 - 17:30 í Fannborg 2, 1. hæð minna fundarherbergi
Fundargerð ritaði: Jón Júlíusson starfsmaður forvarnarnefndar
Dagskrá

1.1004381 - Rannsóknir og greining - ýmis gögn.

Jón Sigfússon frá fyrirtækinu Rannsóknir og Greining ehf. kom inn á fundinn undir þessum lið og kynnti  starfsemi fyrirtækisins, framkvæmd kannana og niðurstöður einstakra atriða fyrir nefndarmönnum. 

 

 

2.1009056 - Forvarnarnefnd, kynning.

Jón Júlíusson, deildarstjóri ÍTK, kynnti fyrir nefndarmönnum þau helstu verkefni sem forvarnarnefnd hefur unnið að á síðustu árum.  Einnig kynnti hann þær samþykktir sem gerðar voru af fráfarandi nefndarfólki, á liðnum árum. 

Jón greindi einnig frá því að Héðinn Sveinbjörnsson, núverandi formaður, hafi skrifað í bæjarblöðin vegna útivistartíma og verslunarmannahelgarinnar. 

3.1002193 - Vímulaus æska- samstarf vegna sjálfsstyrkinganámskeiða.

Jón Júlíusson deildarstjóri ÍTK, gerði grein fyrir samkomlagi við Vímulausa æsku, þar sem m.a. er óskað eftir því að fundið verði húsnæði fyrir námskeiðin. 

4.1007152 - Skólahreysti óskar eftir styrk fyrir árið 2010

Forvarnarnefnd hefur ekki styrkt þetta verkefni af sínum fjárveitingum undanfarin ár, en hvetur bæjarráð til að styrkja verkefnið eins og það hefur gert hingað til. 

Þar sem fjárveiting nefndarinnar leyfir ekki frekari styrki á árinu sér nefndin sér ekki fært að styrkja verkefnið. 

Rætt um fundartíma nefndarinnar.

Fundi slitið - kl. 17:30.