Framkvæmdaráð

43. fundur 09. janúar 2013 kl. 08:17 - 10:15 í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Fundinn sátu:
  • Guðríður Arnardóttir aðalfulltrúi
  • Gunnar Ingi Birgisson aðalfulltrúi
  • Steingrímur Hauksson embættismaður
  • Þuríður Björk Sigurjónsdóttir starfsmaður nefndar
  • Ólafur Þór Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ómar Stefánsson aðalfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson
Fundargerð ritaði: Þuríður Björk Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri framkvæmda- og tæknisviðs
Dagskrá

1.1301075 - Skemmuvegur 50. Uppsögn stöðuleyfis.

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að stöðuleyfi fyrir skúrbyggingu að Skemmuvegi 50 verði afturkallað.

Guðríður Arnardóttir situr hjá. Samþykkt með tveimur atkvæðum.

2.1212141 - Skerðing lóðarinnar Hálsaþing 11. Samkomulag um greiðslu vegna lóðarskerðingar.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að samþykkt verði samkomulag vegna skerðingar lóðarinnar Hálsaþing nr. 11 og stækkun lóðarinnar Hálsaþing nr. 13.

Guðríður Arnadóttir sat hjá. Samþykkt með tveimur atkvæðum.

3.1301041 - Álmakór 19. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Kristjáni Hjálmari Ragnarssyni kt. 200759-4789 og Kristjönu Unu Gunnarsdóttur kt. 191166-4939 verði útlutað lóðinni nr. 19 við Álmakór.

4.1301039 - Hamraendi 32-34. Umsókn um lóð undir hesthús

Frá skrifstofustjóra umhverfissvið.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Páli Jóhanni Briem kt. 280472-5069 og Guðrúnu Sylvíu Pétursdóttur kt. 071167-5939 verði úthlutað lóðunum Hamraendi nr. 32 og nr. 34.

5.1212158 - Bílaplan milli Turns og Smáralindar. Viðauki við lóðarleigusamninga.

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs og fjármála- og hagsýslustjóra.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að samþykkt verði fyrirliggjandi drög að samningi og afsali vegna yfirbyggingar yfir Fífuhvammsveg og samkomulag um uppgjör verksins.

Guðríður Arnardóttir situr hjá við atkvæðagreiðslu. Samþykkt með tveimur atkvæðum.

6.1211407 - Samningur um leigu á vatns- og kaffivélum.

Málinu er frestað á meðan beðið er tillögu sviðsstjóra umhverfissviðs.

7.1301083 - Rammasamningur um örútboð

Samþykkt er að Kópavogsbær verði ekki aðili að rammasamningi Ríkiskaupa um örútboð á þjónustu iðnaðarmanna en núverandi samningur rennur út 31. mars 2013. Minni útboð verða boðin út á vegum umhverfissviðs eins og verið hefur. Samþykkt með tveimur atkvæðum.

Guðríður Arnardóttir greiðir atkvæði gegn.

Guðríður Arnardóttir bókar: Viðskipti Kópavogsbæjar við iðnaðarmenn hafa löngum verið gagnrýnd sökum þess að sömu aðilar hafa þar oftlega verið valdir til verka.  Með aðild að samningi Ríkiskaupa hefði mátt standa að þessum málum á gegnsæjan hátt þar sem val á þjónustuaðilum væri hafið yfir allan vafa.

Ómar Stefánsson og Gunnar Birgisson bóka: Í gegnum tíðina hefur verið valið til verka í gegnum útboð. Ferlið hefur verið opið og gegnsætt og verður það áfram.

8.1208544 - Digranesvegur 12 - sala.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Ómar Stefánson vék af fundi undir þessum lið.

 

Tilboð hefur borist í eignina frá Erlu Alexandersdóttur og Sigurðu J. Ragnarssyni. Framkvæmdaráð hafnar tilboðinu.

Guðríður Arnardóttir bókar: Ég óska eftir upplýsingum um við hvaða fasteignarsölur var samið um sölu eignarinnar Digranesvegur 12.

9.1301087 - Gatnagerðargjöld.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Málið kynnt.

Frestað til næsta fundar.

10.1206438 - Fyrirspurn frá Hjálmari Hjálmarssyni

Kostnaður vegna snjómokstur 2010, 2011 og 2012.

Fyrirspurn. Undirritaður óskar eftir að fá yfirlit kostnaðar Kópavogsbæjar vegna snjómoksturs árin 2010, 2011 og 2012 sundurliðað annars vegar vegna verktöku og hins vegar innri kostnaðar bæjarins.

11.1301107 - Kópavogstún 10-12, skil á lóð

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs.

Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Sérverk ehf. verði heimilað að skila inn lóðinni Kópavogstún 10-12. Skrifstofustjóra falið að auglýsa lóðina að nýju.

12.1201043 - Staða framkvæmda við Norðurturn Smáralindar. Fyrirspurn frá Ómari Stefánssyni

Framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að ræða við forsvarsmenn "Norðurturnsins" um byggingaráform og gefa framkvæmdaráði upplýsingar á næsta fundi.

Fundi slitið - kl. 10:15.