Framkvæmdaráð

59. fundur 17. desember 2013 kl. 14:00 - 15:00 í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Fundinn sátu:
  • Gunnar Ingi Birgisson aðalfulltrúi
  • Pétur Ólafsson aðalfulltrúi
  • Alexander Arnarson varafulltrúi
  • Páll Magnússon bæjarritari
  • Steingrímur Hauksson sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
  • Gísli Norðdahl byggingarfulltrúi
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
  • Guðmundur Gunnarsson starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Guðmundur Gunnarsson ritari umhverfissviði
Dagskrá

1.1311480 - Vatnsendahlíð, úthlutun lóða Vallaþingi.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Bæjarlögmaður gerði grein fyrir stöðu málsins.

Frestað. 

2.1312141 - Umsókn um lóð, bílaþvottastöð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Borist hefur erindi Bónax ehf. dags. 6. desember 2013, þar sem þess er óskað að fyrirtækinu verði úthlutað lóð fyrir starfsemina. Framkvæmdaráð telur að ekki sé til staðar lóð skv. aðalskipulagi, sem geti hentað fyrir starfsemi af þessu tagi, sbr. lýsingu í erindi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

3.1308413 - Staða byggingarframkvæmda á lóðum

Frá byggingarfulltrúa.

Byggingarfulltrúi lagði fram og skýrði greinargerð um stöðu byggingarframkvæmda á lóðum dags. 16. desember 2013.

Framkvæmdaráð samþykkir að fela sviðsstjóra og byggingarfulltrúa að leggja fram á næsta fundi lista yfir lóðarhafa sem ekki hafa sinnt byggingarframkvæmdum um árabil, vegna mögulegra dagsekta og/eða afturköllunar lóðaúthlutana.

4.1201366 - Útboð á húsnæði undir líkamsræktarstöðvar í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar.

Lagt fram erindi deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 16. desember 2013, þar sem þess er óskað að heimilt verði að bjóða út húsnæði undir líkamsræktarstöðvar í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum. Framkvæmdaráð heimilar útboðið.

5.1312183 - Atvinnuátak Skógræktarfélags Kóp.2013

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar.

Lögð fram greinargerð vegna atvinnuátaks Skógræktarfélags Kópavogs árið 2013.

Fundi slitið - kl. 15:00.