Hafnarstjórn

75. fundur 08. september 2011 kl. 16:30 - 18:00 að Bakkabraut 9
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálsdóttir Bæjarstjóri
Dagskrá

1.1009068 - Bakkabraut 9, Steypustöðin Borg. Rekstrarleyfi o.fl.

 

Hafnarstjórn fagnar því að hreinsun skuli vera hafin á svæðinu og óskar eftir því við umhverfissvið, að gert verði ráð fyrir kostnaði við endanlegan frágang á svæðinu á fjárhagsáætlun 2012. 

 

Hafnarstjórn felur bæjarlögmanni að innheimta útlagðan kostnað við þrif á svæðinu.

 

2.1108417 - Verndun og endurnýjun trébáta - áskorun til Alþingis, menntamálaráðherra og sveitarfélaga

Hafnarstjórn tekur undir áskorun í ályktun málþings um verndun, smíði og nýtingu trébáta.

3.1011345 - Friðlýsing Skerjafjarðar.

Formaður fór yfir málið með stjórninni.  Formanni falið að boða til næsta fundar með skipulagsstjóra og forstöðumanni Náttúrufræðistofu Kópavogs, þann 19. september nk. kl. 16:00 á bæjarskrifstofunum.

4.1108424 - Hafnafundur 2011

Kópavogshafnir munu eiga fulltrúa á fundinum.

5.1109046 - Breytingar á rammareglugerð fyrir hafnir

Hafnarstjórn felur bæjarlögmanni að skoða erindi innanríkisráðuneytisins og aðlaga hafnarreglugerð frá Kópavogshöfn nr. 983 að þeim breytingum, sem þar eru kynntar.  Hafnarstjórn óskar eftir því að bæjarlögmaður sendi stjórninni tillöguna og mæti á fund stjórnarinnar í október og geri grein fyrir tillögum sínum að reglugerðarbreytingum.

Innheimtumál hafnarinnar.
Hafnarvörður gerði grein fyrir útistandandi tekjum.


Hafnarverði falið að útbúa kynningarefni fyrir Sjávarútvegssýninguna, sem kynnt verði í bás Kópavogs á sýningunni.

Fundi slitið - kl. 18:00.