Innkaupanefnd

3. fundur 05. maí 2025 kl. 15:30 - 17:30 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Sveinn Gíslason, aðalmaður boðaði forföll og Orri Vignir Hlöðversson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Sigvaldi Egill Lárusson, aðalmaður boðaði forföll og Þorvarður Hrafn Ásgeirsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Már Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Elvar Bjarki Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Alda Kristín Sigurðardóttir
  • Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir
  • Hjalti Jón Pálsson
Fundargerð ritaði: Alda Kristín Sigurðardóttir Deildarstjóri innkaupadeildar
Dagskrá

Almenn mál

1.25043647 - Útboð - Apple spjaldtölvur (iPad)

Útboð - Apple spjaldtölvum (iPad) fyrir grunnskóla
Lagt fram. Samþykkt að veita heimild til útboðs á Apple spjaldtölvum (iPad).

Gestir

  • Viktor F. Shala - mæting: 15:35
  • Sindri Sveinsson - mæting: 15:35

Almenn mál

2.2505120 - Útboð - Fífan endurnýjun - Jarðvinna og lagnir, gervigras og tartan

Útboð - Fífan endurnýjun - Jarðvinna og lagnir, gervigras og tartan.
Lagt fram. Máli frestað þar til bæjarráð hefur tekið afstöðu til viðauka.

Gestir

  • Ármann Halldórsson - mæting: 15:45

Almenn mál

3.25041085 - Verkefnalisti innkaupadeildar og upplýsingar um innkaup fyrir innkaupanefnd

Verkefnalisti innkaupadeildar, kynning á umbóta- og þróunarverkefnum, árangri og upplýsingar um innkaupamál.

Lagt fram. Ákveðið að fresta frekari umræðu um minnisblað um kaup á mannauðs- og launakerfi til næsta fundar. Innkaupanefndin óskar eftir minnisblaði um innkaupin frá kaupanda með frekari skýringum á valdri innkaupaleið.
Steinn víkur af fundi kl. 16:45.

Almenn mál

4.2203504 - Innkaupastefna og innkaupareglur

Yfirferð á drögum að innkaupareglum og gildandi innkaupstefnu. Tekið á móti athugasemdum og ábendingum frá nefndarfólki.
Lagt fram. Ákveðið að beina athyglinni að innkaupastefnunni til að byrja með og fjalla frekar um hana á næsta fundi.

Fundi slitið - kl. 17:30.