Innkaupanefnd

5. fundur 02. júní 2025 kl. 15:30 - 17:50 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Sveinn Gíslason formaður
  • Sigvaldi Egill Lárusson aðalmaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Þorvarður Hrafn Ásgeirsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Jóhann Már Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Elvar Bjarki Helgason áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
  • Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Pálmi Másson bæjarritari
Dagskrá

Almenn mál

1.25052243 - Útboð - Geislagarður

Óskað er eftir heimild til útboðs á endurgerð á Geislagarði í Hamraborg. Lagt fram til ákvörðunar.
Innkaupanefnd samþykkir með fimm atkvæðum heimild til útboðs í samræmi við fyrirliggjandi gögn.


Gestur vék af fundi kl. 15:43

Gestir

  • Dofri Þórðarson, deildarstjóri eignardeildar - mæting: 15:37

Almenn mál

2.25051863 - Minnisblað vegna innkaupa á launa- og mannauðskerfi.

Minnisblað kaupanda vegna innkaupa á launa- og mannauðskerfi lagt fram til umræðu og upplýsinga.
Fundarhlé hófst kl. 16:42, fundi fram haldið kl. 16:50

Tillaga:
Innkaupanefnd samþykkir að kalla eftir viðbrögðum deildarstjóra innkaupadeildar við skýringum mannauðsstjóra og óska eftir tillögum að leiðum til úrbóta.

Greinargerð:
Samkvæmt erindisbréfi á innkaupanefnd að hafa eftirlit með að innkaupareglum bæjarfélagsins sé fylgt og afgreiða ábendingar sem berast vegna opinberra innkaupa og gera tillögu til bæjarráðs að úrbótum sé tilefni til.

Hafnað með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Jóhanns Más Sigurbjörnssonar.


Innkaupanefnd áréttar mikilvægi þess að verkkaupar hagi innkaupum ætíð í samráði við innkaupadeild. Innkaupanefnd átelur að ekki hafi verið farið í útboð á seinni hluta árs 2023, þegar fyrir lá að þjónusta við þáverandi launakerfi yrði hætt. Innkaupanefnd leggur eindregið til að farið verði sem allra fyrst í útboð á launa- og mannauðskerfi, þannig að unnt sé að taka nýtt kerfi í notkun samhliða því þegar núverandi þriggja ára samningi lýkur.

Almenn mál

3.25053623 - Stjórnskipulag og nýtt skipurit Kópavogsbæjar 1. mars 2025

Nýtt skipurit Kópavogsbæjar lagt fram til kynningar og umræðu, ásamt hlutverki nefndarinnar í heildinni.
Kynning og umræður.

Fundi slitið - kl. 17:50.