Innkaupanefnd

13. fundur 16. febrúar 2026 kl. 15:30 - 17:13 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Sveinn Gíslason formaður
  • Sigvaldi Egill Lárusson aðalmaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Már Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Elvar Bjarki Helgason áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir starfsmaður nefndar
  • Hjalti Jón Pálsson starfsmaður nefndar
  • Steinn Sigríðar Finnbogason lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Katrín Arnórsdóttir Sérfræðingur
Dagskrá

Almenn mál

1.25121282 - Fundartímar innkaupanefndar 2026

Fundaáætlun 2026 lögð fram.
Fundaáætlun ársins 2026 lögð fram. Samþykkt.

Almenn mál

2.25112732 - Verkferlar innkaupadeildar

Verkferlar vegna undirbúnings innkaupa og mismunandi innkaupaleiða lagðir fram til

upplýsinga og kynningar. Framhaldsumræða frá fyrri fundi þegar fresta þurfti umræðu.
Umræður um verkferla vegna undirbúnings innkaupa og mismunandi innkaupaleiða. Lagt fram til
upplýsinga og kynningar.

Almenn mál

3.26022022 - Innkaupareglur breyting-endurskoðun 2026

Innkaupareglur frá 2022, ásamt drögum að breytingum frá mars 2025 lagðar fram til umræðu.
Umræður um innkaupareglur og mikilvægi þess að innkaupastefna sé einni uppfærð. Ákveðið að rýna bæði stefnu og reglur samhliða. Athugasemdum um innkaupastefnu verður komið til lögfræðiþjónustunnar sem vinnur úr þeim athugsemdum og lögð verða fram drög að uppfærðri stefnu og reglum á fundi nefndarinnar.

Almenn mál

4.26011266 - Verkefnalisti innkaupadeildar og upplýsingar um innkaup fyrir innkaupanefnd 2026

Lagður er fram listi yfir verkefni sem eru í vinnslu hjá innkaupadeild. Lagt fram til upplýsinga.
Umræður um lista yfir verkefni sem eru í vinnslu hjá innkaupadeild. Listi lagður fram til upplýsinga.

Fundi slitið - kl. 17:13.