Innkaupanefnd

15. fundur 16. mars 2026 kl. 15:30 - 16:31 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Sveinn Gíslason formaður
  • Sigvaldi Egill Lárusson, aðalmaður boðaði forföll og Bergur Þorri Benjamínsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Már Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Elvar Bjarki Helgason áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
  • Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir starfsmaður nefndar
  • Hjalti Jón Pálsson starfsmaður nefndar
  • Steinn Sigríðar Finnbogason lögfræðingur
  • Loftur Steinar Loftsson Þjónustustjóri
Fundargerð ritaði: Katrín Arnórsdóttir Sérfræðingur
Dagskrá

Almenn mál

1.26022658 - Útboð - Naustavör 13 - Stígagerð og lagnir utan lóðar

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 12.03.2026, er lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild innkaupanefndar fyrir auglýsingu útboðs nr. 26022658: Naustavör 13 - Stígagerð og lagnir utan lóðar. Lagt fram til ákvörðunar.
Innkaupanefnd samþykkir erindi frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 12.03.2026, þar sem óskað er eftir heimild innkaupanefndar fyrir auglýsingu útboðs nr. 26022658: Naustavör 13 - Stígagerð og lagnir utan lóðar. Samþykkt er að heimila auglýsingu útboðs nr. 26022658: Naustavör 13 - Stígagerð og lagnir utan lóðar.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir víkur af fundi kl. 15:51

Gestur víkur af fundi kl. 15:53.

Gestir

  • Ármann Halldórsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 15:37

Almenn mál

2.25102727 - Örútboð - Borð- og fartölvur

Frá innkaupadeild dags. 12.04.2026, lagt fram erindi þar sem upplýst er um örútboð sem sent hefur verið til birgja í rammasamningi Fjársýslunnar, Tölvur fyrir Kópavogsbæ. Lagt fram til upplýsinga.
Lagt er fram erindi frá innkaupadeild þar sem upplýst er um örútboð sem sent hefur verið til birgja í rammasamningi Fjársýslunnar, Tölvur fyrir Kópavogsbæ. Lagt fram til upplýsinga.
Umræður.

Almenn mál

3.25121282 - Fundartímar innkaupanefndar 2026

Tillaga að breyttri fundaráætlun innkaupanefndar.

Vegna verkefnastöðu umhverfissviðs er talið að of langur tími sé á milli funda frá 16. mars til 20. apríl, þ.a.l. er lagt til að fundur verði settur á dagskrá 13. apríl.
Lögð er fram tillaga að breyttri fundaráætlun innkaupanefndar.
Vegna verkefnastöðu umhverfissviðs er talið að of langur tími sé á milli funda frá 16. mars til 20. apríl, þ.a.l. er lagt til að sá fundur verði færður til 13. apríl.
Samþykkt.

Almenn mál

4.26023247 - Skilamat framkvæmdadeildar - upplýsingar fyrir innkaupanefnd

Kynnt er fyrirkomulag á eftirlitsskýrslum vegna framkvæmdaverkefna.
Kynnt er fyrirkomulag á árshlutaskýrslum vegna framkvæmdaverkefna og hvernig þær verði kynntar fyrir innkaupanefnd.
Nefndarfólk gerir ekki athugasemdir við þetta fyrirkomulag.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir kemur aftur á fund kl. 16:09.

Almenn mál

5.26011266 - Verkefnalisti innkaupadeildar og upplýsingar um innkaup fyrir innkaupanefnd 2026

Lagður er fram listi yfir verkefni sem eru í vinnslu hjá innkaupadeild. Lagt fram til upplýsinga.
Lagður er fram listi yfir verkefni sem eru í vinnslu hjá innkaupadeild. Lagt fram til upplýsinga. Umræður.

Almenn mál

6.25101775 - Greiningar innkaupa fyrir innkaupanefnd

Óskað var eftir því, í upphafi fundar, að fjallað yrði um stöðu á Power BI skýrslu og hvort vitað sé hvenær hún liggi fyrir.

Það var samþykkt og dagskrárlið bætt við, til umræðu.
Fjallað er um stöðu á skýrslu sem unnin var upp úr Power BI skýrslu og ætlunin var að leggja fyrir innkaupanefndina í desember sl.

Verið er að skoða hvernig hægt er að setja skýrsluna fram þannig að gögnin í henni séu örugglega rétt.
Nefndin leggur áherslu á að mikilvægt sé að fá þessar upplýsingar og að þær séu réttar.

Fundi slitið - kl. 16:31.