Íþrótta- og tómstundaráð

254. fundur 25. ágúst 2010 kl. 08:00 - 09:30 í Fannborg 2, 2. hæð Litli salur
Fundargerð ritaði: Gunnar Guðmundsson íþróttafulltrúi
Dagskrá

1.1008152 - Tímatöflur íþróttahúsa.

Íþrótta- og tómstundaráði voru kynntar tillögur að tímatöflum íþróttamannvirkja.  Íþrótta- og tómstundaráð samþykkir tillögurnar.  Því er beint til íþróttafélaganna að nýta betur litlu íþróttahúsin við skólana og bjóða upp á þjónustu í öllum hverfum.  

2.1008153 - Niðurgreiðsla æfingagjalda 2010-2011.

ÍTK samþykkir að auglýsa niðurgreiðslustyrkina eins og áður hefur verið gert.  Styrkupphæð sé sú sama og fyrirkomulagið það sama og áður.  ÍTK einsetur sér að gera gott kerfi betra með fleiri möguleikum bæði fyrir iðkendur og íþrótta- og tómstundafélög. 

3.1008146 - Heimaleikjatími HK á Kópavogsvelli.

ÍTK beinir því til Breiðabliks að virða reglur um heimaleikjatíma HK á Kópavogsvelli.  Starfsmönnum ÍTK falið að fylgja málinu eftir.

4.1008128 - Staðlar í frístundum og leik. Bréf frá neytendastofu.

Lagt fram til kynningar.

5.1008127 - Umsókn um æfinga- og kennsluaðstöðu í sundlaugum Kópavogs.

Jón Júlíusson deildarstjóri ÍTK kom á fundinn og kynnti málið fyrir ráðinu.  Íþrótta- og tómstundaráð beinir því til starfsmanna ÍTK að leysa málið farsællega með Sunddeild Breiðabliks, með þeim fyrirvara að aðgangur almennings að laugunum sé tryggður.  Óskað hefur verið eftir nánari tímatöflum sunddeildar Breiðabliks vegna lauganna.

 

6.1008135 - Umsókn um styrk v/ knattspyrnumóts

ÍTK sér sér ekki fært að verða við erindinu.

7.908023 - Samstarf HK, Breiðabliks og Kópavogsbæjar um þjónustu við bæjarbúa.

ÍTK boðar formenn HK og Breiðabliks til fundar vegna þessa máls.

Fundi slitið - kl. 09:30.