Íþrótta- og tómstundaráð

250. fundur 17. maí 2010 kl. 08:00 - 09:30 Fannborg 2, 2. hæð, Litli salur
Fundargerð ritaði: Gunnar Guðmundsson íþróttafulltrúi
Dagskrá

1.1005094 - Fjárhagsstaða íþróttafélaga

Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs ítrekar við aðalstjórn Breiðabliks að ráðinu berist sundurliðaður ársreikningur 2009 fyrir barna- og unglingastarf annars vegar og meistaraflokksstarf hins vegar í þeim deildum sem meistaraflokksstarfsemi er.  Óskað er eftir því við aðalstjórn að samstæðureikningur Breiðabliks fyrir árið 2009 berist ráðinu fyrir maílok.   

Ráðið lýsir yfir áhyggjum vegna aukinnar skuldasöfnunar einstakra deilda íþróttafélaga bæjarins.

2.1005060 - Ósk um styrk vegna frístundaheimilis við Öskjuhlíðarskóla.

Í ljósi sérstakra aðstæðna samþykkir ÍTK að veita styrk að þessu sinni.

3.1002266 - Jafnréttisverkefni 2010

Íþrótta- og tómstundaráð fagnar útnefningu knattspyrnudeildar Breiðabliks til jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisnefndar Kópavogs fyrir árið 2010. 

4.1003167 - Sumarnámskeið 2010 í efri byggðum

Ráðinu barst ábending foreldra í Kórum og Vatnsenda að fyrir börn á aldrinum 6-10 ára væri einungis um leikjanámskeið/íþróttaskóla að ræða eftir hádegi.  Þörf er fyrir heilsdags dagskrá fyrir þennan aldurshóp í hverfinu.  ÍTK hvetur HK til að mæta þessari þörf. 

Fundi slitið - kl. 09:30.