Íþróttaráð

117. fundur 13. janúar 2022 kl. 17:00 - 17:45 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Jón Finnbogason aðalmaður
  • Signý Sigurrós Skúladóttir aðalmaður
  • Sverrir Kári Karlsson aðalmaður
  • Hlín Bjarnadóttir aðalmaður
  • Matthías Hjartarson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Júlíusson íþróttafulltrúi
Fundargerð ritaði: Jón Júlíusson íþróttafulltrúi
Dagskrá
Einar Örn Þorvarðarson aðalfulltrúi reyndi að taka þátt í fundinum í gegn um TEAMS en það heppnaðist ekki og var hann því fjarverandi.
Við afgreiðslu dagskrárliðarins vék Hlín Bjarnadóttir af fundi.

Almenn mál

1.2112279 - Íþróttakarl og Íþróttakona Kópavogs - Framkvæmd kjörsins 2021

Tekið til afgreiðslu kjör á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs 2021. Við atkvæðagreiðslu íþróttaráðs vék Hlín Bjarnadóttir sæti og varamaður hennar greiddi akvæði í kjöri ráðsins.
Netkosning meðal íbúa stóð yfir frá 28. desember til 9. janúar sl. og er þetta í sjötta sinn sem bæjarbúar taka beinan þátt í kjörinu.
Lagðar fram niðurstöður úr kjöri íþróttaráðs og íbúakosningu á vefnum.
Íþróttaráð lýsir ánægju sinni með þátttöku íbúa kjöri á Íþróttakonu og Íþróttakarli Kópavogs en þetta er í sjötta sinn sem það er gert.
Íþróttaráð samþykkir að útnefna Tinnu Sif Teitsdóttur hópfimleikakonu úr Gerplu, Íþróttakonu Kópavogs 2021 og Arnar Pétursson fjálsíþróttamann úr Breiðabliki Íþróttakarl Kópavogs 2021.
Íþróttaráð samþykkir framlag að upphæð 200.000 kr. til Íþróttakonu Kópavogs og 200.000 kr. til Íþróttakarls Kópavogs.
Hlín Bjarnadóttir tekur aftur sæti á fundinum.

Almenn mál

2.2112364 - Tilnefningar - Flokkur ársins 2021

Teknar til afgreiðslu tilnefningar íþróttafélaganna til flokks ársins á árinu 2021. Í ár komu 7 tilnefningar til flokks ársins 2021.
Íþróttaráð tilnefnir meistaraflokk Breiðabliks í knattspyrnu kvenna flokk ársins 2021. Íþróttaráð samþykkir framlag að upphæð 150.000 kr. til Knattspyrnudeildar Breiðabliks.

Almenn mál

3.2201217 - Íþróttahátíð Kópavogs - Þátttaka í alþjóðlegum mótum

Síðast liðin 3 ár hefur íþróttaráð veitt íþróttafólki úr Kópavogi viðurkenningar vegna þátttöku í keppnum/mótum á alþjóðlegum vettvangi.
Vegna þeirra takmarkana sem nú eru í þjóðfélaginu verður ekki hægt að veita þessar viðurkenningar á sjálfri hátíðinni í ár. Starfsmönnum íþróttadeildar er falið að koma viðurkenningum til þeirra sem þær hlutu við fyrsta tækifæri.
Samþykkt

Almenn mál

4.2201214 - Íþróttahátíð Kópavogs 2021 - Dagskrá

Lögð fram drög að dagskrá íþróttahátíðar Kópavogs 2021 sem hefst að fundi loknum í dag kl. 18:00.
Íþróttaráð samþykkir framlagða dagskrá íþróttahátíðar og skiptir með sér verkum á hátíðinni.

Fundi slitið - kl. 17:45.