Jafnréttis- og mannréttindanefnd

6. fundur 12. október 2011 kl. 17:15 - 18:30 í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð
Fundargerð ritaði: Ása A. Kristjánsdóttir jafnréttisráðgjafi
Dagskrá

1.1106235 - Aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum

Lagt fram til kynningar áskorun velferðarráðuneytisins til allra sveitarfélaga um að gerð verði aðgerðaáætlun um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi.

Jafnréttis- og mannréttindaráð vísar til bókunnar ráðsins þann 23. ágúst sl. og bókunar bæjarráðs frá 25. ágúst sl. þar sem jafnréttis- og mannréttindaráði var falið  að vinna að gerð aðgerðaáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum.

2.1110016 - Hvatning vegna kvennafrídagsins 24. október 2011

Lagt fram.

3.1104028 - Jafnréttis- og mannréttindanefnd - Önnur mál

Jafnréttis- og mannréttindanefnd mun beita sér fyrir því að við gerð næstu fjárhagsáætlunar verði gert ráð fyrir framlagi til fræðslu um jafnréttismál og fræðslu og innleiðingu aðgerðaáætlana um einelti og kynbundið ofbeldi.  Þá minnir nefndin á að skv. jafnréttisáætlun bæjarins skal láta gera könnun á launamun kynja hjá starfsmönnum Kópavogsbæjar og könnun eða gátlista fyrir stjórnendur æskulýðsstarfs árið 2012.

4.1104175 - Tillaga um sameiginlega stefnu/áætlun til að sporna við einelti innan stofnana bæjarins

Fyrstu drög starfshóps lögð fyrir nefndina.

Jafnréttis- og mannréttindaráð telur með hliðsjón af fyrirliggjandi drögum, ástæðu til  að fulltrúi starfsmannasviðs fái sæti í vinnuhópnum.

5.1110142 - Erindisbréf jafnréttis- og mannréttindaráðs

Jafnréttis- og mannréttindaráð samþykkir drögin með breytingu á 9. gr.

Fundi slitið - kl. 18:30.